Innlent

Svartolía lak úr flutningaskipi í Sundahöfn

Slökkviliðsmenn af höfuðborgarsvæðinu voru fram undir miðnætti að hreinsa upp svartolíu , sem lak úr flutningaskipinu Medemborg, þar sem það lá við Vogabakka í Sundahöfn.

Olíuflekkurinn var girtur af og olíunni síðan dælt upp, en það verk var seinunnið þar sem svartolían er þykk fljótandi.

Ekki liggur fyrir hvort bilun varð um borð eða mannleg mistök voru gerð, með þessum afleiðingum. Talið er að hátt í 600 lítrar af olú hafi lekið í sjóinn




Fleiri fréttir

Sjá meira


×