Fleiri fréttir Fer gaumgæfilega yfir húsnæðismál ríkisins Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir skýrslu Viðskiptaráðs Íslands um hagkvæmni af sölu á fasteignum ríkisins afar athyglisverða. Hann segir að farið verið gaumgæfilega yfir niðurstöður skýrslunnar. Breytingar verði þó ekki gerðar á skömmum tíma eða umhugsunarlaust. Auk þess myndu þær kalla á breytingar á fjárlögum. 23.4.2007 12:18 Margir sektaðir fyrir hraðakstur Alls voru 44 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í síðustu viku. Þá voru fjórir sektaðir fyrir að tala í síma í akstri án þess að nota handfrjálsan búnað. 23.4.2007 12:16 Veitingahúsalisti ekki verið birtur Samtök ferðaþjónustunnar hafa ekki ákveðið hvort þau ætli að bregðast við könnun Neytendastofu sem sýndi að meirihluti veitingahúsa hafa ekki lækkað hjá sér verð eftir fyrsta mars. Neytendastofa hefur ekki birt lista yfir þau veitingahús sem lækkuðu. 23.4.2007 12:15 Íslenskt þjóðfélag undir smásjánni Íslensk þjóðfélagsfræði verður viðfangsefni ráðstefnugesta á Akureyri 27. til 28. apríl næstkomandi. Á ráðstefnunni verða kynntar margvíslegar rannsóknir á íslensku þjóðfélagi frá sjónarhóli félagsfræði, mannfræði, stjórnmálafræði og skyldra greina. 23.4.2007 11:50 Lyfjaverð í Evrópu næst hæst á Íslandi Lyfjaverð á Íslandi er það næst hæsta á evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt nýútkominni könnun Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Af þeim 33 löndum sem könnunin náði til var lyfjaverð aðeins hærra í Sviss. 23.4.2007 11:07 Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson fluttur til Þýskalands Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson, skip Samherja, verður fluttur út til Þýskalands í sumar og mun framvegis gera út frá Cuxhaven. Um 26 menn eru í áhöfn skipsins og hefur flestum þeirra nú þegar verið boðin önnur vinna hjá fyrirtækinu. 23.4.2007 10:40 Fimm lífeyrissjóðir sameinast Stjórnir fimm lífeyrissjóða hafa undirritað viljayfirlýsingu um að sameina sjóðina. Landsbanki Íslands mun sjá um rekstur sjóðanna ef af sameiningu verður en sjóðsfélagar verða um sex þúsund talsins. 23.4.2007 10:12 Rannsókn á afleiðingum tekjutengingar ellilífeyris Afleiðingar þess að afnema tekjutengingu ellilífeyris og bóta til öryrkja eru skoðaðar í nýrri rannsókn Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem kynnt er í dag. Hún ber heitið "Framleiðnimæling og ávinningur af aukinni atvinnuþátttöku eldri borgara og öryrkja." Í rannsókninni er gerð greining á starfsmannaskorti í atvinnulífinu, með sérstakri áherslu á verslun. Einnig eru hugsanlegar lausnir skoðaðar. 23.4.2007 09:54 Segir Steingrím J. forhertan Steingrímur J. Sigfússon er forhertur stuðningsmaður landbúnaðarstefnu sem á stóran þátt í uppblæstri og gróðureyðingu. Þetta sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, í harðri gagnrýni á formann Vinstri grænna í Silfri Egils í dag, og sagði Steingrím auk þess slá skjaldborg um okurvexti og okurverð. 22.4.2007 19:15 Íslensku þýðingaverðlaunin afhent á morgun Íslensku þýðingaverðlaunin verða afhent í þriðja sinn á morgun en sex þýðendur eru tilnefndir fyrir verk sín. Afhendingin fer að venju fram á Gljúfrasteini og mun forseti Íslands afhenda verðlaunin sem nema 400 þúsund krónum. 22.4.2007 19:12 Á þriðja tug kólumbískra flóttamanna til landsins Á þriðja tug flóttamanna kemur hingað til lands í sumar frá Kólumbíu. Ákveðið var að taka á móti flóttamönnum þaðan vegna góðrar reynslu á móttöku þeirra hér á landi en svipaður fjöldi kom til Íslands frá Kólumbíu árið 2005. 22.4.2007 19:07 Svikin loforð rót vandans Sviðsstjóri geðdeilda Landspítalans segir rúmlega fimmtíu sjúklinga bíða inn á deildum spítalans eftir viðvarandi búsetuúrræðum. Vegna þeirra komast ekki aðrir sjúklingar að inn á geðdeildir spítalans því þær séu ætíð yfirfullar. Hún segir svikin loforð stjórnvalda við geðsjúka varðandi búsetuúrræði rót vandans. 22.4.2007 19:05 Kaupviðræður hefjast á morgun Samningaviðræður Reykjavíkurborgar um kaup á lóðunum tveimur þar sem húsin í miðborginni brunnu síðastliðinn miðvikudag hefjast á morgun. Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður vill að fimmtíu til sextíu hæða glerhýsi verði byggt á lóðinni. 22.4.2007 18:55 Lagði bílnum upp á stein Ökumaður í Öskjuhlíðinni í Reykjavík í dag virðist ekki hafa tekið eftir því að búið var að loka veginum sem liggur um hlíðina með steini og áfastri keðju. Keyrði hann því beint á steininn með þeim afleiðingum að bíllinn fór upp á steininn og sat þar fastur. 22.4.2007 18:52 Andstaða við flugvöll á Hólmsheiði Borgaryfirvöld mega búast við harðri andstöðu gegn flugvelli á Hólmsheiði frá íbúum Grafarholts. Hver einasti íbúi hverfisins, sem Stöð tvö innti álits í dag, lýsti sig andvígan hugmyndinni. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar hefur sömuleiðis miklar efasemdir um flugvöllinn en hann yrði að stórum hluta í umdæmi Mosfellsbæjar. 22.4.2007 18:42 Krían er komin Krían er komin. Frá þessu greinir vefur fuglaáhugamanna á Hornafirði. 22.4.2007 18:19
Sjá næstu 50 fréttir
Fer gaumgæfilega yfir húsnæðismál ríkisins Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir skýrslu Viðskiptaráðs Íslands um hagkvæmni af sölu á fasteignum ríkisins afar athyglisverða. Hann segir að farið verið gaumgæfilega yfir niðurstöður skýrslunnar. Breytingar verði þó ekki gerðar á skömmum tíma eða umhugsunarlaust. Auk þess myndu þær kalla á breytingar á fjárlögum. 23.4.2007 12:18
Margir sektaðir fyrir hraðakstur Alls voru 44 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í síðustu viku. Þá voru fjórir sektaðir fyrir að tala í síma í akstri án þess að nota handfrjálsan búnað. 23.4.2007 12:16
Veitingahúsalisti ekki verið birtur Samtök ferðaþjónustunnar hafa ekki ákveðið hvort þau ætli að bregðast við könnun Neytendastofu sem sýndi að meirihluti veitingahúsa hafa ekki lækkað hjá sér verð eftir fyrsta mars. Neytendastofa hefur ekki birt lista yfir þau veitingahús sem lækkuðu. 23.4.2007 12:15
Íslenskt þjóðfélag undir smásjánni Íslensk þjóðfélagsfræði verður viðfangsefni ráðstefnugesta á Akureyri 27. til 28. apríl næstkomandi. Á ráðstefnunni verða kynntar margvíslegar rannsóknir á íslensku þjóðfélagi frá sjónarhóli félagsfræði, mannfræði, stjórnmálafræði og skyldra greina. 23.4.2007 11:50
Lyfjaverð í Evrópu næst hæst á Íslandi Lyfjaverð á Íslandi er það næst hæsta á evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt nýútkominni könnun Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Af þeim 33 löndum sem könnunin náði til var lyfjaverð aðeins hærra í Sviss. 23.4.2007 11:07
Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson fluttur til Þýskalands Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson, skip Samherja, verður fluttur út til Þýskalands í sumar og mun framvegis gera út frá Cuxhaven. Um 26 menn eru í áhöfn skipsins og hefur flestum þeirra nú þegar verið boðin önnur vinna hjá fyrirtækinu. 23.4.2007 10:40
Fimm lífeyrissjóðir sameinast Stjórnir fimm lífeyrissjóða hafa undirritað viljayfirlýsingu um að sameina sjóðina. Landsbanki Íslands mun sjá um rekstur sjóðanna ef af sameiningu verður en sjóðsfélagar verða um sex þúsund talsins. 23.4.2007 10:12
Rannsókn á afleiðingum tekjutengingar ellilífeyris Afleiðingar þess að afnema tekjutengingu ellilífeyris og bóta til öryrkja eru skoðaðar í nýrri rannsókn Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem kynnt er í dag. Hún ber heitið "Framleiðnimæling og ávinningur af aukinni atvinnuþátttöku eldri borgara og öryrkja." Í rannsókninni er gerð greining á starfsmannaskorti í atvinnulífinu, með sérstakri áherslu á verslun. Einnig eru hugsanlegar lausnir skoðaðar. 23.4.2007 09:54
Segir Steingrím J. forhertan Steingrímur J. Sigfússon er forhertur stuðningsmaður landbúnaðarstefnu sem á stóran þátt í uppblæstri og gróðureyðingu. Þetta sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, í harðri gagnrýni á formann Vinstri grænna í Silfri Egils í dag, og sagði Steingrím auk þess slá skjaldborg um okurvexti og okurverð. 22.4.2007 19:15
Íslensku þýðingaverðlaunin afhent á morgun Íslensku þýðingaverðlaunin verða afhent í þriðja sinn á morgun en sex þýðendur eru tilnefndir fyrir verk sín. Afhendingin fer að venju fram á Gljúfrasteini og mun forseti Íslands afhenda verðlaunin sem nema 400 þúsund krónum. 22.4.2007 19:12
Á þriðja tug kólumbískra flóttamanna til landsins Á þriðja tug flóttamanna kemur hingað til lands í sumar frá Kólumbíu. Ákveðið var að taka á móti flóttamönnum þaðan vegna góðrar reynslu á móttöku þeirra hér á landi en svipaður fjöldi kom til Íslands frá Kólumbíu árið 2005. 22.4.2007 19:07
Svikin loforð rót vandans Sviðsstjóri geðdeilda Landspítalans segir rúmlega fimmtíu sjúklinga bíða inn á deildum spítalans eftir viðvarandi búsetuúrræðum. Vegna þeirra komast ekki aðrir sjúklingar að inn á geðdeildir spítalans því þær séu ætíð yfirfullar. Hún segir svikin loforð stjórnvalda við geðsjúka varðandi búsetuúrræði rót vandans. 22.4.2007 19:05
Kaupviðræður hefjast á morgun Samningaviðræður Reykjavíkurborgar um kaup á lóðunum tveimur þar sem húsin í miðborginni brunnu síðastliðinn miðvikudag hefjast á morgun. Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður vill að fimmtíu til sextíu hæða glerhýsi verði byggt á lóðinni. 22.4.2007 18:55
Lagði bílnum upp á stein Ökumaður í Öskjuhlíðinni í Reykjavík í dag virðist ekki hafa tekið eftir því að búið var að loka veginum sem liggur um hlíðina með steini og áfastri keðju. Keyrði hann því beint á steininn með þeim afleiðingum að bíllinn fór upp á steininn og sat þar fastur. 22.4.2007 18:52
Andstaða við flugvöll á Hólmsheiði Borgaryfirvöld mega búast við harðri andstöðu gegn flugvelli á Hólmsheiði frá íbúum Grafarholts. Hver einasti íbúi hverfisins, sem Stöð tvö innti álits í dag, lýsti sig andvígan hugmyndinni. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar hefur sömuleiðis miklar efasemdir um flugvöllinn en hann yrði að stórum hluta í umdæmi Mosfellsbæjar. 22.4.2007 18:42
Listi Íslandshreyfingarinnar í Norðaustukjördæmi ákveðinn Hörður Ingólfsson, markaðsráðgjafi á Akureyri, mun skipa fyrsta sæti á lista Íslandshreyfingarinnar - lifandi lands í Norðausturkjördæmi. Búið er að raða á lista framboðsins í kjördæminu. 22.4.2007 17:43
Garðar á toppinn í Bretlandi Plata Garðars Cortes er kominn í fyrsta sæti sígildra platna í Bretlandi, en listinn verður birtur á morgun. Sjaldgæft er að frumraun klassísks söngvari nái jafn góðum árangri. 22.4.2007 16:04
Ók á grindverk Karlmaður á tvítugsaldri slasaðist lítillega í Keflavík í dag þegar hann missti stjórn á móturhjóli með þeim afleiðingum að hann keyrði á grindverk. 22.4.2007 15:34
Framsókn og Samfylking tapa fylgi í Suðurkjördæmi Framsóknarflokkurinn tapar einum þingmanni og Samfylkingin tveimur í Suðurkjördæmi samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkissjónvarpið og Morgunblaðið í kjördæminu. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig tveimur þingmönnum. 22.4.2007 14:36
Lögreglan verst frétta Ekkert hefur enn komið út úr rannsókn lögreglu á eldsupptökum í miðbæ Reykjavíkur síðastliðinn miðvikudag og verst lögregla allra frétta í málinu. 22.4.2007 13:00
Ríkisstjórnin eykur þingmeirihluta sinn Ríkisstjórnin heldur velli og stjórnarflokkarnir auka þingmeirihluta sinn, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag. Saman fengju þeir 36 þingmenn, tveimur fleiri en í síðustu þingkosningum. Hvorki Frjálslyndir né Íslandshreyfingin næðu inn mönnum á þing, samkvæmt könnuninni. 22.4.2007 12:00
Allir helstu þjóðvegir færir Allir helstu þjóðvegir landins eru færir samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Hálka er á heiðum á Vestfjörðum og hálkublettir víða á Norðausturlandi. Ófært er um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar. 22.4.2007 11:15
Nægur snjór í Hlíðarfjalli Opið verður í Hlíðarfjalli á Akureyri í dag frá klukkan tíu til fimm. Nægur snjór er á svæðinu og allar brautir opnar. 22.4.2007 10:44
Orri Vigfússon hlýtur Goldman umhverfisverðlaunin Orri Vigfússon, formaður formaður verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF), hlýtur Goldman umhverfisverðlaunin í ár. Verðlaunin fær Orri fyrir baráttu sína fyrir verndun laxastofnsins í Norður Atlantshafi. Í tilkynningu frá Goldman stofnuninni segir að áratuga baráttu Orra hafi komið í veg fyrir útrýmingu laxastofnsins í Norður Atlantshafi. 22.4.2007 09:54
Slasaðist þegar hann féll af torfæruhjóli Karlmaður á fimmtugsaldri slasaðist þegar hann féll af torfæruhjóli á Suðurlandsvegi við Sandskeið laust eftir klukkan fjögur í dag. 21.4.2007 19:52
Harður árekstur á Reykjanesbraut Harður árekstur varð milli tveggja fólksbíla á Reykjanesbraut við Vífilstaðaveg um sjöleytið í kvöld. Enginn slasaðist í árekstrinum en takmarka þurfti umferð um svæðið tímabundið. 21.4.2007 19:43
Mikil eftirspurn eftir lóðum við höfnina hjá Fjarðaráli Mikið eftirspurn er eftir lóðum við höfnina hjá Fjarðaráli á Reyðarfirði. Á aðra milljón tonna af vörum verða flutt um höfnina á hverju ári, sem gerir hana að annarri stærstu höfn landsins á eftir Faxaflóahöfnum. 21.4.2007 19:05
Kokkakeppni grunnskólanna í Reykjavík haldin í dag Fyrsta kokkakeppni grunnskólanna í Reykjavík var haldin í dag. Sigurvegarar hennar eru í 10. bekk og elduðu innbakaðan íslenskan lax með peru og eplamauki. Markmið keppninnar er að vekja áhuga grunnskólabarna á matreiðslu. 21.4.2007 18:55
Geðdeild yfirfull og sjúkrarými alltof fá Yfirlæknir á geðdeild Landspítalans segir aðstæður þunglyndissjúklings í sjálfsvígshugleiðingum sem nýlegar var vistaður inn á salerni deildarinnar fyrir neðan allar hellur og algjörlega ómannsæmandi. Deildin hafi verið yfirfull og ekki hægt að vísa manninum annað því hann hafi verið talinn í bráðri lífshættu. 21.4.2007 18:28
Höggmyndasýning í húsagarði í Árbæ Höggmyndasýning var opnuð í dag í garði einbýlishúss í Árbæjarhverfi í Reykjavík. Sýningin er meðal annars hugsuð fyrir göngufólk á leið um Elliðaárdal enda stendur garðurinn við einn göngustíginn. 21.4.2007 18:10
Dekk fór undan eldsneytisbíl Litlu munaði að stórslys yrði í gær þegar dekk fór undan tengivagni við eldsneytisbíl á leið að Keflavíkurflugvelli. 21.4.2007 17:54
Óskaði eftir að gista fangageymslu Lögreglan á Selfossi stöðvaði fimm ökumenn fyrir ölvunarakstur í nótt og einn í morgun. Einn þeirra sem var stöðvaður óskaði eftir að gista fangageymslu þar sem hann hafði ekki í önnur hús að venda eftir að búið var að taka bílinn af honum. 21.4.2007 17:06
