Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Setuverkfall á dvalarheimilum Á morgun miðvikud 29. mars hefst seturverkfall hjá ófaglærðum starfsmönnum sem starfa hjá Hrafnistu í Reykjavík, Hrafnistu Hafnarfirði, Vífilsstöðum, Víðinesi, dvalarheimilunum: Grund, Ás í Hveragerði, Sunnuhlíð og Skógarbæ. 28.3.2006 17:28
Telur ekki heppilegt að afnema samræmda gjaldskrá leigubíla Samgönguráðherra telur ekki heppilegt að afnema samræmda gjaldskrá leigubifreiða í samræmi við úrskurð Samkeppniseftirlitsins og segist hafa gert eftirlitinu grein fyrir því. Andstaða kom fram við breytingar hjá þingmönnum á Alþingi í dag. 28.3.2006 17:22
Veikur sjómaður fluttur til Akureyrar Sif, björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, sótti fyrir stundu veikan sjómann í norskt selveiðiskip norður af Eyjafirði. Hann var fluttur til aðhlynningar á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. 28.3.2006 16:52
Enn versnandi veður á Suðvesturlandi Enn er versnandi veður á Suðvesturlandi og inni á öræfum landsins. Ekki er búist við að storminn lægi fyrr en á morgun. 28.3.2006 16:49
Actavis kaupir rúmenskt lyfjafyrirtæki Actavis tilkynnti í dag um kaup á rúmenska lyfjafyrirtækinu Sindan, sem er sagt leiðandi samheitalyfjafyrirtæki í Evrópu hvað varðar sölu á krabbameinslyfjum. Kaupverðið er 12,8 milljarðar íslenskra króna og greitt með reiðufé. 28.3.2006 16:45
Hvassviðri slotað Eitthvað hefur hvassviðrinu slotað víða um land en aftakaveður var í Öræfum og á Skeiðarársandi fyrr í dag en þá fór þá vindhraðinn upp í 50 m/s í hviðum. 28.3.2006 16:30
Mál á hendur olíufélögum væntanlega þingfest fljótlega Mál Reykjavíkurborgar á hendur stóru olíufélögunum þremur, vegna meints ólögmæts samráðs þeirra, verður væntanlega þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í lok næstu viku. Þetta segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður sem fer með málið fyrir hönd borgarinnar. 28.3.2006 16:15
Fyrrverandi ritstjóri Hér og nú sakfelldur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag ummæli, sem höfð voru um Bubba Morthens, í blaðinu Hér og nú, dauð og ómerk. Fyrrverandi ritstjóra blaðsins er gert að greiða Bubba 700 þúsund krónur í bætur auk hálfrar milljónar í málskostnað. 365 - prentmiðlar, útgefendur blaðsins, eru sýknaðir af kröfum Bubba. 28.3.2006 15:13
Fannst látinn Maðurinn sem leitað hefur verið að í dag fannst á þriðja tímanum í dag í bifreiðs sinni í grennd við Flúðir. Víðtæk leit var gerð að manninum sem var 22 ára. 28.3.2006 15:10
Beðið átekta varðandi björgunarflug Sif, björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, er á Akureyri en henni tókst að lenda þar um kl. 13:18 en hún var á leið að sækja fárveikan sjómann um borð í norskt selveiðiskip. Þyrlan lenti fyrst á Dalvík vegna lélegs skyggnis en þegar vélin hafði verið þar í um tvær mínútur rofaði til og henni tókst að komast inn til Akureyrar. Áhöfn Sifjar bíður nú eftir ákvörðun um framhaldið en ráðgert er að meta stöðuna kl. 16. 28.3.2006 14:57
Vilja að dómstólar fjalli um umhverfismat vegna Norðlingaölduveitu Áhugahópur um verndun Þjórsárvera hefur stefnt íslenska ríkinu, Skipulagsstofnun og Landsvirkjun og vill að dómstólar skeri úr um það hvort umhverfismat vegna Norðlingaölduveitu hafi verið rétt. Hópurinn hyggst hefja fjársöfnun vegna málarekstrarins þar sem lögum um gjafsókn í tilvikum sem þessum hefur verið breytt. 28.3.2006 14:00
