Geiri í Goldfinger braut ekki lög um nektardans 19. júlí 2007 15:22
Ásgeir Þór Davíðsson, betur þekktur sem Geiri í Goldfinger, var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness í dag af ákæru um að hafa staðið fyrir nektardanssýningu í lokuðu rými. Dansmey sem einnig var ákærð í málinu var líka sýknuð. Að mati dómsins þótti ekki sýnt að dansinn hafi farið fram í lokuðu rými líkt og bannað er samkvæmt lögreglusamþykkt. Fyrir dómi lá fyrir viðurkenning sakborninga að dansinn hafi farið fram í rými með fasta veggi á þrjár hliðar og tjald fyrir þeirri fjórðu. Hins vegar taldi Ásgeir ekki um lokað rými að ræða þar sem auðvelt væri að hafa eftirlit með því hvað fram færi inni í einkadansklefanum með því að svipta tjaldinu frá. Á þessa skýringu féllst dómarinn. Þá segir ennfremur í dómnum að skýra verði "lokað rými" þannig að miðað sé við að það tálmi ekki eftirlit lögreglu. Í þessu tilviki hafi verið auðvelt fyrir lögreglu að draga tjöldin frá einkadansklefanum og því hafi ekki verið um brot að ræða. Upphaflega voru tvær dansmeyjar ásamt Ásgeiri ákærðar í málinu en önnur þeirra er farin af landi brott. Var ríkissjóði gert að greiða tæpa hálfa milljón í málsvarnarlaun fyrir verjanda Ásgeirs og dansmeyjarinnar.
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Íslenskur maður lést í Úkraínu Innlent Þurfi að sannfæra flokkinn Innlent Fleiri fréttir Íslenskur maður lést í Úkraínu Nýársbarnið á Suðurlandi býr á Eyrarbakka Réttindalaus og keyrði á kyrrstæðan lögreglubíl Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Verðlækkanir á bensíni og áramótaheit landsmanna 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Sjá meira