Hnífaárás í Þorlákshöfn Karlmaður á þrítugsaldri var fluttur á sjúkrahús Selfoss í hádeginu í dag eftir hann var stunginn í handlegginn með hníf í Þorlákshöfn. Einn maður hefur verið handtekinn í tengslum við málið en það er enn í rannsókn. Maðurinn sem varð fyrir árásinna er ekki alvarlega slasaður. 21.4.2007 16:53
Jónína Bjartmarz nær ekki inn Framsóknarflokkurinn nær ekki inn manni í Reykjavíkurkjördæmi suður samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkissjónvarpið og Morgunblaðið. Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir bæta við sig þingmanni. 21.4.2007 14:57
Lögregla stöðvar ökuferð tveggja unglinga Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í morgun ökuferð tveggja unglingspilta í Breiðholtinu. Drengirnir, sem eru á 15. og 16. aldursári, voru að sögn lögreglunnar í annarlegu ástandi. 21.4.2007 14:19
Vilja að sveitarfélögin leggi 100 milljónir í betra gólf Öll körfuboltalið landsins í efstu deild karla og kvenna skulu leika á parketgólfi en ekki dúk, frá og með keppnistímabilinu 2008 til 2009 samkvæmt tillögum sem liggja fyrir ársþing Körfuknattleikssambands Íslands. Talið er að heildarkostnaður vegna þessa sé um 100 milljónir króna og mun hann falla á sveitarfélögin. 21.4.2007 13:21
Mikil fjölgun farþega um Egilsstaðaflugvöll Farþegum sem fara um Egilsstaðaflugvöll hefur fjölgað um 150 prósent á undanförnum fjórum árum. Fyrstu þrjá mánuði þessa árs hefur fjölgunin verið 17 prósent. Hafnar eru framkvæmdir við stækkun flugstöðvarinnar á flugvellinum. 21.4.2007 13:11
Borgin vill kaupa húsin sem brunnu Borgaryfirvöld hafa ákveðið að hefja viðræður við eigendur húsanna tveggja sem brunnu síðastliðinn miðvikudag í miðbæ Reykjavíkur um kaup á lóðunum tveimur í þeim tilgangi að hefja uppbyggingu þar sem fyrst. Samningaviðræður hefjast í næstu viku. 21.4.2007 12:56
Allt að tólf milljón króna tjón í bruna Talið er að það tjón sem varð þegar kviknaði í þjónustuhúsi Golfklúbbs Reykjavíkur í Grafarholti í nótt nemi allt að tólf milljónum króna. Að sögn framkvæmdastjóri klúbbsins var búið að leggja mikla fjármuni í húsið sem nú er talið nánast gjörónýtt. 21.4.2007 12:00
Gæsluþyrla sækir slasaðan bónda í Skáleyjar Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, var kölluð út í Skáleyjar á Breiðafirði í gærkvöldi vegna 75 ára gamals manns sem hafði fallið í stórgrýti og slasast. 21.4.2007 11:50
20 milljóna bónus ef tekst að flýta Tröllatunguvegi Vegagerðin hefur gengið frá verksamningi við lægstbjóðanda, Ingileif Jónsson ehf., um Tröllatunguveg, sem styttir leiðina milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um fjörutíu kílómetra. Verktakanum býðst að fá tuttugu milljóna króna bónus, takist honum að koma bundnu slitlagi á veginn fyrir 1. september á næsta ári. 21.4.2007 11:46
Missti stjórn á bílnum og hafnaði út í sjó Ökumaður á Djúpavogi missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af veginum og hafnaði út í sjó. Þegar lögregluna bar að garði var ökumaðurinn á bak og burt. Grunur leikur á að um ölvunarakstur hafi verið að ræða. 21.4.2007 11:06
Landeigendur vilja svör frá ráðherra Landssamtök landeigenda hafa óskað eftir fundi með fjármálaráðherra til að ítreka kröfu sína að lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda verði breytt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. 21.4.2007 10:16
Grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna Tveir ökumenn voru handteknir í Keflavík í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefni. Tekið var blóðsýni úr þeim báðum. 21.4.2007 09:49