Innlent

Umferð dregst saman fimmta mánuðinn í röð

Fimmta mánuðin í röð dregst umferð saman. Þó dró örlítið minna úr umferð í ágústmánuði en mánuðina á undan þegar umferðin dróst saman um allt að 5,6 prósent í júní sé miðað við mánuðina á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar.

Þegar bornir eru saman 14 talningarstaðiar víðsvegar um landið kemur í ljós að umferð í ágúst var ríflega 3,5 prósent minni en í sama mánuði í fyrra. Í ágúst á síðasta ári jókst hinsvegar umferðin um 7,8 prósent frá því í sama mánuði árið 2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×