Tvísýnt með björgunaraðgerðir fyrir norðan land Tvísýnt er með björgunaraðgerðir Landhelgisgæslunnar fyrir norðan land þar sem sækja á fárveikan mann um borð í norskt selveiðiskip. Fokkervél Landhelgisgæslunnar og TF SIF lögðu af stað í björgunarleiðangur frá Reykjavík um ellefuleytið í morgun eftir að beiðni barst um aðstoð þar sem skipið var statt í hafís 190 sjómílur norður af Skaga. 28.3.2006 13:25
Sækja fársjúkann mann í norskt selveiðiskip Fokkervél Landhelgisgæslunnar og TF LÍF, minni þyrla Gæslunnar, lögðu af stað frá Reykjavík fyrir rúmri klukkustund til móts við norskt selveiðiskip, en þar er fársjúkur maður um borð. Tvær þyrlur varnarliðsins eru einnig í viðbragðsstöðu ef á þarf að halda. 28.3.2006 12:45
Aftakaveður á Suðausturlandi Aftakaveður er í vindhviðum í Öræfum og á Skeiðarársandi þar sem vindhraðinn hefur farið upp í 50 metra á sekúndu í hviðum. Nokkrir bílar hafa skemmst í sand- og malarfoki á Skeiðarársandi í morgun. 28.3.2006 12:30
Farið að tilmælum umboðsmanns í langflestum tilvikum Farið hefur verið að tilmælum Umboðsmanns Alþingis í langflestum tilvikum innan stjórnsýslunnar. Þetta sýna tölur í skýrslum Umboðsmanns Alþingis undanfarin ár. 28.3.2006 12:19
Samnýting grunnneta möguleg hjá Símanum og Orkuveitunni Síminn og Orkuveita Reykjavíkur hafa um nokkurt skeið átt í viðræðum um samnýtingu á grunnnetum fyrirtækjanna. Verið að skoða hvort mögulegt verði að leita samlegðaráhrifa við rekstur netanna tveggja til hagsbóta fyrir viðskiptavini segir í Yfirlýsingu frá Símanum. 28.3.2006 12:19
Brynja Guðmundsdóttir ráðin forstöðumaður hagdeildar Alfesca Brynja Guðmundsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður hagdeildar Alfesca. Brynja, sem er 39 ára, brautskráðist af endurskoðunarsviði Viðskiptadeildar Háskóla Íslands 1991 og hefur víðtæka reynslu af ábyrgðarstörfum tengdum fjármálum fyrirtækja. 28.3.2006 12:02
Óveður í Öræfum og á Skeiðarársandi Varað við óveðri í Öræfum og á Skeiðarársandi þar sem bílar hafa skemmst í sandfoki. Víða er hríðarveður á Vestfjörðum og er ófært um Klettsháls og Eyrarfjall í Ísafjarðardjúpi. Á Norðurlandi eru helstu leiðir opnar. Þó er ófært um Þverárfjall. Búið er að opna Breiðdalsheiði en Öxi er ófær. 28.3.2006 11:46
VG andvígir hlutafélagavæðingu Rarik Þingmenn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hafa lagt fram frávísunartillögu á frumvarp iðnaðarráðherra Valgerðar Sverrisdóttur um hlutafélagavæðingu Rafmagnsveitna ríkisins sem nú er til afgreiðslu á Alþingi. Vinstri Grænir segja að verið sé að setja Rarik í sama feril og Landssímann. Verið sé að undirbúa einkavæðingu og sölu fyrirtækisins. 28.3.2006 11:40
Stormur á Suðausturlandi Viðvörun frá Veðurstofu Íslands. Búist er við stormi á Suðausturlandi og Miðhálendinu. Annars verður snjókoma eða él víða á landinu, en úrkomulítið suðvestanlands. Heldur hægari og éljagangur með morgninum, en bjart með köflum syðra. Hiti í kringum frostmark. 28.3.2006 11:01
Standard & Poor's veitir Glitni A- í lánshæfismat Standard & Poor’s lánshæfismatsfyrirtækið tilkynnti í dag um lánshæfismat Glitnis. Langtímaskuldbindingar eru metnar A- og skammtímaskuldbindingar A-2. Horfur í mati Standard & Poor’s eru stöðugar. 28.3.2006 10:58
Bíósýningar, goðafræði og gamlir jeppar á frímerkjum Íslandspóstur gefur út þrjár frímerkjaraðir á morgun. Myndefnin á þeirri fyrstu tengjast bíósýningum og kvikmyndagerð á Íslandi. Smáörk kemur út í samnorrænu röðinni Goðafræði og er þetta er í annað sinn sem Norðurlöndin gefa út frímerki sameiginlega um þetta efni. 28.3.2006 10:38
