Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Garðsláttur að næturlagi Lögregla var kölluð til í nótt þegar nokkrir íbúar í austurborginni gátu ekki fest svefn vegna hávaða frá garðsláttuvél. Hinn atorkusami slátturmaður slökkti samstundis á sláttuvélinni eftir tiltal frá lögregluþjónunum. Manninum var jafnframt bent á að framvegis ætti hann að haga verkum sem þessum með meira tilliti til annarra í huga. 7.6.2007 14:31
Yfir 80 börn í óviðunandi öryggisbúnaði Tæplega fjórtán prósent barna er ekið til leikskóla í óviðandi öryggisbúnaði samkvæmt könnun Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Sjóvaá Fornvarnarhúss og Umferðarstofu. Alls voru 86 börn í óviðunandi öryggisbúnaði og þar af 24 í alvarlegri lífshættu á meðan á akstri stóð. 7.6.2007 13:15
Kona dæmd fyrir líkamsárásir og eignaspjöll Kona á þrítugsaldri var á dögunum dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Vestfjarða fyrir líkamsárásir og eignaspjöll. Brotin áttu sér stað í félagsheimilinu í Hnífsdal aðfaranótt 13. apríl á síðasta ári. 7.6.2007 12:50
Þjálfa erlenda starfsmenn í umönnun aldraðra Hjúkrunarheimilið Droplaugarstaðir og Alþjóðahúsið undirbúa nú viðamikið samstarfsverkefni um þjálfun erlendra starfsmanna í umönnun aldraðra. Markmiðið er að fjölga starfsmönnum í öldrunarþjónustu. 7.6.2007 12:49
Kosið í nýjar nefndir Alþingis Kosningu í fastanefndir Alþingis lauk í dag þegar Arnbjörg Sveinsdóttir var kjörin formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður viðskiptanefndar og Pétur H Blöndal, formaður efnahags- og skattanefndar. 7.6.2007 12:46
Fundu dóp og sprautunálar á hreinsunardegi Dalvíkurskóla Nemendur Dalvíkurskóla fundu hass í sölupakkningum, hasspípur og sprautunálar á hreinsunardegi skólans síðastliðinn föstudag. Hassið fannst á opnu svæði í Dalvík þar sem börn eru mikið að leik. 7.6.2007 12:30
Íslenskar kýr njóta áfram hollrar útiveru Dönsku dýraverndarsamtökin gangast nú fyrir undirskriftasöfnun til að tryggja dönskum kúm að minnsta kosti 150 daga útivist á ári. Íslenskir bændur sammæltust nýverið um að íslenskar kýr fengju áfram að njóta útivistar og hollrar hreyfingar. 7.6.2007 12:30
Magnús Ragnarsson stefnir 365 Magnús Ragnarsson, fyrrverandi sjónvarpsstjóri Skjás Eins, hefur stefnt 365 miðlum fyrir meiðyrði og brot á friðhelgi einkalífsins. Að sögn lögmanns Magnúsar gerir hann kröfu um að ummæli sem birtust í DV síðastliðið haust og ummæli sem birtust í Fréttablaðinu í vetur verði dæmd dauð og ómerk. Ummælin vörðuðu einkalíf Magnúsar. 7.6.2007 12:27
Veggjald lagt á bensín á tæki sem ekki nota vegi Í athugun er að fella niður veggjald sem notað er á garðslátturvélar, vélsleða og sportbáta. Nú eru 30 krónur innheimtar af hverjum bensínlítra sem þessi tæki nota sem eins konar afnotagjald þessara tækja af vegakerfinu sem þau koma aldrei á. 7.6.2007 12:15
Orkuverð til álversins opinbert Samningur Orkuveitu Reykjavíkur við Norðurál vegna álvers í Helguvík er með hagstæðari samningum sem veitan hefur gert til álfyrirtækis, segir Björn Ingi Hrafnsson, varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur. Forstjóri Orkuveitunnar staðfestir að verðið sé nærri tveimur komma einni krónu á kílóvattstund. 7.6.2007 12:08
Hæstánægður með áframhaldandi fiskvinnslu á Flateyri Bæjarstjórinn á Ísafirði segist hæstánægður með nýja fyrirtækið, Oddatá sem keypt hefur allar fasteignir Kambs á Flateyri og hyggst hefja þar fiskvinnslu. Hann segir mikilvægt að menn leiti nýrra leiða til að viðhalda atvinnulífinu í litlum byggðarlögum og Ísafjarðarbær muni veita þeim allan þann stuðning sem til þurfi. 7.6.2007 12:04
Davíð með þriðjungi hærri laun en Geir Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, verður með rúmar 1,7 milljónir króna í laun frá og með næstu áramótum, eða sex hundruð þúsund króna hærri laun en forsætisráðherra. Formaður bankaráðs bankans skýrir síðustu launahækkanir bankastjóranna með harðri samkeppni um hæft starfsfólk. 7.6.2007 12:01
Njarðvíkingar mótmæla deiliskipulagi Fulltrúar íbúa í Innri-Njarðvík afhentu í gær bæjarstjórn í bænum undirskriftarlista gegn nýju deiliskipulagi bæjarins. Þar eru skipulögð fjögur háhýsi með 230 íbúðum á Brynjólfsreit svokölluðum. 7.6.2007 11:59
Bæjarstjórn Bolungarvíkur vill athugun á olíuhreinsistöð sem fyrst Bæjarstjórn Bolungarvíkur hefur sent frá sér ályktun um fyrirhugða olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. Þar er Fjórðungssamband Vestfirðinga hvatt til að hefja frumathugun á umhvervis-, og samfélagslegum áhrifum slíkrar stöðvar. 7.6.2007 11:21
Margir þröskuldar enn í vegi fyrir álveri í Helguvík Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, segir mjög marga þröskulda vera í vegi fyrir álveri í Hegluvík, þrátt fyrir orkusölusamning Orkuveitunnar og Norðuráls. Þetta kom fram í máli Þórunnar á Alþingi í morgun. 7.6.2007 10:44
Lisa Ekdahl hefði verið sókndjarfari gegn Tyson Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fær háðuglega útreið í sænskum fjölmiðlum eftir viðureignina í Stokkhólmi í gær, bæði hjá sænsku leikmönnunum og blaðamönnum. 7.6.2007 10:34
Hjallaskóli í Reykjavík Hjallastefnan mun taka við rekstri leikskólans Laufásborgar. Samningur þar að lútandi var samþykktur af Leikskólaráði borgarinnar í gær. Laufásborg verður þar með fyrsti Hjallaskólinn sem tekur til starfa í Reykjavík. 7.6.2007 10:18
Nýr leikskóli opnar í dag Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri mun formlega opna nýjan leikskóla við Sandavað 7 í Norðlingaholti í dag. Athöfnin hefst þegar borgarstjórinn klippir með leikskólabörnum á borða. 7.6.2007 10:09
Búið að slökkva eld í verslun Skífunnar við Laugaveg Eldur kviknaði í rafmagnstöflu í verslun Skífunnar við Laugaveg laust eftir klukkan tíu í kvöld. Greiðlega gekk að slökkva eldinn sem var lítill og staðbundinn að sögn slökkviliðsins. 6.6.2007 22:55
Slökkvilið kallað út að húsnæði Skífunnar á Laugavegi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út fyrir skömmu að húsnæði verslunarinnar Skífan á Laugavegi. Tilkynning barst um að reyk legði frá rafmagnstöflu í húsinu. 6.6.2007 22:30
Sumarbústaður brann til kaldra kola Eldur kviknaði í sumarbústað við Gufuá í Borgarfirði laust fyrir klukkan fimm í dag. Bústaðurinn varð fljótt alelda og brann til kaldra kola. Engan sakaði. 6.6.2007 22:11
Lögreglan lýsir eftir unglingi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Þorvaldi Erni Thoroddsen, 16 ára Reykvíkingi. Síðast sást til Þorvalds við heimili hans í Reykjavík í gær. 6.6.2007 21:47
Kviknaði í húsbíl í Grafarholti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út laust eftir klukkan fimm í dag eftir að eldur kviknaði í húsbíl í Grafarholtinu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en eldsupptök eru ókunn. 6.6.2007 21:44
Niðurlæging á Råsunda leikvanginum Leik Svíþjóðar og Íslands í undankeppni EM var að ljúka og er óhætt að segja að íslenska landsliðið hafi verið niðurlægt af frændum okkur frá Svíþjóð. Svíar unnu 5-0 stórsigur og ljóst að eitthvað róttækt þarf að gerast til að snúa við gengi íslenska liðsins. 6.6.2007 20:26
