Skrefi nær álveri 2. júní 2006 08:00 Frá undirritun yfirlýsingarinnar Mikil bjartsýni um framhaldið ríkti bæði hjá forstjóri Century Aluminum, Logan W. Kruger og ekki síður hjá Árna Sigfússyni, bæjarstjóra, enda mun álverið skapa fleiri hundruð störf.Mynd/víkurfréttir
Frumniðurstöður úr umhverfismati eru jákvæðar og góðar líkur eru á að við fáum þá orku sem til þarf svo ég er afar bjartsýnn og sannfærður um að hér rísi okkar næsta álver, sagði Logan W. Kruger, forstjóri Century Aluminum, móðurfyrirtækis Norðuráls, sem vill reisa 150 þúsund tonna álver í Helguvík árið 2010 og stækka það í 250 þúsund tonna álver þegar fram líða stundir. Í gær var undirrituð viljayfirlýsing milli Norðuráls annars vegar og Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur hins vegar um raforkusölu til fyrsta áfanga fyrirhugaðs álvers í Helguvík en það hefur hingað til verið einn mesti þrándur í götu þessa verkefnis. Hafði Orkuveitan áður hafnað aðild að málinu en með frekari rannsóknum og borunum þykir nú sýnt að fyrirtækið geti mögulega afgreitt allt að hundrað megawöttum fyrir fyrsta áfanga álversins að fjórum árum liðnum. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, ítrekar þó að um viljayfirlýsingu sé að ræða og í henni felist engin skuldbinding. Hitaveita Suðurnesja hefði annars ekki getað afgreitt þá orku sem á þarf að halda til að taka fyrsta áfanga álversins í notkun á þeim tíma sem um er rætt. Að því leyti er um mikilvægt skref að ræða. Þetta er ekki skuldbindandi yfirlýsing heldur aðeins ákvörðun um að fara í ákveðin verkefni til að reyna að verða við beiðnum um orku en við getum ekki ábyrgst afhendingu og erum ekki að skuldbinda okkur á nokkurn hátt. Fyrirhugað álver Norðuráls í Helguvík Nú eru öll púsl að smella saman og líkurnar á að 150 þúsund tonna álver verði að veruleika í Helguvík árið 2010 mjög góðar að mati framkvæmdaraðila. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, sagði að með yfirlýsingunni væri mestu hindruninni við byggingu álvers rutt úr vegi. Ríkisstjórnin hefur sagt að þetta sé sá þrándur sem þurft hafi að ryðja úr vegi en hér eru menn að finna lausn á því. Hvað Norðurál varðar hafa þeir verið að bíða þess að þetta liggi fyrir og að gengið verði frá umhverfismati. En þeir hafa sagt og lýst yfir að að uppfylltum þessum skilyrðum séu þeir reiðubúnir og ég dreg ekki í efa að það sé rétt. Forstjóri Century Aluminum segir að fyrirtækið muni gæta þess að bygging álversins reynist efnahagskerfi landsins ekki erfið. Við erum að horfa til uppbyggingar þessa álvers eins og annarra slíkra í litlum skrefum svo áhrifin á efnahagskerfi landsins verði minniháttar. Við byrjum á að byggja 150 þúsund tonna álver og stækkum það svo í áföngum þegar fram líða stundir svo að afkastagetan verði 250 þúsund tonn á síðari stigum.
Innlent Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira