Réttindabót samkynhneigðra 1. júní 2006 17:15 Guðrún Ögmundsdóttir
Guðrún Ögmundsdóttir segir lög um réttarstöðu samkynhneigðra, sem að öllum líkindum verða samþykkt eftir helgi, vera réttarbót sem líkja má við þegar konur fengu sín grundvallarmannréttindi. Með lögunum er verið að eyða öllum ójöfnuði í lögum er varða samkynhneigða. Annarri umræðu um frumvarpið líkur í dag og verður það síðan lagt fyrir þingið strax eftir helgi. Með því er verið að eyða öllum ójöfnuði í lögum er varða samkynhneigða. Guðrún Ögmundsdóttir hefur barist lengi fyrir réttindum samkynhneigðra og hún var að vonum glöð í dag. Hún hyggst leggja fram breytingartillögu við frumvarpið í haust sem gefur trúfélögum heimild til að gefa saman samkynhneigða. Hún vonast þó til að kirkjan verði fyrri til. Í upphafi þingfundar í gær kynnti Sigurjón Þórðarson tillögu sína að breytingum á frumvarpi um réttindi samkynhneigðra. Breytingartillaga fól einmitt í sér að forystumönnum trúfélaga yrði heimilt að staðfesta samvist samkynhneigðra para. Seinna í gær dró Sigurjón hins vegar breytingartillöguna til baka. Ástæðuna segir hann að Samtökunum '78 hafi borist upplýsingar um að ef tillögunni væri haldið til streitu myndi þingmeirihlutinn halda frumvarpinu utan dagskrár. Sigurjón segir að þingmeirihlutinn hafi ekki þorað að taka afstöðu til þess hvort trúfélögum skyldi gefin þessi heimild með lögum. Sigurjón segir þessi vinnubrögð of oft viðhöfð til að svæfa mál í störfum alþingis. Frumvörp séu lögð fram með miklum hvelli en síðan komist mál ekki á dagskrá. Stjórnarmeirihlutinn hafi komið þeim skilaboðum áleiðis að slík yrðu örlög frumvarpsins ef þingmennirnir þyrftu að greiða atkvæði með eða á móti breytingartillögunni. Þetta atriði sé viðkvæmt sérstaklega þar sem stærsta trúfélag landsins standi gegn því.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta er innrás“ Innlent Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Innlent Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Innlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Innlent Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Erlent Mínútuþögn á Menningarnótt Innlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent Segist vilja komast til himna Erlent Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Hamarsvirkjun í bið frekar en vernd Gæsluvarðhald leiðbeinandans framlengt Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Höfuðpaur fær þremur mánuðum lengri dóm en burðardýr Veðrið sem hlaupararnir á laugardag geta búist við „Þetta er innrás“ Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Óbreyttir stýrisvextir, samræmd námspróf og breytt snið á Menningarnótt Kjósa um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar í september Enginn handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Mínútuþögn á Menningarnótt Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf „Það er engin sleggja“ Slökktu eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Ísland frumstætt samanborið við Noreg Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór „Á farsælum þrettán ára ferli hef ég bara heyrt af þessu tvívegis“ Ekkert bendi til tengsla milli bankastuldsins og Gufunesmálsins Tilkynnt um par að slást Norskir kafarar og dularfullur hraðbankaþjófnaður Líkið ekki innan um aðra sjúklinga Norsku kafararnir mættir í Haukadalsá Ekki allt sem sýnist varðandi launin Húsleit á heimili þekkts brotamanns Sjá meira