Innlent

Tíu Íslendingar sýktust af salmonellu á hóteli á Ródos

Frá Ródos. Úr myndasafni.
Frá Ródos. Úr myndasafni.

Tíu manns greindust með salmonellu hér á landi seinni hluta ágústmánaðar eftir að hafa dvalið á sama hótelinu á grísku eyjunni Ródos í lok júlí og í fyrri hluta ágúst. Þetta kemur fram í nýjum farsóttarfréttum Landlæknisembættisins. Þar segir enn fremur að meðal þeirra sem veiktust séu framhaldsskólanemar sem sumir hverjir séu enn veikir.

Í lok ágúst kom í ljós að sænskir gestir sem dvalið höfðu á sama hóteli og Íslendingarnir á Ródos hefðu einnig fengið salmonellu og var málið tilkynnt Sóttvarnastofnun Evrópu og grískum heilbrigðisyfirvöldum til að hægt væri að grípa til viðeigandi ráðstafana og stöðva áframhaldandi sýkingar.

Landlæknisembættið biður þá sem hafa ferðast til Ródos í ágústmánuði og hafa fundið fyrir einkennum um sýkingu í meltingarvegi að hafa samband við heimilislækni sinn sem metur þörf á sýnatöku.

Helstu einkenni salmonellu eru niðurgangur, uppköst, hiti og almenn vanlíðan. Langflestir fá bata án læknismeðferðar en sýkingin getur verið alvarleg vegna vökvataps og einnig getur hún borist út í blóðið.

Fram kemur í farsóttarfréttum að fyrstu átta mánuði ársins hafi 97 einstaklingar greinst með salmonellu hér á landi. Talið er að 21 þeirra hafi sýkst innanlands, 66 hafi sýkst erlendis en í tíu tilfellum er sýkingarland óþekkt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×