Kröfu fyrrverandi bæjarstjóra hafnað 27. mars 2006 21:15 Ingi Sigurðsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. MYND/Sigurður Bogi Sævarsson
Bæjarráð Vestmanneyjabæjar ákvað á fundi sínum í kvöld að hafna kröfu Inga Sigurðssonar, fyrrverandi bæjarstjóra, um greiðslu ríflega tuttugu og sex milljóna króna vegna meintra vanefnda á ráðningarsamningi hans. Ingi segist bíða formlegs svars áður en ákvörðun um málsókn verði tekin. Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri, sagði í samtali við NFS að bréf Inga um málið hefði verið tekið fyrir á fundinum og kröfu Inga hefði verið hafnað með öllum greiddum atkvæðum. Ingi var ráðinn bæjarstjóri í Vestmannaeyjum eftir sveitarstjórnarkosningarnar 2002 af meirihluta sjálfstæðismanna og framsóknarmanna. Hins vegar slitnaði upp úr því samstarfi um ári síðar og var Inga þá sagt upp störfum þegar nýr meirihluti Vestmannaeyjalistans og Framsóknarflokksins tók við. Taldi bærinn Inga eiga inni launagreiðslur í hálft ár sem hann hefur fengið en Ingi telur sig eiga inn laun út kjörtímabilið eða fram í júní á þessu ári. Ingi sagði í samtali við NFS að hann biði nú formlegs svars frá bæjarráði og síðan yrði tekin ákvörðun um það hvort farið yrði í mál.
Fréttir Innlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Forsætisráðherra ávarpar íbúa Grindavíkur Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum Sjá meira