Innlent

Harður árekstur á Vesturlandsvegi í morgun

Þrennt var flutt á sjúkrahús á Akranesi eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla við Skorholt, rétt við Hafnarfjall, á Vesturlandsvegi um áttaleytið í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi eru allar líkur á að annar bílinn hafi farið yfir á rangan vegarhelming og hafnað á hinum. Tvennt var í öðrum bílnum en ökumaður einn í hinum og voru allir fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi til skoðunar. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan fólksins.

Búið er að fjarlægja báða bílana af vettvangi en þeir eru taldir ónýtir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×