Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hringvegurinn rofinn á 200 metra kafla fyrir norðan Hringvegurinn er í sundur á um 200 metra löngum kafla í vestanverðum Biskupshálsi, skammt frá Grímsstöðum á fjöllum. Að sögn lögreglunnar á Húsavík hefur veginum bókstaflega skolað burtu en gríðarlegar leysingar eru á svæðinu. Vöruflutningabíll frá Flytjanda lenti í vatnselgnum en ökumanninum tókst að forða sér áður en vegurinn gaf sig og bíllinn valt ofan í fljótið sem hafði myndast. Hann er talinn ónýtur. 13.5.2008 23:26
Andstæðingum tekist að gera málstað Sjálfstæðisflokksins ótrúverðugan Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur segir umræðu síðustu mánaða hafa verið afar erfiða. Í könnun Gallup gerði kemur fram að flokkur hans myndi missa tvo borgarfulltrúa yrði gengið til kosninga í dag. Flokkurinn er við það að missa þriðja manninn yfir til Samfylkingar sem myndi þýða að sá flokkur næði hreinum meirihluta í borginni. Hann veltir því fyrir sér hvers vegna könnunin sé birt núna og viðurkennir að andstæðingum flokksins hafi tekist vel upp í því að gera málstað hans ótrúverðugan. 13.5.2008 20:21
Sjálfstæðisflokkurinn uppspretta sundurlyndis og ráðaleysis Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur segist ekki geta verið annað en ánægður með niðurstöður könnunarinnar sem Gallup lét gera og greint var frá í kvöldfréttum RÚV. Í könnuninni er flokkur Dags nálægt því að ná hreinum meirihluta í borginni. 13.5.2008 19:21
Fundu töluvert af fíkniefnum á tveimur stöðum í borginni Lögregla á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á fíkniefni á tveimur stöðum í borginni á föstudag í húsleitum sem miða að því að draga úr sölu og dreifingu fíkniefna. 13.5.2008 23:25
NSS mótmæla áformum um Bitruvirkjun Náttúruverndarsamtök Suðurlands NSS, hafa gert athugasemdir við auglýstar breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins Ölfuss fyrir árin 2002 - 2014. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út í dag. Í athugasemdunum leggjast samtökin „alfarið gegn áformum um virkjun við Bitru, áður nefnd Ölkelduhálsvirkjun og telja að virkjunin rýri verulega lífsgæði íbúa í Hveragerði og í næsta nágrenni.“ 13.5.2008 21:12
Sprengja fannst á svæði Hringrásar í Helguvík Um miðjan dag í dag fundu starfsmenn Hringrásar í Helguvík sprengjuvörpusprengu innan um járnaúrgang. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að hún hafi lokað staðnum af þar til starfsmenn sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar komu og fjarlægðu sprengjuna til eyðingar. 13.5.2008 19:06
Greiddi sekt á lögreglustöðinni með stolnu korti Karlmanni sem stal greiðslukorti tókst að svíkja út tæplega 340 þúsund krónur í verslunum á einum og hálfum sólarhring. Hann notaði kortið meðal annars til að greiða sekt á lögreglustöðinni í Reykjavík. 13.5.2008 18:39
Samfylkingin nálægt hreinum meirihluta Samfylkingin er nálægt því að ná hreinum meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur ef marka má könnun sem Gallup gerði og RÚV greindi frá í kvöldfréttum sínum. Flokkurinn bætir við sig þremur borgarfulltrúm og fengi sjö og einn borgarfulltrúi bætist í hóp Vinstri grænna í Ráðhúsinu sem fengju þá þrjá. Næsti maður inn væri hins vegar fulltrúi Samfylkingarinnar sem færi inn á kostnað Sjálfstæðismanns. 13.5.2008 18:32
Ekkert amar að Ítalanum á Breiðamerkurjökli Nú er komið í ljós að ekkert amar að ítalska ferðamanninum sem óttast var um á Breiðamerkurjökli í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, var send á staðinn en henni hefur verið snúið við. 13.5.2008 17:55
Þyrla Landhelgisgæslunnar leitar Ítala Þyrla Landhelgsigæslunnar, TF-GNÁ, er nú að fara að leita Ítala við Breiðamerkurjökul eftir að neyðarsendir hans sendi frá sér boð á fjórða tímanum. 13.5.2008 17:01
Vilja að Reykjavíkurborg taki við flóttamönnum í stað Akraness Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstri - grænna og Framsóknarflokksins í velferðarráði Reykjavíkurborgar hyggjast leggja fram þá tillögu í ráðinu á morgun að borgin taki á móti 30 flóttamönnum frá Palestínu sem væntanlegir eru til landsins. 13.5.2008 16:54
