Innlent

Tveir þjófar handteknir á Kleppsvegi í morgun

Lögreglumenn handtóku tvo menn á Kleppsvegi um sex leitið í morgun, eftir að menninrir höfðu farið ránshendi um geymslur í fjölbýlishúsi við götuna.

Auk þess að vera uppvísir að innbrotinu, fundust fíkniefni í fórum þeirra. Þeir gista nú fangageymslur og verða yfirheyrðir í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×