Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heilbrigðisráðherra vill bæta þjónustuna Landsspítalinn hefur undanfarin misseri glímt við margþættan rekstrar- og starfsmannavanda, á sama tíma og stjórnvöld eyða púðrinu í að skipuleggja nýtt hátæknisjúkrahús. 19.7.2007 21:06
Fordómar í leikskólum Móðir einhverfs drengs segir að á þeim hafi verið brotin lög þegar syni hennar var hafnað leikskólaplássi. Hún gagnrýnir ákvörðun leikskólastjóra og segir að fordómar og geðþóttarákvörðun hafi ráðið för. 19.7.2007 20:43
Snæfellsjökull getur horfið á einni mannsævi Jöklar landsins hafa rýrnað mikið á síðustu tíu árin. Haldist veðurfar óbreytt munu stærstu jöklar Íslands ekki endast nema tvö hundruð ár og Snæfellsjökull hverfa á einni mannsævi. 19.7.2007 19:24
ASÍ segir gagnrýni Haga ómálefnalega Forstjóri Haga segir lítið að marka verðkannanir ASÍ og telur vinnubrögð sambandsins óvönduð. Dómskvaddir matsmenn verði fengnir til að meta málflutning ASÍ af verðlagi í matvöruverslunum. Hagfræðingur ASÍ segir gagnrýni Haga vart svaraverðar og þykir ómálefnalegt af fyrirtækinu að ráðast gegn sambandinu með slíkum gífuryrðum. 19.7.2007 19:19
Mugsion rær á tónlistarmiðin og spáir ekki í kvótaskerðingu Poppskáldið, gítaristinn og vestfirðingurinn Mugison lætur ekki kvótaskerðingu draga úr sér mátt en hann sækir innblástur í hin vestfirsku fjöll og semur á balanum fyrir framan húsið sitt í Súðavík. Mugison rær á tónlistarmið. 19.7.2007 19:17
Grænt samfélag og álver geta farið saman, segir bæjarstjóri. Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjórinn í Ölfusi fagnar velgengni vatnsverksmiðju Jóns Ólafssonar og fjörutíu nýjum störfum samhliða henni. Búast má við að eitthundrað störf við fiskvinnslu fari forgörðum í Þorlákshöfn vegna skerðingar aflaheimilda. 19.7.2007 19:15
Saksóknari efnahagsbrota heldur að sér höndum Saksóknari efnahagsbrota gefur ekki út neinar ákærur fyrr en Hæstiréttur hefur fjallað um dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra í gær. Þetta er í annað sinn sem máli er vísað frá á grundvelli þess að ekki sé heimild til þess í lögreglulögum að fela saksóknaranum sjálfstætt ákæruvald. 19.7.2007 19:15
Tækifæri til að ná sáttum milli stríðandi fylkinga Ráðamenn í Ísrael og Palestínu telja ákveðið tækifæri núna til að ná samningum milli stríðandi fylkinga. Þetta segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sem fundaði með forseta Palestínu í morgun. 19.7.2007 19:14
Mikill hiti í jarðstreng Orkuveitunnar vegna þurrka Jarðstrengur Orkuveitu Reykjavíkur frá Nesjavallavirkjun hefur hitnað svo mikið í þurrkunum að starfsmenn orkuveitunnar voru farnir að íhuga að vökva hann. Rigningin í nótt og í morgun dró aðeins úr spennunni hjá Orkuveitunni. 19.7.2007 19:13
Ítrekaðar líkamsárásir á hótelstjóra og hótelgesti í miðborginni Hóteleigandi í miðborg Reykjavíkur hefur orðið fyrir ítrekuðum líkamsárásum að næturlagi og gestum hans hefur verið ógnað. Hann hyggst setja upp myndavélar við hótelið til að auka öryggi sitt og gestanna. 19.7.2007 19:09
Maður talinn lærbrotinn eftir vélhjólaslys Vélhjólamaður slasaðist á æfingabraut fyrir krossara í Hlíðarfjalli á Akureyri í dag. Að sögn lögreglunnar á Akureyri var maðurinn fluttur á slysadeild og talið var að hann hefði lærbrotnað. 19.7.2007 18:21
SVÞ taka undir með Högum hf Samtök verslunar og þjónustu taka undir með Högum í deilum sem staðið hafa um matvöruverð að undanförnu. Forstjóri Haga sagði í dag að Alþýðusamband Íslands stundaaði atvinnuróg gegn verslunum Haga og sagði að kallaðir yrðu til dómskvaddir matsmenn til að meta fréttaflutning ASÍ af verðlagi í verslunum. 19.7.2007 17:31
Óttast var um þýsk hjón fyrir vestan Björgunarsveitir á vestfjörðum voru kallaðar út vegna þýskra hjóna sem voru í siglingu frá Bolungarvíkur til Súðavíkur, en leitin var afturkölluð þegar þau fundust rétt fyrir utan Súðavík. Óttast var í fyrstu að báturinn væri skemmdur, og þegar ekki náðist samband við hjónin var hafin allsherjarleit. Hjónin sigldu í litlum sjóstangveiðibát. 19.7.2007 16:53
Mikill áhugi erlendis á íslensku orkuverkefni Mikill áhugi er hjá erlendum aðilum að taka þátt í verkefni Íslenskrar Nýorku um notkun vetnis sem orkugjafa í stað olíu eða annarra kolefnisorkugjafa. Framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku segir stefnu íslenskrar stjórnvalda varðandi vistvæna orku eiga mikinn þátt í þessum áhuga. Fjallað var var um verkefnið á vefsíðu bandarísku sjónvarpstöðvarinnar CNN. 19.7.2007 16:34
Fíkniefni fundust við húsleit Lögreglan fann ætluð fíkniefni við húsleitir í tveimur íbúðum í úthverfum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Karl og kona, sem bæði eru á þrítugsaldri, voru handtekin í þágu rannsóknar málsins. Bæði hafa komið við sögu hjá lögreglu áður. Húsleitirnar voru framkvæmdar að undangengnum úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. 19.7.2007 16:30
Faxaflóahafnir sf. í samstarf við næst stærstu höfn Kína Faxaflóahafnir sf. og höfnin í Qingdo í Kína undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf og samvinnu. Viljayfirlýsingu þessari verður fylgt eftir með gerð formlegs samstarfssamnings sem verður undirritaður síðar. Höfnin í Qingdao er sú önnur stærsta í Kína og sú tíunda stærsta í heiminum. Að auki eru hún stærsta höfn Kína í frystum og kældum afurðum. 19.7.2007 16:14
Lýsa yfir áhyggjum vegna samdráttar í þorskkvóta Fyrirtæki og heimili á Vestfjörðum verða fyrir miklum tekjuskerðingum vegna samdráttar í þorskkvóta og því mikilvægt að stjórnvöld grípi strax til mótvægisaðgerða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga. Stjórnin lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af stöðu mála. 19.7.2007 16:02
Fullur og á stolnum bíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt nítján ára pilt fyrir ölvunarakstur í Garðabæ. Bíllinn sem pilturinn var á reyndist við nánari skoðun vera stolinn. 19.7.2007 15:38
117 tonna spennar eru þyngstu hlutir sem hafa farið eftir vegakerfinu 117 tonna spennar hafa verið fluttir eftir þjóðvegum frá Reyðarfirði í stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal í sumar. Spennarnir eru þyngstu hlutir sem farið hafa eftir vegakerfinu. Þar að auki er flutningabúnaður 74 tonn og heildarþungi því 191 tonn. Mikil vinna var lögð í að reikna út burðargetu brúa á leiðinni. 19.7.2007 15:33
Eldur kviknaði í potti Eldur kviknaði í potti í heimahúsi í Hafnarfirði í gær þegar húsmóðirin var að laga mat. Einn heimilismanna sýndi snarræði og náði að slökkva eldinn með handslökkvitæki og koma þannig í veg fyrir stórtjón. Töluverður reykur mætti lögreglu og slökkviliði þegar komið var á vettvang en heimilisfólkið, tveir karlar og kona, komst út af sjálfsdáðum. 19.7.2007 15:22
Geiri í Goldfinger braut ekki lög um nektardans Ásgeir Þór Davíðsson, betur þekktur sem Geiri í Goldfinger, var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness í dag af ákæru um að hafa staðið fyrir nektardanssýningu í lokuðu rými. Dansmey sem einnig var ákærð í málinu var líka sýknuð. Að mati dómsins þótti ekki sýnt að dansinn hafi farið fram í lokuðu rými líkt og bannað er samkvæmt lögreglusamþykkt. 19.7.2007 15:22
Lyftari valt af flutningabíl á Bústaðavegi Lyftari valt af flutningabíl á Bústaðavegi við Valsheimilið laust fyrir klukkan eitt í dag. Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu. 19.7.2007 14:07
Dæmdur sekur fyrir vörslu fíkniefna Karlmaður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag dæmdur til að greiða 40 þúsund krónur í sekt fyrir að hafa í fórum sínum ólöglegt fíkniefni. Maðurinn var með 0,94 grömm af amfetamíni þegar lögreglan hafði afskipti af honum í Hafnarstræti á Akureyri í síðastliðnum aprílmánuði. Með brotinu rauf maðurinn skilorð fyrri dóma. 19.7.2007 13:35
Dæmdur fyrir brot á fíkniefnalögum Karlmaður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag sakfelldur fyrir að hafa í sinni vörslu ólögleg fíkniefni. Um var að ræða 23,15 grömm af hassi og 0,93 grömm af marihúana. Með brotinu rauf maðurinn skilorð reynslulausnar frá því í janúar á þessu ári. 19.7.2007 13:26
Blár páfagaukur laus á Lynghálsi Blár páfagaukur sást í bílageymslu Glitnis á Lynghálsi 4. Í sama húsi og Europris. Ef einhver er að leita að gauksa má hafa samband við Pál Snorra 892-5746. 19.7.2007 13:07
Vegfarendur beðnir að sýna aðgát á Kræklingahlíð Vegna hættu á blæðingum í slitlagi á Kræklingahlíð norðan Akureyrar eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát meðan þetta ástand varir og fylgja fyrirmælum um lækkun á umferðarhraða. Vegna framkvæmda verður Vatnsfjarðarvegur númer 633 lokaður frá klukkan 07:00 miðvikudaginn 18. júlí til hádegis laugardaginn 21. júlí. Opið verður út í Reykjanes úr Mjóafirði. 19.7.2007 13:02
Vinstri grænir vilja fresta samningum við stóriðjufyrirtæki Hvorki á að gera samninga við stóriðjufyrirtæki né úthluta rannsóknarleyfum til orkufyrirtækja á meðan unnið er að náttúruverndaráætlun fyrir árin 2008 til 2012. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá þingflokki Vinstri grænna. Flokkurinn lýsir yfir miklum áhyggjum vegna stefnu ríkisstjórnarinnar að heimila áframhaldandi undirbúning álverksmiðja í Helguvík, Straumsvík og á Húsavík. 19.7.2007 12:33
Kallað verði eftir dómskvöddum matsmönnum til að meta niðurstöður ASÍ Forstjóri Haga segir Alþýðusamband Íslands stunda atvinnuróg gegn verslunum Haga og segir að kallaðir verði til dómskvaddir matsmenn til að meta fréttaflutning ASÍ af verðlagi í verslunum. Hann segir ekkert að marka verðkannanir ASÍ og vinnubrögð þess ólíðandi. 19.7.2007 12:30
Borgarstjóri andvígur einkavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur Takmörkuð samkeppni á orkumarkaði mælir gegn einkavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur að mati Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, borgarstjóra. Þetta kom fram í máli borgarstjóra í þættinum Morgunhaninn á útvarpi Sögu. 19.7.2007 10:59
Atvinnuleysi 3,2 prósent á 2. ársfjórðungi þessa árs Atvinnuleysi var 3,2 prósent á 2. ársfjórðungi þessa árs samkvæmt samantekt Hagstofunnar á atvinnuþáttöku og atvinnuleysi. Að meðaltali voru því tæplega sex þúsund manns án vinnu og í atvinnuleit á tímabilinu. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16 til 24 ára eða 10,2 prósent. Fleiri karlar voru atvinnulausir en konur. 19.7.2007 10:26
Aukið eftirlit skýrir fjölgun hraðakstursbrota Aukið eftirlit lögreglu og fjölgun bíla á landinu skýrir að mestu leyti mikla fjölgun hraðakstursbrota á undanförnum árum að mati Kristínar B. Þorsteinsdóttur, fræðslufulltrúa hjá Umferðarstofu. Hún segir það einnig áhyggjuefni að ölvunarakstur og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna hafi aukist eins og raun ber vitni. Hraðakstursbrotum í júnímánuði hefur fjölgað um helming á síðustu tveimur árum. 19.7.2007 10:01
Icelandair hefur flug til Toronto næsta vor Icelandair hefur ákveðið að hefja beint áætlunarflug milli Íslands og Toronto í Kanada strax næsta vor. Ákvörðun um þetta var tekin í framhaldi af þeim samningi sem stjórnvöld undirrituðu í Ottawa í síðustu viku. 19.7.2007 09:18
Tuttugu teknir fyrir hraðakstur á Akureyri Lögreglan á Akureyri stöðvaði í dag 20 ökumenn fyrir hraðakstur en þar af voru átján teknir innanbæjar. Einn var tekinn á 106 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 50. 18.7.2007 23:08
Útafakstur við Bifröst Bifreið fór útaf Vesturlandsvegi við Bifröst um áttaleytið í kvöld. Ökumaður var einn í bílnum en hann sakaði ekki. 18.7.2007 23:07
Dalvegur við Digranesveg og Dalsmára lokaður vegna slysahættu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði í kvöld fyrir umferð ökutækja á Dalvegi milli Digranesvegar og Dalsmára vegna slysahættu. Framkvæmdir standa yfir við götuna og hafði verktaki ekki gengið nægjanlega vel frá svæðinu að sögn lögreglu. 18.7.2007 23:04
Hegningarlagabrotum fækkar milli ára Rúmlega hundrað færri hegningarlagabrot voru skráð hjá lögreglunni í síðastliðnum júnímánuði miðað við sama mánuð í fyrra. Nokkuð hefur dregið úr þjófnuðum og innbrotum en á sama tíma fjölgar hraðakstursbrotum og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra fyrir júnímánuð. 18.7.2007 22:12
Íslensk erfðagreining finnur fyrsta erfðabreytileika fótaóeirðar Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa í samstarfi við Emory háskólann í Atlanta í Bandaríkjunum fundið fyrsta erfðabreytileikann sem tengist fótaóeirð. Fótaóeirð er algengur sjúkdómur og talið að 5 til 10 af hverjum hundrað einstaklingum á Vesturlöndum þjáist af honum. Uppgötvunin mun hjálpa til við að greina sjúkdómin og bæta meðferð gegn honum. 18.7.2007 21:50
Búið að slökkva sinueld við Skautahöllina Búið er að slökkva sinueld við Skautahöllina í Laugardal en um 40 til 50 fermetra gróðursvæði varð eldinum að bráð. Mikið hefur verið um útköll hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í kvöld vegna sinuelda. 18.7.2007 21:40
Sinubruni við Skautahöllina í Laugardal Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út fyrir skömmu til að slökkva sinuelda við Skautahöllina í Laugardal. Mikið hefur verið um sinuelda á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu vegna mikilla þurrka. 18.7.2007 20:57
Afkoma lundans slök í Eyjum Afkoma lundans hefur verið slök í Vestmannaeyjum undanfarin ár og finnst ekki tveggja ára fugl í eyjunum. Menn eru sammála um að ástand lundastofnsins sé alvarlegt en verið er að rannsaka hvers vegna stofninum hefur hrakað. 18.7.2007 19:43
Rúmlega 750 manns á biðlista eftir augasteinaaðgerð Rúmlega 750 manns bíða eftir að komast í augasteinaaðgerð á Landspítalanum. Eftirspurn eftir slíkum aðgerðum hefur margfaldast síðustu ár vegna hækkandi aldurs Íslendinga, segir settur yfirlæknir á augndeild spítalans. 18.7.2007 19:40
Glitnismálinu vísað frá dómi Glitnismálinu svokallaða var vísað frá dómi í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag, þar sem dómari úrskurðaði að saksóknari efnahagsbrota gæti ekki gefið út ákærur. 18.7.2007 19:39
Sífellt fleiri nýta sér hundahótel Færst hefur í vöxt að dýraeigendur nýti sér þjónustu sérstakra dýrahótela yfir sumartímann. Hótelstýra á hundahóteli segir marga dýraeigendur hrædda við að skilja dýrin sín eftir á hóteli í fyrsta skiptið, þótt dýrin sjálf séu yfirleitt nokkuð sátt. 18.7.2007 19:33
Skrumskæling að halda fram að húðkrabbamein sé ekki hættulegt Framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Krabbameinsfélags Íslands segir það skrumskælingu þegar því sé haldið fram að ekki sé hættulegt að fá húðkrabbamein, eins og haldið var fram í einu dagblaðanna í dag. Tæp tuttugu prósent karla sem fá sortuæxli látast af sjúkdómnum. 18.7.2007 19:29
Ekki sannfærður um að Lúkas sé á lífi Ekki eru allir sannfærðir um að hundurinn Lúkas sé enn á lífi þrátt fyrir sögusagnir þess efnis. Hilmar Trausti Harðarson, einn þeirra sem leitað hefur að Lúkasi undanfarna daga, segist efast um að það hafi verið Lúkas sem sást til ofan við Akureyri á mánudaginn. Hann segist ekki hafa hótað meintum banamanni Lúkasar barsmíðum. 18.7.2007 19:27