Efast um hæfi sveitarstjórnar í Bitruvirkjunarmáli Landvernd hefur efasemdir um hæfi sveitarstjórnar Ölfuss til þess að fjalla um breytingar á skipulagi sveitarfélagsins í tengslum við byggingu Bitruvirkjunar. Þetta kemur fram í athugasemd sem samtökin hafa sent Sveitarfélaginu Ölfusi. 13.5.2008 16:30
Skýrslutökur hefjast á föstudag Skýrslutökur yfir stúlkunum þremur sem kært hafa séra Gunnar Björnsson sóknarprest á Selfossi fyrir kynferðislega áreitni hefjast á föstudaginn. Ekki hafa fleiri kærur borist vegna prestsins. 13.5.2008 15:49
Ráðist á Guðmund í Byrginu Ráðist var á Guðmund Jónsson, sem kenndur er við Byrgið, við heimili hans í Grímsnesi um kvöldmatarleytið í gær. 13.5.2008 15:41
Eins prósents atvinnuleysi í apríl Atvinnuleysi í nýliðnum aprílmánuði reyndist eitt prósent á landinu. Er það um átta prósentum minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,1 prósent. 13.5.2008 15:25
Slökkviliðið hreinsar upp olíu í Elliðavogi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er nú að hefja hreinsun á olíu sem fór í sjóinn í gær. Aðgerðin fer fram í Elliðavogi og búast menn við að vera í þessu eitthvað fram eftir degi. Talsverð olía fór í sjóinn. 13.5.2008 14:49
Dagur: Ráðning Jakobs Frímanns að vissu leyti læknamistök Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segist ekki munu eltast við orð sem Jakob Frímann Magnússon, nýráðinn framkvæmdastjóri miðborgarmála, viðhafði um hann í Mannamáli á Stöð 2 á sunnudag. 13.5.2008 14:43
Þrír kenndir við stýri - tveir við sama stýrið Lögregla á Seyðisfirði átti nokkra góða spretti í síðustu viku ef marka má frásögn á fréttavef lögreglunnar. Nokkuð var um umferðarlagabrot ýmiss konar og bar þar hæst ölvunarakstur þriggja ökumanna en þar af voru tveir teknir á sama ökutækinu, þó ekki á sama tíma. 13.5.2008 14:36
Íslenskt blogg frá jarðskjálftunum í Kína Tvær ungar íslenskar konur blogga frá borginni Chengdu í Kína, sem hefur verið skekin af jarðskjálftum undanfarinn sólarhring. 13.5.2008 14:35
Guðbjartur þingmaður ræður sér aðstoðarkonu Guðrún Vala Elísdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarmaður Guðbjarts Hannessonar þingmanns. Guðrún Vala er búsett í Borgarnesi en ólst upp í Dölunum. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1987, BA prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands 1995, Bed próf frá Kennaraháskóla Íslands 1996, Diploma Ed í stjórnun 2001 og Diploma Ed í sérkennslufræðum 2004 frá framhaldsdeild Kennaraháskóla Íslands. 13.5.2008 14:29
Boruðu dýpstu holu landsins Menn á vegum Jarðborana slógu á dögunum aðeins þriggja mánaða gamalt met við borun á Skarðsmýrarfjalli á Hellisheiði. Holan sem boruð var reyndist 3.322 metrar og var þar með 211 metrum dýpri en fyrri methola sem lokið var við í febrúar. 13.5.2008 14:02
Áskilja sér allan rétt verði af Bitruvirkjun Bæjarstjórn Hveragerðis samþykkti aukafundi í morgun harðorða bókun gegn Bitruvirkjun sem rísa á í nágrenni bæjarins. Þar áskilja forsvarsmenn bæjarins sér allan rétt til aðgerða verði af virkjuninni. 13.5.2008 13:23
Dæmdur fyrir ölvun í björgunaraðgerðum Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur til þess að greiða 160 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir að hafa ekið bifreið sinni undir áhrifum áfengis. 13.5.2008 13:08
Vilja strætó milli Borgarness og Reykjavíkur Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt samhljóða að óska eftir sérleyfi fyrir akstursleiðina á milli Borgarness og Reykjavíkur þegar leyfið losnar um áramót. 13.5.2008 12:51
Mikill viðsnúningur á nýskráningu ökutækja á síðustu vikum Nýskráðum ökutækjum á fyrstu 130 dögum ársins fækkaði lítillega, eða um 0,6 prósent, á milli ára samkvæmt samantekt Umferðarstofu. 13.5.2008 12:42
Minnkandi vinningslíkur í Lottóinu Möguleikar á að fá fyrsta vinning í Lottóinu minnka úr einum á móti 500 þúsundum niður i einn á móti 650 þúsund, eftir að Lottótölunum var fjölgað um tvær eða upp í fjörutíu. 13.5.2008 12:37
Forsætisráðherra beri ábyrgð á sölu á hlut í ÍAV Þingmaður Vinstri - grænna segir sölu á 40 prósenta hlut ríkisins í Íslenskum aðalverktökum siðlausa og kallar forsætisráðherra til ábyrgðar. Hæstiréttur hefur úrskurðað að salan sé ólögmæt. 13.5.2008 12:21
Ekið á gangandi vegfaranda í miðbænum Ekið var á gangandi vegfaranda á Skothúsvegi í miðbænum fyrir stundu. Lögregla og slökkvilið eru á vettvangi en frekari upplýsingar er ekki að fá um málið að svo stöddu. 13.5.2008 12:13
Ekkert því til fyrirstöðu að afgreiða frumvarp Valgerðar Ekkert er því til fyrirstöðu að afgreiða frumvarp Valgerðar Bjarnadóttur um afnám eftirlaunalaganna sem setið hefur fast í allsherjarnefnd Alþingis síðan í haust, segja þingflokksformenn Framsóknarflokksins og Vinstri - grænna. 13.5.2008 12:07
Skýrslutökur í TR-máli Skýrslutökur fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag yfir sakborningum í fjársvikamáli tengdu Tryggingastofnun ríkisins. 13.5.2008 12:02
Saksóknari í Byrgismáli segir niðurstöðuna ásættanlega Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari sem sótti hið svokallaða Byrgismál fyrir ákæruvaldið segist nokkuð sátt með niðurstöðu héraðsdóms frá því á föstudag. Þá fékk Guðmundur Jónsson gjarnan kenndur við Byrgið þriggja ára fangelsisdóm. Guðmundur var dæmdur í öllum ákæruliðunum. 13.5.2008 11:52
Kannast ekki við að strandað hafi á sjálfstæðismönnum Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, kannast ekki við að það hafi strandað á sjálfstæðismönnum að breyta eftirlaunalögunum umdeildu á vordögum 2006. 13.5.2008 11:49
Sendi Kínverjum samúðarkveðju vegna hamfara Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í dag forseta Kína, Hu Jintao, samúðarkveðju vegna þeirra hörmunga sem orðið hafa í kjölfar jarðskjálftanna í Kína. 13.5.2008 11:34
Ákærður fyrir að stela Merrild-kaffi úr vinnuskúr Við Héraðsdóm Reykjaness var í dag þingfest ákæra á hendur tæplega sextugum karlmanni. 13.5.2008 11:28
Harður árekstur á Vesturlandsvegi í morgun Þrennt var flutt á sjúkrahús á Akranesi eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla við Skorholt, rétt við Hafnarfjall, á Vesturlandsvegi um áttaleytið í morgun. 13.5.2008 11:09
Metaðsókn að skíðasvæðum landsins Um 170 þúsund manns sóttu skíðasvæðin á Íslandi á liðnum vetri og er það mesta aðsókn síðan talningar hófust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skíðasvæðunum en forsvarsmenn þeirr héldu ársfund sinn fyrir helgi á skíðsvæðinu í Oddskarði. 13.5.2008 10:16
Verðmæti útfluttra sjávarafurða jókst um þrjú prósent Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða nam 127 milljörðum króna á síðasta ári og jókst um tæp þrjú prósent frá árinu á undan. Þetta kemur fram í nýju riti Hagstofunnar. 13.5.2008 09:20
Árleg karfavertíð er hafin djúpt á Reykjaneshryggnum Árleg karfavertíð er hafin djúpt á Reykjaneshryggnum og eru yfir 30 togarar byrjaðir veiðar þar. 13.5.2008 07:24
Tveir þjófar handteknir á Kleppsvegi í morgun Lögreglumenn handtóku tvo menn á Kleppsvegi um sex leitið í morgun, eftir að menninrir höfðu farið ránshendi um geymslur í fjölbýlishúsi við götuna. 13.5.2008 07:21
Svartolía lak úr flutningaskipi í Sundahöfn Slökkviliðsmenn af höfuðborgarsvæðinu voru fram undir miðnætti að hreinsa upp svartolíu , sem lak úr flutningaskipinu Medemborg, þar sem það lá við Vogabakka í Sundahöfn. 13.5.2008 07:08
Lýst eftir vitnum að skemmdarverkum á Akranesi Lögreglan á Akranesi lýsir eftir vitnum að skemmdarverkum, sem unnin voru í bænum á föstudagskvöldið og aðfararnótt laugardags. 13.5.2008 07:06
Utanríkisráðherra fundaði með breskum ráðamönnum „Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fundaði í dag með breskum ráðamönnum og flutti framsögu á hádegisverðarfundi bresk-íslenska verslunarráðsins 12.5.2008 17:38
Slökkvilið að ganga frá eftir olíuleka Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur lokið við að dæla upp olíu sem fór í sjóinn þegar óhapp varð um borð í flutningaskipinu Medemborg fyrir hádegið. 12.5.2008 17:33
Eldsneytisverð hækkar hjá N1 Eldsneytisverð hjá N1 var hækkað fyrir stundu og kostar lítri af bensíni þar nú 158,9 krónur en díselolíu 171,9 krónur miðað við sjálfsafgreiðslu. Ekki hafði verð hækkað hjá Skeljungi og Olís þegar grennslast var fyrir hjá þjónustustöðvum fyrirtækjanna klukkan 17:10 í dag. 12.5.2008 17:16
Nýja Kópavogslaugin kostaði milljarð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði ný sundlaugarmannvirki í Sundlaug Kópavogs við Borgarholtsbraut við hátíðlega athöfn í gær. 12.5.2008 16:32