Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Björgvin fundar með Darling í London Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra fundar með Alistair Darling fjármála- og bankamálaráðherra Bretlands í London í dag. 2.9.2008 10:07
Hafði verið saknað í þrjá daga Maðurinn sem fannst látinn í íbúð sinni við Skúlagötu í gærkvöld fannst ekki fyrr en vinir hans voru farnir að hafa áhyggjur af honum. Þeir höfðu þá ekki heyrt í manninum í þrjá daga. Þetta segir nágranni mannsins sem Vísir ræddi við í morgun. 2.9.2008 10:06
Flókið að setja nætursjónauka í þyrlur Gæslunnar Aðeins er nætursjónauki í einni af þrem þyrlum Landhelgisgæslunnar. Hafinn er undirbúningur þess að setja sjónauka í aðra þyrlu, en ekki er til fé fyrir þá þriðju eins og málin standa nú. 2.9.2008 09:57
Nærri fimm þúsund fleiri fluttu til landsins en frá því Ríflega 4700 fleiri fluttu til landsins en frá því á fyrstu sex mánuðum ársins samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Nema aðfluttir umfram brottflutta á þessum tíma um einu og hálfu prósenti af íbúafjölda landsins. 2.9.2008 09:06
Botninn er dottinn úr síldar- og makrílveiðunum Botninn er dottinn úr síldar- og makrílveiðunum og eru veiðiskipin nær öll á landleið. 2.9.2008 07:55
Leitað að þjófi sem rændi N1 í Kópavogi Þjófur laumaðist í peningakassann í verslun N- eins við Stóra Hjalla í Kópavogi á tólfta tímanum í gærkvöldi og komst á brott með tugi þúsunda króna. 2.9.2008 07:54
Fjórar verðandi mæður fluttar með sjúkrabílum í nótt Fjórum nýjum þjóðfélagsþegnum lá svo á í heiminn á höfuðborgarsvæðinu í nótt að hringt var á sjúkrabíla til að flytja mæðurnar á fæðingardeildina. 2.9.2008 07:27
Lögreglan rannsakar andlát við Skúlagötuna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú hvort áverkar á höfði manns, sem fannst látinn í íbúð sinni við Skúlagötu í Reykjavík um kvöldmatarleitið í gær, kunni að vera af manna völdum. 2.9.2008 07:21
Efnahags- og atvinnumál verða áberandi á haustþingi Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir að alvarleg staða í atvinnumálum þjóðarinnar og bágborið efnahagsástand verði megin umræðuefnið á þingfundum sem fram fara næstu tvær vikurnar. 1.9.2008 22:03
Hanna Birna: Tíminn vinnur með okkur „Þetta er allt á réttri leið og augljóst að tíminn vinnur með okkur. Ég átti alltaf von á því að það tæki tíma að vinna fylgið aftur," segir Hanna Birna Kristjánsdóttir um nýja skoðanakönnun á fylgi við meirihluta Sjálfstæðisflokks og framsóknarmanna í borgarstjórn. 1.9.2008 20:54
Einhugur á félagsfundi ljósmæðra Ljósmæður sjá fram á að þurfa að beita þeim neyðarrétti sem verkfallsaðgerðir eru en vilji ljósmæðra er eftir sem áður að semja sem fyrst. Þetta segir í ályktun sem samþykkt var við dynjandi lófatak á félagsfundi Ljósmæðrafélagsins nú undir kvöld. 1.9.2008 21:45
Bílvelta á Skógarstrandavegi Smábíll velti á Skógarstrandavegi, í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi, um klukkan hálffjögur í dag. Einn var fluttur með sjúkrabíl af vettvangi en ekki er ljóst hversu mikil meiðsl hans voru. 1.9.2008 22:27
Samfylkingin mælist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin nýtur meira fylgis en Sjálfstæðisflokkurinn á landsvísu. Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup sem Ríkisútvarpið sagði frá. 1.9.2008 18:13
Sviku fé út af kortum Skagfirðinga Lögreglan á Sauðárkróki rannsakar ásamt lögreglunni á Akureyri hvernig glæpamönnum tókst að svíkja um tvær milljónir króna út af kreditkortum. Svo virðist sem að þeir hafi komist yfir kreditkortanúmerin í Skagafirði og notað þau svo til að kaupa vörur í Bandaríkjunum. 1.9.2008 18:30
Helmingur ökumanna ók of hratt í skólahverfi Þrjátíu og þrír ökumenn óku of hratt í Breiðumýri á Álftanesi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðumýri í suðurátt, á móts við Álftanesskóla í eina klukkustund eftir hádegi. 1.9.2008 17:46
Mikill áhugi í Afríku á samstarfi við Ísland í orkumálum Mikill áhugi er í Afríku á samstarfi við Ísland í orkumálum og kom sá áhugi skýrt fram ráðstefnu um þróun vistvænnar orku í álfunni sem haldin var í dag í höfuðstöðvum Afríkusambandsins í Addis Ababa. 1.9.2008 16:47
Indverskur gúru vill messa við setningu Alþingis Indverskur trúarleiðtogi, Rajan Zed að nafni, hefur óskað eftir því að hann fái að fara með bænir úr fornum trúarritum hindúa fyrir setningu Alþingis þann 1. október næstkomandi. Frá þessu er greint á vefmiðlinum merinews.com. Þar er sagt frá því að Zed hafi borist svar við fyrirspurn sinni frá Þorsteini Magnússyni, aðstoðarskrifstofustjóra Alþingis, þar sem beiðninni er hafnað. 1.9.2008 16:41
Verkfall ljósmæðra að veruleika á miðvikudag Verkfall ljósmæðra verður að veruleika eftir að fundur þeirra með samninganefnd ríkisins í dag reyndist árangurslaus. Fundurinn hófst klukkan tvö og lauk um klukkustund síðar og hefur næsti fundur verið boðaður á fimmtudag. „Við erum því miður í þeim aðstæðum að skipuleggja verkfallsaðgerðir," segir Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands. 1.9.2008 16:21
Meiðyrðamál Ástu í Dalsmynni tekið fyrir Í Héraðsdómi Reykjaness í morgun var tekið fyrir meiðyrðamál Ástu Sigurðardóttur, sem oft er kennd við hundaræktunina að Dalsmynni, gegn Hrafnhildi Jónu Þórisdóttur. 1.9.2008 15:54
Opinber fyrirtæki bjóða umsækjendum um forstjórastöður nafnleynd Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur heita þeim trúnaði sem sækja um forstjórastöður fyrirtækjanna. Upplýsingalög kveða skýrt á um að skylt er að veita upplýsingar um nöfn, heimilisföng og starfsheiti umsækjenda þegar umsóknarfrestur er liðinn. 1.9.2008 15:41
Landsbjörg heimsækir eldri borgara í Garðabæ Slysavarnafélagið Landsbjörg og Garðabær skrifa á morgun undir samning um öryggisheimsóknir til allra eldri borgara, 75 ára og eldri, í bæjarfélaginu á næstunni. 1.9.2008 15:31
Tjón Alcan vegna samráðs metið á um 250 milljónir Tjón Alcan vegna samráðs stóru olíufélaganna þriggja var um 251 milljón króna á verðlagi áranna 1993-2001 samkvæmt nýrri matsgerð sem lögð var fram í málinu í dag. Fyrirtaka var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en beðið hefur verið eftir greinargerð matsmanns sem dómari skipaði að beiðni Alcan. 1.9.2008 15:23
Norður-Víkingur leifar af kalda stríðinu Samtök hernaðarandstæðinga lýsa vonbrigðum sínum með að íslensk stjórnvöld skuli eina ferðina enn ákveða að gera landið að æfingasvæði erlends herliðs. 1.9.2008 14:41
Ók 160 kílómetra til að jafna um verkalýðsforingja Það varð uppi fótur og fit á skrifstofu AFLs Starfsgreinafélags á Egilsstöðum þegar vertinn á Café Margaret á Breiðdalsvík réðst á framkvæmdastjóra félagsins, Sverri Mar Albertsson. Í frétt í 24 stundum á dögunum greint frá því að veitingamaðurinn borgi veitingastúlkum sínum lág laun auk þess sem þau séu ekki gefin upp til skatts. Í fréttinni var vitnað í Sverri og veitingamanninum Horst Muller gramdist það svo mjög að hann lagði á sig 160 kílómetra ökuferð til þess eins að ráðast á hann. Árásin verður kærð til sýslumanns. 1.9.2008 14:39
Sjö sagt upp í stjórnsýslu heilsugæslunnar Sjö starfsmönnum sem unnu við stjórnsýslu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins var sagt upp um mánaðamótin og er hluti þeirra þegar hættur. Forstjóri heilsugæslunnar segir uppsagnirnar ekki koma niður á þjónustu heilsugæslunnar. 1.9.2008 14:24
Jón Gerald aðstoðaði við gerð FL Group myndbanda Jón Gerald Sullenberger segist ekki vera huldumaðurinn á bakvið FL Group myndböndin tvö sem birt hafa verið á vefsíðunni Eyjunni, það seinna nú á laugardaginn. 1.9.2008 14:18
Veiðimenn á Austfjörðum með allt á hreinu Menn á gæsa- og hreindýraveiðum í umdæmi lögreglunnar á Seyðisfirði um helgina virðast hafa farið að lögum og reglum í hvívetna ef marka má frétt lögreglunnar. 1.9.2008 13:53
Samningafundur hjá ljósmæðrum og ríkinu að hefjast Samningafundur milli ljósmæðra og ríkisins hefst hjá ríkissáttasemjara klukkan tvö. 1.9.2008 13:45
Forsetinn fundaði með Yunus í Bangladess Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók um helgina þátt í alþjóðlegu þingi um loftslagsbreytingar í Bangladess þar sem hann flutti lokaræðuna. 1.9.2008 13:04
Með hass á Hótel Hilton 27 ára Reykvíkingur játaði í dag í héraðsdómi Reykjavíkur að hafa ætlað selja rúm 200 grömm af hassi sem fundust við leit á manninum á Akureyri annars vegar og í Reykjavík hins vegar. 1.9.2008 12:50
Hermenn og stríðstól á Keflavíkurflugvelli Varnaræfingin Norður-Víkingur verður sett eftir tæpa klukkustund. Fjöldi hermanna og stríðstóla tekur þátt í æfingunni. 1.9.2008 12:29
Fangar fá frið frá forvitnum í Kópavogi Vegfarendendur á Kópavogsbraut hafa tekið eftir því að girðingin umhverfis fangelsið sem staðsett er í götunni hefur verið klædd með striga. Guðmundur Gíslason, forstöðumaður fangelsana á höfuðborgarsvæðinu segir að fangarnir hafi farið fram á að þetta yrði gert til þess að koma í veg fyrir að forvitin augu gætu horft á þá þegar þeir eru í garðinum. 1.9.2008 12:21
Lést í bílslysi í Mjóafirði Maðurinn sem lést í bílslysi í Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi síðastliðinn föstudag hét Boguslaw Jozef Papierkowski. 1.9.2008 12:13
Davíð Smári neitar sök í líkamsárásarmálum Davíð Smári Helenarson, betur þekktur sem Dabbi Grensás, sem ákærður er fyrir þrjú ofbeldisbrot neitaði sök við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 1.9.2008 12:01
Vilja að allir nemar fái frítt í strætó Vinstri grænir vilja að allir námsmenn fái frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu. Flokksráðfundur VG sem haldinn var um helgina beinir því til sveitarfélaganna á höfuðborginu að gæta jafnræðis og veita öllum námsmönnum frítt í strætó þó þeir hafi lögheimili í öðrum sveitarfélögum. 1.9.2008 11:08
Menntaskólapiltur dæmdur fyrir vörslu barnakláms Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt 18 ára menntaskólapilt í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft barnaklám í tölvu sinni. 1.9.2008 10:36
Heildarvelta í smásölu um 274 milljarðar í fyrra Heildarvelta í smásöluverslun í fyrra nam rúmum 274 milljörðum króna og jókst um nærri ellefu prósent frá árinu 2006. Þetta kemur fram í Árbók verslunarinnar sem Rannsóknarsetur verslunarinnar á Bifröst gefur út. 1.9.2008 10:22
Vonast til að Íslendingur losni úr haldi í Reno í vikunni Vonir standa til að íslenskur karlmaður, Fannar Gunnlaugsson, sem setið hefur í fangelsi í mánuð í Bandaríkjunum fyrir að hafa skilað dvalarleyfispappírum aðeins of seint, losni úr haldi í vikunni. Þetta segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins. 1.9.2008 10:03
Breyttur útivistartími hjá börnum og unglingum Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum í dag. Nú mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan átta en 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan tíu. 1.9.2008 08:53
Íslendingur situr fastur í fangelsi í Nevada Ungur íslenskur karlmaður hefur dvalið í fangelsi í Nevada í Bandaríkjunum í heilan mánuð, að kröfu bandaríska útlendingaeftirlitsins. 1.9.2008 08:20
Nýtt fiskveiðiár hófst á miðnætti Nýtt fiskveiðiár hófst á miðnætti þannig að nú eiga allar útgerðir kvóta til veiða, til að byrja með að minnsta kosti. 1.9.2008 08:18
Fundu fíkniefni í Hveragerði og á Selfossi Lögreglan í Árnessýslu fann fíkniefni víð húsleit í Hveragerði og á Selfossi í nótt. 1.9.2008 07:33
Flugmenn óttast atvinnuleysi Flugmenn, sem Icelandair hefur sagt upp á árinu óttast að fá ekki vinnu annarsstaðar, sem jafnan hefur verið auðvelt þegar fyrirtækið hefur sagt upp flugmönnum. 1.9.2008 07:32