Vilja að íslensk stjórnvöld leggist gegn eldflaugavarnakerfi 2. september 2008 21:36 Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Þrír þingmenn Vinstri - grænna hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem lagt er til að Alþingi feli ríkisstjórninni að mótmæla áformum Bandaríkjamanna og eftir atvikum NATO að koma upp eldflaugavarnakerfi í Austur-Evrópu. Í tillögunni kemur fram að þessum mótmælum eigi að koma til skila á vettvangi NATO og annars staðar þar sem við eigi í alþjóðasamstarfi. Þá vilja þingmennirnir þrír, þau Steingrímur J. Sigfússon, Katrín Jakobsdóttir og Árni Þór Sigurðsson, að Ísland beiti sér fyrir því með virkum hætti að gildandi samningar um afvopnun eða takmörkun vígbúnaðar verði virtir. Í greinargerð með tillögunni er bent á að Bandaríkjamenn semji nú við Pólverja og Tékka um að koma upp eldflaugavarnakerfinu en þetta sé hluti af stjörnustríðsáætluninni svokölluðu. ,,Óvinsældir áætlunarinnar eru hins vegar svo miklar að hún hefur ekki gengið undir sama nafni lengur en tíu ár í senn," segir tillöguhöfundar. Segja þeir óumdeilt að uppsetning eldflaugavarnakerfisins sé ekki til þess fallin að stuðla að afvopnun og friðsamlegri sambúð þjóða. Þvert á móti séu eldflaugavarnir líklegar til að stuðla að frekara vígbúnaðarkapphlaupi. Benda tillöguhöfundar á að Rússar hafi svarað þessum fyrirætlunum með því að segja upp samningnum um takmörkun hefðbundins vígbúnaðar í Evrópu og jafnvel gefið í skyn að þeir muni aftur reyna að staðsetja kjarnorkuvopn á Kúbu. ,,Hætta er á því að sú afvopnunarstefna á sviði kjarnorkuvígbúnaðar, sem átt hefur að heita við lýði frá lokum kalda stríðsins, heyri þar með brátt sögunni til," segir einnig í greinargerð með þingsályktunartillögunni.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Sjá meira