Eigendaskipti á ökutækjum geta nú farið fram á netinu Tækninni fleygir fram og það er með ólíkindum hvað hægt er að spara sér sporin með hjálp tölvunnar og netsins. Það nýjasta er að hægt er að skrá eigendaskipti á ökutækjum með hjálp heimabanka og sleppa við ferð til Umferðarstofu. 28.3.2006 10:31
Bæjarráð Vestmanneyjabæjar hafnar kröfu Inga Sigurðssonar Bæjarráð Vestmanneyjabæjar ákvað á fundi sínum í gærkvöldi að hafna kröfu Inga Sigurðssonar, fyrrverandi bæjarstjóra, um greiðslu ríflega tuttugu og sex milljóna króna vegna meintra vanefnda á ráðningarsamningi hans. 28.3.2006 10:29
Einfalda þarf umræðuna um evruna Einfalda á umræðuna um evruna og einskorða hana við leiðir sem ganga upp, sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra á fundi í Háskólanum í Reykjavík í gær. Á fundinum fjallaði forsætisráðherra um íslenska fjármálamarkaðinn. 28.3.2006 10:25
Eigendaskipti ökutækja skráð með hjálp heimabankans Tækninni fleygir fram og það er með ólíkindum hvað hægt er að spara sér sporin með hjálp tölvunnar og netsins. Það nýjasta er að hægt er að skrá eigendaskipti á ökutækjum með hjálp heimabanka og sleppa við ferð til Umferðarstofu. 27.3.2006 22:26
Hætt við að selja Orkla Media Norska fyrirtækjasamsteypan Orkla er hætt við að selja fjölmiðlafyrirtæki sitt, Orkla Media. Frá þessu var greint í norrænum fjölmiðlum um helgina. Dagsbrún, móðurfélag 365 prent- og ljósvakamiðla, hafði meðal annarra lýst yfir áhuga á hugsanlegum kaupum í fyrirtækinu. 27.3.2006 22:23
Hátt í tvö þúsund sæti í boði SAS hóf í dag áætlunarflug milli Keflavíkur og Oslóar og lenti flugvél SAS á Keflavíkurflugvelli klukkan rúmlega fimm í dag. SAS hyggst fljúga reglulega til Íslands fram í októbermánuð en í boði eru í kringum eitt þúsund og níu hundruð flugsæti. 27.3.2006 22:18
Einfalda þarf umræðu um evruna Einfalda á umræðuna um evruna og einskorða hana við leiðir sem ganga upp, sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra á fundi í Háskólanum í Reykjavík í dag. Á fundinum fjallaði forsætisráðherra um íslenska fjármálamarkaðinn. 27.3.2006 22:00
Kröfu fyrrverandi bæjarstjóra hafnað Bæjarráð Vestmanneyjabæjar ákvað á fundi sínum í kvöld að hafna kröfu Inga Sigurðssonar, fyrrverandi bæjarstjóra, um greiðslu ríflega tuttugu og sex milljóna króna vegna meintra vanefnda á ráðningarsamningi hans. Ingi segist bíða formlegs svars áður en ákvörðun um málsókn verði tekin. 27.3.2006 21:15
Öll flugmálastjórn sameinuð undir Flugmálastjórn Íslands Starfsemi Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli verður færð undir Flugmálastjórn Íslands, við brottför hersins frá Keflavíkurflugvelli. Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli hefur heyrt undir utanríkisráðuneytið en með breytingunni mun hún heyra undir Flugmálastjórn Íslands. 27.3.2006 20:06
Nýsköpunarmiðstöð Íslands Byggðastofnun, Iðntæknistofnun og Rannsóknarstofnun iðnaðarins heyra brátt sögunni til samkvæmt áætlunum iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Allt sem viðkemur nýsköpun og atvinnuþróun verður sameinað undir einn hatt í glænýrri Nýsköpunarmiðstöð Íslands, -sem fundinn hefur verið staður á Sauðárkróki. 27.3.2006 20:00
Mikil verðmunur á flugi Það getur munað rúmlega 25 þúsund krónum á verði flugmiða í áætlunarflugi til Lundúna og til baka, eftir því hvaða flugfélag er valið. Gæði flugsins útskýra ekki þennan verðmun. 27.3.2006 19:45
Íslensk hlutabréf hækkuðu í dag Íslensk hlutabréf hækkuðu talsvert í dag og gengi krónunnar styrktist um rúmt prósent. 27.3.2006 19:30
Maður á sjötugsaldri numinn á brott Maður á sjötugsaldri var numinn brott af heimili sínu í Garðinum af fjórum mönnum á laugardagskvöld. Mennirnir stungu honum í farangursgeymslu bifreiðar, létu hann dúsa þar í sjö klukkustundir og gengu í skrokk á honum. Lögregla fer með málið sem mannrán. 27.3.2006 18:46
Enn óvitað um norrænt lyfjasamstarf Bóluefni gegn fuglaflensu er hvergi til í heiminum í dag. Ekki liggur fyrir hvort norrænt samstarf verður um lyfjaverksmiðju en það ætti að koma í ljós um mánaðarmótin. Ef ekki þarf að kaupa tryggingu um að fá lyfið hjá lyfjaframleiðendum ef flensan verður að heimsfaraldri. 27.3.2006 18:45
Ávísanir á undanhaldi Það er nánast liðin tíð að Íslendingar skrifi út ávísanir fyrir vörur og þjónustu og dæmi eru um að verslanir og fyrirtæki taki ekki við þeim. 27.3.2006 18:45
Lést í sprengingu við Kárahnjúka 27 ára íslenskur karlmaður lét lífið rétt austan við Kárahnjúka í morgun. Sprengihleðsla sprakk og kom af stað grjóthruni í aðgöngum fjögur við Desjarárstíflu. Oddur Friðriksson, yfritrúnaðarmaður á staðnum, segir samstarfsmenn mannsins harmi slegna en hugur þeirra sé hjá aðstandendum. 27.3.2006 18:36
Sýni tekin úr 1700 fuglum Tekin verða sýni úr 1700 fuglum víða um land til þess að fylgjast með því hvort og hvenær fuglaflensan kemur til landsins. Þetta kom fram í fyrirlestri Jarles Reiersens, dýralækni alifuglasjúkdóma, í Háskóla Íslands í dag. 27.3.2006 18:00
Krefur Vestmannaeyjabæ um 26 milljónir vegna starfsloka Fyrrverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum krefur bæinn um rúmar 26 milljónir króna vegna meintra vanefnda á ráðningarsamningi hans. Bænum hefur borist bréf þessa efnis og það verður tekið fyrir á bæjarráðsfundi síðar í dag. 27.3.2006 17:45
Forðaði ráðherra sér úr ráðherrastólnum vegna álits Umboðsmanns? Magnús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda flokknum, segir fyrrverandi félagsmálaráðherra hafa forðað sér úr ráðherrastólnum til að þurfa ekki að svara fyrir ráðningu sína á ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag. 27.3.2006 17:45
Bóluefnin virka tæpast Dr. Isabelle Bonmarin, farsóttafræðingur við Heilbrigðiseftirlitsstofnun Frakklands segir bóluefni sem verið er að þróa gegn veirunni eins og hún er í dag muni hafa lítið sem ekkert gagn ef til þess kemur að veiran stökkbreytist þannig að hún smitist milli manna. 27.3.2006 17:35
Sekt fyrir að stefna ungmennum í hættu Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt forsvarsmann verktakafyrirtækis til að greiða 90 þúsund krónur í sekt fyrir brot á lögum og reglum um öryggi á vinnustöðum við uppsetningu vinnupalla vegna framkvæmda. 27.3.2006 17:30
Sóttu uppsagnarbréfin í dag Íslenskir stafsmenn Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli sóttu margir í dag uppsagnarbréf sín. Formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja vonast til að það skýrist sem fyrst hvaða starfsmenn halda störfum sínum. 27.3.2006 17:21
Sameinast í Nýsköpunarmiðstöð Íslands Byggðastofnun, Iðntæknistofnun og Rannsóknarstofnun iðnaðarins verða sameinaðar í nýja miðstöð, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, ef frumvarp iðnaðarráðherra nær fram að ganga. Tilgangur þessarra breytinga er að sögn iðnaðarráðherra að bæta stuðningskerfi ríkisiins gagnvart atvinnulífinu. 27.3.2006 16:51