NSS mótmæla áformum um Bitruvirkjun 13. maí 2008 21:12 Frá Henglinum.
Náttúruverndarsamtök Suðurlands NSS, hafa gert athugasemdir við auglýstar breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins Ölfuss fyrir árin 2002 - 2014. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út í dag. Í athugasemdunum leggjast samtökin „alfarið gegn áformum um virkjun við Bitru, áður nefnd Ölkelduhálsvirkjun og telja að virkjunin rýri verulega lífsgæði íbúa í Hveragerði og í næsta nágrenni." Þá kemur fram að samtökin telji að ekki hafi verið sýnt fram á að „HS2 mengun og hávaðamengun af virkjuninni verði með þeim hætti að ásættanlegt sé að stunda slíka starfsemi við þétta byggð. Þó svo að fyrirhugað sé að leita leiða til að hreinsa HS2 úr útblæstri, og að niðurdæling sé áformuð, er óvíst að það muni leysa þann vanda sem skapast getur á framkvæmdatíma ef af virkjuninni verður enda ekki áformað eða mögulegt að hreinsa þann útblástur ." Samtökin segjast vilja vekja athygli á því að HS2 mengun frá Hellisheiðarvirkjun sem tekið hefur til starfa hefur meðal annars haft áhrif á loftgæði á höfuðborgarsvæðinu. „Einnig er vakin sérstök athygli á því að íbúar í Hveragerði og forystumenn þess sveitarfélags hafa gert ítrekaðar athugasemdir við áform um virkjun við Ölkelduháls/Bitru og leggjast eindregið gegn henni." Þá er í athugasemdunum vísað til þess að Hengilssvæðið, Ölkelduháls, dalirnir ofan Hveragerðis og afréttur Ölfuss njóti vaxandi vinsælda sem útivistarsvæði íbúa á vestanverðu Suðurlandi og höfuðborgarsvæðisins; „hér er um að ræða dýrmætt útivistarsvæði í nánasta nágrenni við helsta þéttbýli landsins sem er auk þess að hluta til á náttúruminjaskrá. Svæðið er því ekki einungis dýrmætt fyrir Ölfusinga og Hvergerðinga heldur alla landsmenn." Að auki telja NSS að náttúrugæðum verði spillt til frambúðar með fyrirhuguðum virkjanaframkvæmdum við Ölkelduháls og hvetja til varfærni og biðlundar með slíkar framkvæmdir. „Bent skal á að svokallað landsskipulag liggur ekki enn fyrir og að alls óvíst sé hvort að virkjanaklasar af því tagi sem áformaðir eru á Hellisheiði, með tilheyrandi orkuflutningskerfi standist slíka skoðun þegar til kemur. Eins má benda á að alls ekki er fyrirséð hvort að losunarheimildir fáist fyrir stóriðjuáformum þeim sem að virkjun við Bitru hefði átt að knýja," segir í tilkynningunni og einnig bent á að „kapp er best með forsjá í þessum málum sem öðrum." „NSS gagnrýna ennfremur þann gjörning að sveitarfélagið Ölfus hafi með samningi við Orkuveitu Reykjavíkur skuldbundið sig til þess að skipuleggja svæðið „til samræmis við þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru" svo vitnað sé í bókun bæjarstjórnar Ölfuss frá 28. apríl 2006. Í bókun sveitarstjórnar, og samningi við Orkuveitu Reykjavíkur, eru m.a. þær framkvæmdir bókaðar sem tilgreindar eru í auglýsingu um breytingu á aðalskipulagi. NSS telja að nefndur samningur sveitarstjórnar Ölfuss við Orkuveitu Reykjavíkur, og bókun dags. 28. apríl 2006 sé ekki í samræmi við góða stjórnsýsluhætti í skipulagsmálum."
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira