Veitingahúsalisti ekki verið birtur 23. apríl 2007 12:15
Samtök ferðaþjónustunnar hafa ekki ákveðið hvort þau ætli að bregðast við könnun Neytendastofu sem sýndi að meirihluti veitingahúsa hafa ekki lækkað hjá sér verð eftir fyrsta mars. Neytendastofa hefur ekki birt lista yfir þau veitingahús sem lækkuðu. Neytendastofa birti niðurstöður sínar í síðustu viku. Í ljós kom að 54% þeirra veitingahúsa sem könnunin náði til hafa ekki lækkað verð eftir að virðisaukaskattur á matvæli lækkaði þann fyrsta mars. Könnunin náði til 84 veitingahúsa sem er brot af þeim veitingastöðum sem starfrækt eru á landinu. Tryggvi Axelsson forstjóri Neytendastofu sagði í síðustu viku að til greina kæmi að birta jákvæðan lista - yfir þau veitingahús sem lækkuðu. Enginn listi hefur verið birtur og Tryggvi sagði í samtali við fréttastofu nú í morgun að ekki hefði enn verið ákvörðun um hvort eða hvernig Neytendastofu ætlar að vinna úr þessum upplýsingum. Á annað hundrað helstu veitingahúsa landsins eru innan vébanda Samtaka ferðaþjónustunnar. Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna, sagði í morgun að engin ákvörðun hefði verið tekin um að óska eftir listanum frá Neytendastofu. Samkvæmt hennar upplýsingum hefðu félagsmenn samtakanna almennt lækkað verð. Hins vegar væri verðlagning veitingahúsa ekki einfalt mál, menn skiptu sumir um rétti eftir árstíðum og verðbreytingar á veitingahúsum væru mjög hægfara - enda dýrt að prenta nýja matseðla.
Fréttir Innlent Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira