Innlent

Svipaður fjöldi um Keflavíkurflugvöll og í fyrra

MYND/Teitur

Um 673 þúsund farþegar komu til landsins um Keflavíkurflugvöll á fyrstu átta mánuðum þessa árs sem er nokkurn veginn sami fjöldi og kom til landsins á sama tímabili í fyrra.

Þegar hins vegar horft er til síðustu tólf mánaða reyndust farþegarnir nærri 950 þúsund og hafði fjölgað um rúm tvö prósent frá tólf mánaða tímabili þar á undan. Þetta kemur fram í nýjum Hagvísum Hagstofunnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×