Innlent

Flensan komin til landsins?

MYND/Vilhelm

Inflúensa af B-stofni greindist í eins árs gamalli stúlku frá Hafnarfirði í lok nýliðins ágústmánaðar. Landlæknisembættið segir ekki er hægt að fullyrða að það merki að inflúensan sé snemma á ferðinni í ár en venjulega líða nokkrar vikur frá því að inflúensa greinist fyrst þar til faraldur brýst út.

Í farsóttarfréttum kemur fram að allur sé þó varinn góður og rétt að hefja bólusetningar eftir að bóluefnið berst. Sá tími nálgast nú óðum, en miðað hefur verið við októberbyrjun. Áætlað er að bóluefnin verði komin til landsins í lok septembermánaðar og geta heilbrigðisstofnanir pantað bóluefni hjá Parlogis hf. sem annast dreifingu þeirra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×