Innlent

Þingmenn og ráðherrar verði skyldaðir til að opinbera fjárhagsleg tengsl

Mikilvægt er að þingmenn og ráðherrar séu skyldaðir til að gera opinber öll fjárhagsleg tengsl til að auka trúverðugleika stjórnmálamanna að mati varaformanns Vinstri grænna. Samfylkingin útilokar ekki að slíkt verði gert að skyldu en sjálfstæðismenn eiga enn eftir að taka afstöðu til málsins.

Reglur um birtingu á fjárhagslegum tengslum þingmanna og ráðherra hafa verið til umfjöllunar Alþingis síðastliðið eitt og hálft ár. Meðal þess sem deilt er um er hvort skylda eigi þingmenn til að gera þessar upplýsingar opinberar.

Ekki liggur fyrir hvort samstaða náist milli þingflokkanna um málið á komandi haustþingi en Vinstri grænir vilja að þingmenn séu skyldaðir til að gera opinber öll fjárhagsleg tengsl.

„Við erum að horfa upp á samspil viðskiptaheimsins stjórnmála og annars slíks sem við teljum ýta undir það að svona mál séu uppi á borðinu og ég held að þetta auki traust og trúverðugleika stjórnmálamanna að svona upplýsingar séu uppi á borðinu. Þess vegna höfum við haft þessar upplýsingar aðgengilegar öllum og við viljum helst sjá að þetta gildi um alla þingmenn, segir Katrín Jakobsdóttir," varaforamaður Vinstri grænna.

Fram kom á fréttavefnum Vísir.is í síðustu viku að Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, væri stofnfjáreigandi í Byr. Ráðherra vildi þó ekki gefa upp hversu stóran hlut hann ætti.

Í Fréttablaðinu í dag er haft eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra, að hún telji heppilegra að reglur um hagsmunatengsl og eignir þingmanna verði ekki valkvæðar.

Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður sjálfstæðismanna, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að ekki væri búið að fjalla um málið innan flokksins á breiðum grunni. Því væri flokkurinn ekki búinn að móta afstöðu til málsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×