Innlent

Búið að sprengja 80 prósent af Héðinsfjarðargöngum

Búið er að sprengja tæp 80% af Héðinsfjarðargöngum. Göngin verða dýrari en áætlanir gerðu ráð fyrir en óljóst er hvort aukakostnaður skellur á ríkinu eða verktökum.

Ástæðan fyrir auknum kostnaði og töfum er gríðarlegur vatnsflaumur sem hefur strítt starfsmönnum Háfells og Metrostavs mjög. Alls vinna á annað hundrað manns við göngin þessa dagana. Ólafsfjarðarmegin voru menn í gær komnir tæpa 3.600 metra en Siglufjarðarmegin tæpan kílómetra. Alls er búið að sprengja 8.200 sinnum.

Héðinsfjarðargöng eru stærsta framkvæmd sem Vegagerðin hefur boðið út og áttu að kosta rúma sjö milljarða. En kunnugir segja að sá kostnaður muni hækka nokkuð vegna þeirra vatnsvandræða sem komið hafa upp. Þá sé ljóst að göngin verði ekki tilbúin á réttum tíma.

Um hitt er hins vegar tekist á þessa dagana hvernig aukakostnaður skiptist. Hvort ríkið eða verktakarnir þurfa að taka á sig auknar byrðar.

Vatnið er tveggja til þriggja stiga heitt og ekki ósvipað aðstæðum í Múlagöngunum sem brúuðu Ólafsfjörð við Dalvík. Stöð 2 hefur greint frá því að nú þurfi að gera ný Múlagöng þar sem þau uppfylla ekki lengur umferðarstaðla.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×