Laun seðlabankastjóra hafa hækkað um 25 prósent síðan 2005 Hörð samkeppni um hæft starfsfólk á meðal fjármálastofnana réð því að bankaráð Seðlabankans ákvað að hækka laun bankastjóra. Þetta kemur fram í skriflegu svari Helga S. Guðmundssonar, formanns bankaráðs Seðlabankans, við fyrirspurn fréttastofu Stöðvar 2. Frá ársbyrjun 2005 hafa laun bankastjóra Seðlabankans hækkað um 25 prósent. 6.6.2007 20:15
Sakar DV um að hafa beitt sér á óeðlilegan hátt Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að fara þurfi yfir lög um fjármál stjórnmálaflokka sem sett voru í fyrra. Formaður Framsóknarflokksins sakaði á Alþingi í dag fyrirtæki og einkaaðila um að hafa beitt sér á óeðlilegan hátt í nýafstaðinni kosningabaráttu. 6.6.2007 19:24
Fiskvinnsla áfram á Flateyri Fiskvinnsla verður áfram á Flateyri þrátt fyrir sölu fiskvinnslufyrirtækisins Kambs. Fyrirtækið Oddatá hefur keypt allar fasteignir og tæki Kambs og ætlar að viðhalda vinnslu í byggðarlaginu. Fyrirtækið á engan kvóta en forstjórinn er þó bjartsýnn á framtíð þess. 6.6.2007 19:19
3-0 í hálfleik Fyrri hálfleik í leik Svía og Íslendinga í undankeppni EM var að ljúka og er staðan 3-0. Marcus Allback skoraði fyrsta markið áður en Svenson og Mellberg náðu að koma boltanum framhjá Árna Gauti í marki Íslendinga. 6.6.2007 19:04
Grafalvarlegt að tilkynna ekki um aukaverkanir til Lyfjastofnunar Lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun segir það grafalvarlegt að læknar tilkynni ekki aukaverkanir vegna getnaðarvarnarpillunnar Yasmín, til stofnunarinnar. Tvær ungar íslenskar stúlkur hafa nýlega fengið blóðtappa vegna pillunnar með skömmu millibili og hvorugt tilfellanna var tilkynnt Lyfjastofnun. 6.6.2007 18:54
70% af Öryrkjablokkinni með hitastillingu Á undanförnum árum hafa að minnsta kosti þrír látist vegna brunasára sem þeir hlutu hér á landi af of heitu vatni. Sextugur öryrki er í lífshættu eftir brennheita sturtu í blokk Öryrkjabandalagsins við Hátún. Búið er að setja hitastýrð blöndunartæki í sjötíu prósent af íbúðum blokkarinnar. 6.6.2007 18:45
Ríkislögreglustjóri braut ekki gegn jafnræðisreglu í Baugsmálinu Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, braut ekki gegn jafnræðisreglu við meðferð ákæruvalds í sakamáli á hendur Jóhannesi Jónssyni, kaupmanni. Þetta er niðurstaða athugunar Boga Nilsson, ríkissaksóknara, á málinu. Jóhannes hélt því fram að hann hafi ekki setið við sama borð og Jón Gerald Sullenberg í þeim hluta Baugsmálsins er snerist um tollalagabrot. 6.6.2007 17:53
Þorsteinn Ingi Sigfússon verður forstjóri Nýsköpunarmistöðvar Íslands Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor, hefur verið ráðinn forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands samkvæmt tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu. Þorsteinn mun hefja störf strax í næstu viku en stofnunin tekur til starfa 1. ágúst næstkomandi þegar Iðntæknistofnun og Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins sameinast. 6.6.2007 17:40
Skammt í að leikur Íslendinga og Svía hefjist Skammt er þangað til leikur Íslendinga og Svía í riðlakeppni Evrópumeistaramótsins í knattspyrnu hefst í Stokkhólmi. Góð stemning er meðal stuðningsmanna íslenska landsliðsins þrátt fyrir að sparksérfræðingar telji möguleika Íslands frekar litla. 6.6.2007 17:13
