Andstæðingum tekist að gera málstað Sjálfstæðisflokksins ótrúverðugan Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 13. maí 2008 20:21 Vihjálmur Þ. Vilhjálmsson.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur segir umræðu síðustu mánaða hafa verið afar erfiða. Í könnun Gallup gerði kemur fram að flokkur hans myndi missa tvo borgarfulltrúa yrði gengið til kosninga í dag. Flokkurinn er við það að missa þriðja manninn yfir til Samfylkingar sem myndi þýða að sá flokkur næði hreinum meirihluta í borginni. Hann veltir því fyrir sér hvers vegna könnunin sé birt núna og viðurkennir að andstæðingum flokksins hafi tekist vel upp í því að gera málstað hans ótrúverðugan. „Við sjálfstæðismenn þekkjum vissulega betri tölur," segir Vilhjálmur og minnir á að í síðustu kosningum hafi Sjálfstæðisflokkurinn fengið 42 prósent atkvæða. Í dag fengi flokkurinn hins vegar 31 prósent sé miðað við könnunina en hún var framkvæmd dagana 1. til sextánda apríl síðastliðinn. Vilhjálmur segist velta því fyrir sér hvers vegna könnunin hafi ekki verið birt fyrr en í fréttum RÚV af málinu í kvöld kom fram að samkvæmt heimildum fréttastofunnar hafi það verið borgarstjórnarflokkur VG sem lét framkvæma hana. „Ég tek þessar tölur mjög alvarlega en það er bara eitt sem vakir fyrir okkur í meirihlutanum og það er að vinna vel að hagsmunamálum í þágu allra borgarbúa. Það sem við höfum gert á fyrstu hundrað dögunum okkar er mun meira en það sem gamli meirihlutinn kom í verk," segir Vilhjálmur og bætir því við að borgarfulltrúarnir vinni hörðum höndum að því að sinna þeim málum sem núverandi meirihluti byggir á. „En menn hafa gengið langt í því að reyna að gera okkar málstað ótrúverðugan og ég verð bara að viðurkenna að andstæðingum okkar hefur tekist það," segir Vilhjálmur. Hann bætir því við að núverandi meirihluti hafi ekki gert neitt annað en að stjórna borginni „og ég er sannfærður um að við erum að gera góða hluti í því. Það er síðan í verkahring kjósenda að dæma okkur af þeim verkum í næstu kosningum," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira