Innlent

Fíkniefnum smyglað inn með Norrænu

Lögreglan fann töluvert magn fíkniefna í bifreið sem kom með ferjunni Norrænu í gær. Fíkniefnin fundust við tollafgreiðslu í dag.

Á vef lögreglunnar segir að auk tollgæslu- og lögreglumanna embættisins á Seyðisfirði hafi starfsmenn tollgæslunnar í Reykjavík og á Eskifirði komið að verkefninu. Notaðir voru fíkniefnahundar frá embættinu og tollstjóranum í Reykjavík. Fíkniefnahundur embættisins sannaði ágæti sitt. Málið er afrakstur samstarfs tollgæslunnar á Íslandi og í Færeyjum.

Málið hefur verið afhent fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til rannsóknar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×