„Markmiðið er að viðhalda atvinnu á þessari fallegu eyri“ Kristján Erlingsson, forsvarsmaður Oddatáar sem keypt hefur allar fasteignir og tæki Kambs á Flateyri segir að aðalmarkmiðið með kaupunum sé að tryggja atvinnu á Flateyri. Hann segir mikla óvissu enn vera ríkjandi í málinu en er bjartsýnn á dæmið gangi upp. Kristján segir það ráðast á næstu vikum hvort allir fyrrum starfsmenn Kambs fái vinni í nýja fyrirtækinu. 6.6.2007 17:07
Eldsneytisverð hækkar Skeljungur og N1 hækkaðu verð á eldsneyti í dag. Hjá báðum aðilum námu hækkanirnar um 1,70 krónum fyrir bensínlítrann og 1,50 krónur fyrir lítra af díselolíu. 6.6.2007 17:00
Menningarhátíð Seltjarnarness kynnt Menningarhátíð Seltjarnarness stendur yfir dagana 8 - 10 júní. Hún ber yfirskriftina Seltjarnarnesið, sjórinn og útgerð. Dagskráin verður fjölbreytt og má þar nefna ljósmyndasýningu í bókasafni Seltjarnarness sem ber heitið Systir með sjóhatt. 6.6.2007 16:49
Bað þingmenn um setjast og hafa þögn við upphaf fundar Sturla Böðvarsson, nýkjörinn forseti Alþingis, beindi þeim tilmælum til þingmanna að mæta á réttum tíma og sitja hljóðir í sætum sínum í þingsal. Þessi orð lét hann falla við upphaf þingfundar í dag. 6.6.2007 16:27
Tveir ungir piltar syntu í land eftir að hafa kastast af sæþotu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðaði tvo 16 ára pilta sem köstuðust af sæþotu um hálf tólfleytið í gærkvöld. Þeir voru staddir á Arnarnesvogi um 50 metra frá landi. Nokkur straumur var á þessu svæði sem bar sæþotuna fljótt frá piltunum. 6.6.2007 16:12
Rausnargjöf til Krabbameinsfélagsins Krabbameinsfélagi Íslands barst ómetanleg gjöf 19. maí síðastliðinn þegar fjölskylda Jóhönnu Jóreiðar Þorgeirsdóttur færði félaginu stórgjöf til minningar um hana. Jóhanna lést 21. apríl 2006. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Krabbameinsfélaginu. 6.6.2007 16:11
Grundarfjörður vill kvótann fyrr Bæjarstjórn Grundarfjarðar hefur sent sjávarútvegsráðuneytinu tillögu um að kvóta verði úthlutað fyrr á árinu. 6.6.2007 15:51
Rannsókna- og fræðasetur í Bolungarvík Samningur hefur verið undirritaður um nýtt Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum sem mun taka til starfa í Bolungarvík innan tíðar. Það eru Háskóli Íslands, Náttúrustofa Vestfjarða og Bolungarvíkurkaupstaður sem standa að setrinu. 6.6.2007 15:46
Flugfélög taka gjald fyrir golfsett Flugfélögin SAS og Icelandair eru farin að taka sérstakt gjald fyrir golfsett í ferðum kylfinga á milli landa. Þetta kemur fram á vefnum kylfingur.is. SAS tekur 1.500 kr. fyrir settið i styttri ferðum innan Evrópu en 3.500 kr. í lengri ferðum. Hjá Icelandair er hægt að skrá sig í klúbbinn Icelandair golfers. 6.6.2007 14:44
Tvær nefndir sameinaðar og þeirri þriðju skipt upp Landbúnaðarnefnd og sjávarútvegsnefnd Alþingis voru sameinaðar með lagasetningu á Alþingi í dag. Þá hefur efnahags- og viðskiptanefnd verið skipt í tvennt. 6.6.2007 14:03
Vill fara yfir lög um fjármál stjórnmálaflokka Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði á Alþingi í dag að fara þyrfti yfir lög um fjármála stjórnmálaflokka sem sett voru í fyrra í kjölfar nýafstaðinna kosninga. Það var Guðni Ágústsson sem kvaddi sér hljóðs um störf þingsins við upphaf þingfundar og gerði kosningablað DV og auglýsingu Jóhannesar Jónssonar í Bónus að umtalsefni. 6.6.2007 14:01
Oddatá kaupir eignir Kambs og hyggst starfa á Flatey Oddatá, sem er að mestum hluta í eigu og undir stjórn Kristjáns Erlingssonar, hefur keypt allar fasteignir og tæki Kambs á Flateyri með það fyrir augum að halda áfram vinnslu í byggðarlaginu. Eins og kunugt er ákváð eigandi Kambs fyrir skemmstu að selja eignir sínar og misstu 120 manns vinnu við það. 6.6.2007 13:57