Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
SA með hugmyndir að samkomulagi Samtök atvinnulífsins hafa mótað hugmyndir að samkomulagi um lausn á aðsteðjandi vanda á vinnumarkaði vegna verðbólgu og væntanlegrar endurskoðunar kjarasamninga á hinum almenna vinnumarkmaði í nóvember. Verkalýðshreyfingin er nú að fara yfir hugmyndirnar sem mótaðar voru eftir óformlegar viðræður ýmissa forystumanna verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins. 2.6.2006 10:00
15 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot Hæstiréttur dæmdi í gær karlmann í 15 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot. Hann var ákærður fyrir að hafa haft samræði við konu í samkvæmi á meðan hún gat ekki spyrnt á móti sökum ölvunar og svefndrunga. 2.6.2006 09:45
D og V ræðast við í Mosfellsbæ Sjálfstæðismenn og Vinstri grænir hófu í gærkvöldi viðræður um myndun meirihluta í bæjarstjórn Mosfellsbæjar eftir að Framsóknarmenn slitu í gær viðræðum við Vinstri græna og Samfylkingu. 2.6.2006 09:30
Fíknefni fundust í fjórum bílum Lögreglan í Reykjavík fann fíkniefni í fjórum bílum, sem stöðvaðir voru vegna eftirlits í nótt. Lögreglumenn nutu aðstoðar fíkniefnahunds við leit í bílunum. 2.6.2006 09:00
Sérstakt eftirlit með aftanívögnum Lögreglumenn á Suðvesturlandi ætla að hafa sérstakt eftirlit með hvers kyns aftanívögnum nú um hvítasunnuhelgina, en ákveðnar reglur gilda um vagnana og bílana, sem draga þá. Þetta nær til hjólhýsa, tjaldvagna, hestaflutningavagna, flutningakerra sem notaðar eru til aðdráttar í sumarbústaðina, og bátavagna. Eigendur slíkra tækja geta leitað upplýsinga um reglur á heimasíðu Umferðarstofu, svo rétt verði staðilð að málum. 2.6.2006 08:30
Ökumaður mótorhjóls dæmur fyrir landspjöll Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt ökumann mótorhjóls til að borga 25.000 króna sekt fyrir utanvegaakstur í Helgafellssveit í fyrrasumar, þar sem hann olli landspjöllum. Nú er sá árstími sem gróðurþekja er hvað viðkvæmust þar sem frost er að far úr jörðu og víða er mikill raki. Vegagerðin minnir ökumenn á að leggja ekki í ferðir á vafasömum vegslóðum, því oftar en ekki enda slíkar slark ferðir með utanvegaakstri. 2.6.2006 08:15
Enginn lax veiddist í Norðurá í gær Engin lax veiddist í Norðurá í gær, þegar veiðitímabílið hófst þar og stjórnarmenn í Stangveiðifélagi Reykjavíkur reyndu þar fyrir sér. Menn eru þó síður en svo svartsýnir á framhaldið, enda var áin óvenju vatnsmikil, köld og gruggug í gær. Veiðin fer nú að hefjast í einni ánni af annarri og þrátt fyrir að veiðileyfin hafi sumstaðar verið hækkuð nokkuð á milli ára, mun nú þegar vera orðið erfitt að fá veiðileyfi í sumar. 2.6.2006 08:04
Skrefi nær álveri Forstjóri Century Aluminum er sannfærður um að bygging álvers í Helguvík verði að veruleika árið 2010 enda sé nánast búið að tryggja þá orku sem til þarf. 2.6.2006 08:00
Dæmdar 220 þúsund krónur Maður hefur verið dæmdur til að greiða öðrum ríflega 220 þúsund krónur í miskabætur og 120 þúsund í málskostnað vegna líkamsárásar. Farið hafði verið fram á tæpar 780 þúsund krónur. 2.6.2006 07:15
Best fyrir norðan og austan Veðurstofan spáir sunnanátt næstu daga og nokkuð góðu ferðaveðri um hvítasunnuhelgina. Veðrið verður best fyrir norðan og austan en þar verður hlýtt og hiti um 18 gráður. Á Suður- og Vesturlandi verður kaldara og nokkur væta en rigningin mun aukast á sunnudag. 2.6.2006 07:15
80 kjörseðlar á glámbekk Fréttablaðið hefur undir höndum 80 ónotaða kjörseðla til þess að greiða atkvæði utan kjörfundar. Hverjum seðli fylgja tvö umslög og fylgiseðill svo sem lög gera ráð fyrir. 2.6.2006 07:15
Nauðgunardómur þyngdur Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í Hæstarétti fyrir nauðgun. Einn dómaranna skilaði sératkvæði. Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa í samkvæmi á Akranesi haft kynmök við stúlku sem ekki gat spornað við því sökum ölvunar og svefndrunga. 2.6.2006 07:00
Gera kröfu um ógildingu úrskurðar Hópur einstaklinga krefst þess að úrskurðir vegna umhverfismats Norðlingaölduveitu verði ógiltir, vegna mikilla annmarka. Lögmaður sagði tengsl forstjóra skipulagsstjóra við einn þeirra sem kom að matsskýrslu, óviðeigandi. 2.6.2006 07:00
Olís segir tölurnar rangar Félag íslenskra bifreiðaeigenda segir tölur Olíuverslunar Íslands, Olís, um tæplega hundrað milljóna kostnaðarauka vegna olíugjaldsins ýta undir málstað þeirra. FÍB telur olíufélögin bæta sér upp herta samkeppni á díselmarkaði og lægri álagningu með hærri álagningu á bensínið. 2.6.2006 06:45
Kemur að rekstri Vikunnar Fróði hefur ráðið Mikael Torfason, fyrrverandi ritstjóra DV, sem ritstjóra blaðsins Séð og heyrt. Hann fær einnig það verkefni að koma að rekstri Vikunnar næstu mánuði. Ritstjórum blaðanna Séð og heyrt og Vikunnar var sagt upp fyrir mánaðamót og ritstjórnarfulltrúa Séð og heyrt sömuleiðis. 2.6.2006 06:30
Þingið annist rannsókn hlerunargagna Stjórnarandstæðingar gagnrýndu ráðherra á Alþingi í gær fyrir að hafa ekki samráð við þingið og þingflokksformenn allra flokka um skipan nefndar sem heimilað verður að rannsaka gögn er varða öryggi þjóðarinnar. 2.6.2006 06:30
Verður verndari UNIFEM í tvö ár Ásdís Halla Bragadóttir, forstjóri Byko, hefur tekið að sér hlutverk verndara UNIFEM, þróunarsjóðs Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna, á Íslandi. Í því felst meðal annars að koma fram fyrir hönd félagsins og vekja almenning til vitundar um starfsemina. 2.6.2006 06:15
Sex mánuðir fyrir skjalafals Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær konu í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir margþætt skjalafals. Ákæruliðir sem voru níu talsins vörðuðu fölsun á undirskriftum á skuldabréfum, víxlum og fleiru upp á ríflega 7,2 milljónir króna. 2.6.2006 06:15
Vilja frekari sameiningu slökkviliða Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna samþykkti ályktun um öryggismál á þingi sínu sem haldið var nýverið. Þar segir meðal annars að sameina þurfi slökkviliðin á Suðvesturlandi í eitt öflugt björgunarlið. 2.6.2006 06:15
Ákærður fyrir líkamsárás Maður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir árás á leigubílstjóra og að hafa valdið honum líkamsmeiðingum. Málið hefur verið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. 2.6.2006 06:15
Jón Baldvin ráðinn kennari Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi sendiherra og ráðherra, hefur verið ráðinn stundakennari við Viðskiptaháskólann á Bifröst. Hann mun ásamt Eiríki Bergmann Einarssyni kenna námskeiðið Ísland í evrópsku samstarfi, sem kennt verður í nýju meistaranámi í Evrópufræðum, sem skólinn býður upp á í fyrsta sinn á Íslandi. 2.6.2006 06:00
Framsókn sleit viðræðunum Framsóknarflokkurinn sleit í gær formlegum meirihlutaviðræðum sínum, Samfylkingar og Vinstri grænna í Mosfellsbæ. Ástæðan er sögð vera að tillaga framsóknarmanna um jafna skiptingu embætta og nefndarsæta hafi ekki hlotið hljómgrunn. 2.6.2006 06:00
Mál skýrast innan fárra daga Útlit er fyrir að Samfylkingin, Framsóknarflokkur og Vinstri hreyfingin - grænt framboð myndi meirihluta í bæjarstjórn Mosfellsbæjar. Sjálfstæðisflokkurinn var í meirihluta fyrir sveitarstjórnarkosningar hinn 27. maí síðastliðinn en Sjálfstæðisflokkurinn fékk rúm 47 prósent í kosningum, en árið 2002 fékk flokkurinn rúm 52 prósent atkvæða. 2.6.2006 05:45
Rætt um skiptingu embætta Gert var ráð fyrir að meirihlutamyndun sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í Árborg myndi skýrast eftir samningafund flokkanna í gærkvöld. Ellert Tómasson, kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins, taldi í gær að þá myndi liggja fyrir hvort af meirihlutamyndun yrði eða ekki. 2.6.2006 05:45
Myndavélar sjá um gæsluna Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, segir öryggisgæslu við hafnir í Reykjavík ekki hafa slaknað þó að mönnuð sólarhringsgæsla við kaupskip við Vogabakka, Ártúnshöfða, Korngarð og vesturhöfn í Reykjavík hafi verið hætt hinn 28. mars síðastliðinn. 2.6.2006 05:45
Neysla fólks dregst saman Gengisfall krónunnar og neikvæð umræða um íslensk efnahagsmál hafa valdið samdrætti í innflutningi á bílum og almennum neysluvörum. 2.6.2006 05:45
Sektuð og svipt ökuleyfinu Kona var fundin sek um ölvunarakstur fyrir Héraðsdómi Vesturlands í gær og var henni gert að greiða tæpar 300 þúsund krónur í sekt auk þess sem hún missir ökuréttindi sín í þrjú ár. 2.6.2006 05:30
119 milljónir króna í umferð Seðlabanki Íslands hefur veitt frest til 1. júní 2007 til að innleysa gamla 10, 50 og 100 króna seðla. Að þeim fresti liðnum verða seðlarnir ekki lengur gjaldgengir í viðskiptum. 2.6.2006 05:30
Fréttablaðið sýknað af kröfum Jónínu Hæstiréttur staðfesti í gær sýknudóm héraðsdóms yfir 365 prentmiðlum og Kára Jónassyni, ritstjóra Fréttablaðsins. Ekki gengið of nærri einkalífi Jónínu, segir Hæstiréttur. Afar óheppileg niðurstaða, segir lögmaður Jónínu. 2.6.2006 05:30
Vilja aðgang að kjörgögnum Fulltrúar Þjóðarhreyfingarinnar ætla í dag að leggja fram kæru vegna framkvæmdar atkvæðagreiðslu utan kjörfundar í kosningunum í Reykjavík síðastliðinn laugardag. 2.6.2006 05:15
Gæslan eyddi hvalshræi Lagt var í leiðangur í vikunni eftir að Landhelgisgæslunni hafði borist tilkynning um að hvalshræ væri á reki við Gróttu. Kom í ljós að þarna var á ferð 6 metra löng hrefna sem skapaði hættu fyrir smærri báta. Einnig var hætta á að hræið ræki á fjörur þar sem rotnun með tilheyrandi ólykt gæti orðið til ama. 2.6.2006 05:15
Boða fund í miðstjórninni Landstjórn Framsóknarflokksins fundaði í gærkvöld og samþykkti að boða fund í miðstjórn flokksins á föstudaginn eftir rétta viku. Á miðstjórnarfundinum mun gengi flokksins í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum verða rætt. 2.6.2006 05:00
K-listi og D-listi áfram saman Sjálfstæðisflokkurinn og K-listinn í Sandgerði undirrituðu samning um áframhaldandi meirihlutasamstarf í bæjarstjórn á miðvikudag. Sigurður Valur Ásbjarnarson, efsti maður Sjálfstæðisflokks mun áfram gegna starfi bæjarstjóra og Óskar Gunnarsson, oddviti K-listans, verður forseti bæjarstjórnar. 2.6.2006 05:00
Konur í þremur efstu sætum N-listinn hlaut meirihluta atkvæða í Garði en aðeins tveir flokkar buðu fram að þessu sinni.Á N-listanum eru níu konur og fimm karlmenn, þar af eru konur í þremur efstu sætunum. Oddný G. Harðardóttir, oddviti N-listans, segir að ekki hafi verið erfitt að virkja konurnar. 2.6.2006 05:00
Með tvö verkefni í sigtinu Alnæmissamtökin á Íslandi hafa fengið fjárstyrk frá Kaupangi en fyrirtækið hefur áður veitt slíka styrki. Alnæmissamtökin hafa tvö verkefni í sigtinu og er áætlað að nota styrkinn í annað hvort þeirra. Annars vegar er um að ræða fræðslufundi og forvarnir til nemenda í níunda og tíunda bekk grunnskóla en það verður í þriðja skiptið sem þeir verða haldnir. 2.6.2006 05:00
44,4 milljóna króna sekt fyrir skattsvik Tveir forsvarsmenn byggingarfélags voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdir í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu tuttugu og tveggja komma tveggja milljóna hvor í sekt fyrir að standa ekki skil á virðisaukaskatti og opinberum gjöldum. 1.6.2006 23:30
Fimmtán mánaða fangelsi fyrir nauðgun Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot. Hann var ákærður fyrir að hafa haft samræði við konu í samkvæmi á meðan hún gat ekki spyrnt á móti sökum ölvunar og svefndrunga. 1.6.2006 23:00
Segir laun ungra lækna hafa hækkað langmest Læknanemar á fjórða og fimmta ári mættu ekki til vinnu sinnar á Landspítalanum í dag til þess að mótmæla því sem þeir kalla kjaraskerðingu af hálfu stjórnenda spítalans. Lækningaforstjórinn segir hins vegar að laun ungra lækna hafi hækkað langmest í nýgerðum kjarasamningum. 1.6.2006 22:30
Segir ríkisstjórnina þurfa bregðast við Jón Gunnarsson, alþingismaður, vill að ríkisstjórn Íslands beiti sér fyrir því að Bandaríkjaher fari ekki með heilsufarsupplýsingar starfsmanna varnarliðsins úr landi. Það sé réttur þeirra starfsmanna sem þar hafa unnið og hafa notið læknisaðstoðar hersins. 1.6.2006 22:17
Slitnað upp úr meirihlutaviðræðum í Mosfellsbæ Slitnað hefur upp úr meirihlutaviðræðum Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar og Vinstri - grænna í Mosfellsbæ. Þær hófust eftir að ljóst var að Sjálfstæðisflokkurinn hafði tapað hreinum meirihluta sínum í kosningunum á laugardag. 1.6.2006 22:04
Hættir að vera öryrki í augum hins opinbera Öryrkjar fá allt að fjórðungskauplækkun í afmælisgjöf þegar þeir ná eftirlaunaaldri. Á sextíu og sjö ára afmælisdaginn hættir öryrkinn að vera öryrki í augum hins opinbera og má þá sætta sig við tugþúsunda kauplækkun. 1.6.2006 18:45
Læknanemar mættu ekki til vinnu vegna kjaraskerðingar Læknanemar á fjórða og fimmta ári mættu ekki til vinnu sinnar á Landspítalanum í dag til þess að mótmæla því sem þeir kalla kjaraskerðingu. 1.6.2006 18:45
Lagðir inn vegna tölvuleikjanotkunar Dæmi eru um að ungir drengir séu lagðir inn á geðdeild vegna gegndarlausrar tölvuleikjanotkunar. Yfirlæknir á barna- og unglingageðdeild segir mikla tölvuleikjanotkun algenga hjá unglingum sem koma í meðferð. 1.6.2006 18:11
Viðræður í Mosfellsbæ í óvissu Viðræður um myndun nýs meirihluta í Mosfellsbæ milli Framsóknarflokks, Samfylkingarinnar og Vinstri - grænna eru í mikilli óvissu eftir að framsóknarmenn slitu formlegum viðræðum í dag. Einhverjar þreifingar eiga sér þó stað og ræðst það að öllum líkindum í kvöld eða morgun hvort að samstarfinu verður. 1.6.2006 17:30
Réttindabót samkynhneigðra Guðrún Ögmundsdóttir segir lög um réttarstöðu samkynhneigðra, sem að öllum líkindum verða samþykkt eftir helgi, vera réttarbót sem líkja má við þegar konur fengu sín grundvallarmannréttindi. Með lögunum er verið að eyða öllum ójöfnuði í lögum er varða samkynhneigða. Enn vantar þó að heimila trúfélögum að gefa saman samkynhneigða. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, lagði fram breytingartillögu þessa efnis en dró hana til baka í gær. 1.6.2006 17:15