Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Féll fimm metra ofan af húsþaki Maður féll fimm metra ofan af húsþaki í Skerjafirði í gærkvöldi og gat sig hvergi hreyft eftir fallið. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans en mun ekki vera í lífshættu. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir. 21.2.2006 07:23
Ætla að ganga út Nemendur Menntaskólans á Akureyri hyggjast mómæla fyrirhugaðri skerðingu náms til stúdentsprófs með því að fella niður nám á miðvikudag. Menntamálaráðherra hefur boðað að nám til stúdentsprófs verði stytt á næstu árum. Þessu vilja nemendur við Menntaskólann á Akureyri mótmæla og ætla því að ganga út eftir annan tíma á miðvikudag 20.2.2006 22:30
Níu teknir fyrir of hraðan akstur í Rangárvallasýslu Níu ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli síðustu vikuna. Sá sem ók hraðast var mældur á 128 kílómetra hraða á 90 kílómetra kafla á Suðurlandsvegi. Af þessum hópi voru tveir erlendir ökumenn sem greiddu sekt sína á staðnum. 20.2.2006 21:45
Kanna megi auknar heimildir lögreglu til tálbeitunotkunar Yfirlögregluþjónn í Reykjavík segir að velta megi því upp hvort auka þurfi heimildir lögreglu til að nota tálbeitur en segir slíkar breytingar þarfnast vandaðrar yfirferðar. Þingmaður óskar eftir utandagskrárumræðum á Alþingi um auknar heimildir til handa lögreglu eftir umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kompás um málið þar sem tálbeitur voru notaðar til að hanka barnaníðinga. 20.2.2006 21:30
Stokkseyringar setja upp álfver Í Menningarverstöðinni í Hólmaröst á Stokkseyri verður álfum og tröllum búið afdrep í rúmlega 1000 fermetra sal á fyrstu hæðinni. Þarna munu ferðamenn og aðrir áhugamenn um íslenska þjóðmenningu geta komið og kynnst þessum athyglisverðu verum. Fréttin birtist á fréttavefnum sudurland.is. 20.2.2006 20:54
Segir ekki hafa verið samið við Jón Gerald Lögregla segir að Jón Gerald Sullenberger hafi játað við yfirheyrslur að hafa tekið þátt í að gera tilhæfulausa reikninga vegna bílakaupa Baugs-fjölskyldunnar. Lögregla ákvað samt að kæra Jón Gerald ekki en neitar að hafa gert við hann samning þess efnis. 20.2.2006 20:45
Metaðsókn á Fullkomið brúðkaup á Akureyri Gamanleikritið Fullkomið brúðkaup sló 23 ára gamalt aðsóknarmet Leikfélags Akureyrar um helgina. Ekki verða þó fleiri sýningar á leikritinu í Samkomuhúsinu en sýningin flyst suður innan skamms. 20.2.2006 20:16
Óeðlilegur munur á kostnaðaráætlunum Ægisdyr, samtök um jarðgöng milli lands og eyja, segja óeðlilegt að gífurlegur munur sé á skýrslu sem unnin var fyrir Vegagerðina nú fyrir skömmu og annarri skýrslu sem unnin var fyrir einu og hálfu ári. 20.2.2006 20:05
Meintum fíkniefnasölum á Ísafirði sleppt Tveimur unglingspiltum, sem verið hafa í gæsluvarðhaldi á Ísafirði síðan á laugardag fyrir meinta fíkniefnasölu, hefur verið sleppt. Drengirnir tveir, sem eru 16 og 19 ára, voru handteknir í Ísafjarðardjúpi þar sem þeir voru á leiðinni til Ísafjarðarbæjar með 85 grömm af hassi í sölueiningum. 20.2.2006 19:28
Fær ekki allar lóðirnar Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, segir að ekki komi til greina að einn og sami maðurinn fái allar einbýlishúsalóðirnar nema eina við Úlfarsfell úthlutaðar. Minnihlutinn í Reykjavík segir stöðuna sem upp er komin vegna útboðsins lýsandi fyrir það öngstræti sem lóðastefna R-listans er kominn í. 20.2.2006 19:10
Ekki tilkynnt um virkan eignarhlut í Búnaðarbankanum Þýski bankinn Hauck og Afhauser tilkynnti ekki um virkan eignarhlut í Búnaðarbanka til Fjármálaeftirlitsins eða Kauphallarinnar. Þingmenn Frjáslynda flokksins og Samfylkingarinnar kröfðust þess í dag að rannsakað yrði hvort aðkoma bankans að S-hópnum hefði byggst á blekkingum. Viðskiptaráðherra segir ekkert nýtt í málinu nema tregðu Samfylkingarinnar til að skilja að ráðherra segi ekki sjálfstæðri eftirlitsstofnun fyrir verkum. 20.2.2006 18:51
Þriðjungur af bifreiðasköttum til vegagerðar Skattekjur ríkissjóðs af bifreiðum voru yfir fjörutíu og fimm milljarðar króna á síðustu tíu árum. Af þeim tekjum fóru aðeins rúmir fimmtán milljarðar króna til Vegagerðarinnar. Kristján Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að annaðhvort ætti að lækka skattana eða verja meiru til vegagerðar. 20.2.2006 18:36
Sjúkraflug lengist ef flugvöllurinn fer úr Vatnsmýrinni Samgönguráðherra tekur í kvöld við undirskriftalista þar sem þess er krafist að tekið verði tillit til öryggishagsmuna landsbyggðarinnar vegna sjúkraflugs, þegar ákveðið verður hvort og þá hvert Reykjavíkurflugvöllur verður færður. 20.2.2006 18:36
Flateyringur ber sjálfur 200.000 krónur af óveðurstjóni Flateyringurinn Guðjón Guðmundsson kemur til með að þurfa að bera sjálfur skaða upp á 200.000 krónur vegna bíla sem skemmdust í óveðrinu á Flateyri þrátt fyrir tryggingar. Húsatjón fæst hins vegar bætt að fullu. 20.2.2006 16:18
Jarðskjálftar við Kistufell í Vatnajökli Jarðskjálfti sem mældist tveir komma níu á Richterskala varð við Kistufell í Vatnajökli í gær. Nokkrir skjálftar hafa orðið á þessum sömu slóðum undanfarna viku. 20.2.2006 16:15
Vélstjórar fella kjarasamning í annað sinn Vélstjórar á fiskiskipum felldu nýgerðan kjarasamning við LÍÚ með aðeins tveggja atkvæða mun. Skrifað var undir samninginn um áramót en þetta er í annað sinn sem vélstjórar fella kjarasamning á innan við ári, en þeir felldu einnig samning sem gerður var á fyrri hluta síðasta árs. 20.2.2006 16:00
Sagði þingmanni að hann ætti að skammast sín Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sagði Kristjáni L. Möller, þingmanni Samfylkingar, að hann ætti að skammast sín í fyrirspurnatíma á Alþingi. Fjármálaráðherra sagði Kristján opinbera það í hvert skipti sem hann færi í ræðustól að hann kynni ekki reikning. 20.2.2006 15:36
Vilja rannsókn á sölu Búnaðarbankans Tveir þingmenn stjórnarandstöðunnar óskuðu eftir því við upphaf þingfundar að rannsókn yrði hafin á sölu Búnaðarbankans og blekkingum sem Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við Háskóla Íslands, segir kaupendur hafa beitt. 20.2.2006 15:21
Þurfa bæði að spara kvóta og ná honum öllum Loðnusjómenn þurfa nú bæði að spara sér kvótann og gæta þess um leið að ná honum öllum því útlit er fyrir að loðnan sé að fara að hrygna og drepast og þar með veiðist ekki meir. 20.2.2006 15:17
Ráðherra segir óþolandi að samningurinn um flugið sé ekki haldinn Heilbrigðisráðherra segir það óþolandi að samningur um sjúkraflug frá Vestmannaeyjum sé ekki haldinn. Þrjú tilvik komu upp í síðustu viku þar sem sjúkraflugvél var ekki til staðar í Eyjum þegar á þurfti að halda. 20.2.2006 15:04
Hagnaður SPRON rúmir fjórir milljarðar Hagnaður SPRON á síðasta ári nam fjórum koma einum milljarði króna og hefur aldrei verið meiri. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu félagsins sem birt var í dag. Hagnaðurinn jókst um 150 prósent á milli ára og nema heildareignir SPRON-samstæðunnar nú 115 milljörðum króna. 20.2.2006 15:02
Utandagskrárumræða á Alþingi um tálbeitunotkun Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur óskað eftir utandagskrárumræðu á Alþingi um heimildir lögreglu til að leita uppi barnaníðinga. Í ljósi umfjöllunar Kompáss á Stöð 2 og NFS í gær um barnaníðinga, og notkun á tálbeitum til að lokka þá fram, þurfi að ræða á vettvangi Alþingis hvort ekki verði að rýmka heimildir lögreglu til að beita því ráði. 20.2.2006 13:40
Aðeins sekt fyrir að smygla dópi inn á Litla-Hraun Tvítug stúlka var síðastliðinn föstudag dæmd sek í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að smygla tæplega 9 grömmum af amfetamíni inn á Litla-Hraun. Héraðsdómi þótti hæfileg refsing 150.000 króna sekt eða 12 daga fangelsi. 20.2.2006 13:30
Skýringar Landsflugs ekki fullnægjandi Þriðja tilvikið þar sem sjúkraflugvél var ekki til staðar í Vestmannaeyjum þegar á þurfti að halda kom upp á föstudag. Skýringar Landsflugs á þessum tilvikum eru engan veginn fullnægjandi, segir bæjarstjórinn í Eyjum. 20.2.2006 12:09
Ný gögn í Baugsmálinu Uppnám varð við aðalmeðferð í Baugsmálinu svo kallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar ákæruvaldið lagði fram ný gögn í málinu sem verjendur höfðu ekki séð áður og ákæruvaldið fékk fyrst í hendurnar í gær. Áætlað er að vitnaleiðslur yfir öllum ákærðu í málinu fari fram í dag. 20.2.2006 11:47
Sign fer í víking Hljómsveitin Sign er á förum til Bretlands þar sem hún mun koma fram á sínum fyrstu tónleikum utan Íslands þann 28. febrúar. Tónleikarnir fara fram á Barfly í Camden Town í London en þegar hefur töluverður fjöldi blaðamanna og útsendara plötufyrirtækja boðað komu sína á tónleikana. 20.2.2006 11:44
Jón Ásgeir bar vitni í héraðsdómi í morgun Verjendur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Jóhannesar Jónssonar og Kristínar Jóhannesdóttur, mómæltu framlagningu gagna sem Sigurður Tómas Magnússon, sérstakur saksóknari lagði fram við réttarhöld í Baugsmálinu í morgun. 20.2.2006 10:37
Hvalaskoðunarbátur vélarvana Skipstjóri á hvalaskoðunarbát frá Reykjavík óskaði eftir aðstoð björgunarskipsins Ásríms. S. Björnssonar undir kvöld í gær, þar sem vél bátsins hafði stöðvast, líklega af olíuleysi, eftir því sem Frétastofan kemst næst. 20.2.2006 09:47
Ný gögn lögð fram í Baugsmálinu Uppnám varð við aðalmeðferð Baugsmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar ákærandi lagði fram ný gögn í málinu sem tengjast bílainnflutningi tveggja hinna ákærðu, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Kristínar Jóhannesdóttur. Verjendur óskuðu eftir tíu mínútna réttarhléi, sem nú stendur yfir, til að fara yfir gögnin en óvíst er með framhaldið. 20.2.2006 09:33
Ný innheimmtumiðstöð opnuð á Blönduósi Á haustmánuðum ákvað dómsmálaráðherra að flytja innheimtu sekta og sakarkostnaðar á landinu í heild til embættis sýslumannsins á Blönduósi. Markmiðið með þessum breytingum er að samræma, einfalda og efla innheimtu sekta og sakarkostnaðar í öllu landinu. 20.2.2006 09:30
Loðnuskip að fikra sig fyrir Garðskaga Loðnuskipin, sem enn eiga eitthvað eftir af kvóta, eru nú að fikra sig fyrir Garðskaga inn á Faxaflóa á eftir loðnugöngunni, og veiða ekki nema smá slatta í einu til frystingar. 20.2.2006 08:00
Skotið á hús í Fossvogi Rannsóknadeild lögreglunnar í Reykjavík var kvödd að húsi í Fossvogi undir morgun til að rannsaka skotárás, sem gerð var á hús þar. 20.2.2006 07:55
Ættu að krefjast þess að Bandaríkjamenn loki Guantanamo Ríkisstjórn Íslands ætti að krefjast þess að Guantanamo-fangelsinu verði lokað. Þetta sagði Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokksins í Silfri Egils í dag. Jónína Bjartmarz var gestur Egils í Silfri Egils í dag 19.2.2006 19:45
Silvía Nótt til Aþenu? Þótt Silvía Nótt hafi sigrað í keppninni um framlag Íslands í söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva er óvíst að hún flytji lagið í Aþenu því kærumál gegn laginu er enn í gangi. Margir hafa líkt athyglinni sem lagið og flytjandinn hafa fengið við farsa. 19.2.2006 19:30
Eyþór Arnalds vann yfirburðarsigur í Árborg Eyþór Arnalds fyrrverandi varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, vann yfirburðarsigur í prófkjöri flokksins í Árborg. Sitjandi leiðtoga var afdráttarlaust hafnað. Jóhannes Gunnar Bjarnason er nýr leiðtogi Framsóknarflokks á Akureyri. 19.2.2006 18:56
Sóðaleg viðskipti Vilhjálmur Bjarnason aðjúnkt í viðskiptafræði segir að S-hópurinn hafi beitt blekkingum þegar hann keypti Búnaðarbankann. Hann segir að viðskiptin hafi verið sóðaleg og rannsókn á þeim eigi að fara fram. 19.2.2006 18:32
OR segir Landvernd ganga of langt í andstöðunni Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur líkir andstöðu Landverndar við framkvæmdir í Kerlingarfjöllum við umhverfisverndarsamtökin sem sneru sér að því að fá bann við þorskveiðum þegar þeim hafði tekist að stöðva hvalveiðar. 19.2.2006 18:28
Vilja hindra að Big-Ben fái Úlfarsfellslóðirnar Meirihlutinn í borginni ætlar að leita allra leiða til þess að hnekkja þeirri niðurstöðu að allar einbýlishúsalóðirnar við Úlfarsfell, nema ein, fari til sama mannsins. Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Vinstri-grænna telur að þessi niðurstaða hafi verið fyrirséð og vill endurtaka lóðaúthlutunina og láta draga um hver fái lóðirnar. 19.2.2006 18:13
Langstærsti þjóðgarður Evrópu í burðarliðnum Allt stefnir í að langstærsti þjóðgarður í Evrópu verði að veruleika á Íslandi á næstu árum. Umhverfisráðherra stefnir að því að leggja fram frumvarp um svokallaðan Vatnajökulsþjóðgarð næsta haust. Hann myndi ná allt frá Skaftafelli í suðri til Ásbirgis í norðri. 19.2.2006 16:55
Ætla að mótmæla skerðingu náms Nemendur Menntaskólans á Akureyri hyggjast fella niður nám á miðvikudaginn í næstu viku, til að mótmæla skerðingu náms til stúdentsprófs. 19.2.2006 12:53
Harður árekstur tveggja bíla Tveir voru fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsl eftir harðan árekstur tveggja bíla á mótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar um klukkan hálftvö í nótt. Fleiri voru í bílunum, en þeir sluppu ómeiddir. Grunur leikur á að ökumaður annars bílsins hafi verið ölvaður. Töluverð olía lak úr bílunum eftir áreksturinn og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað á vettvang til að hreinsa veginn. 19.2.2006 12:30
Tveir í haldi grunaðir um sölu fíkniefna Tveir menn eru í haldi lögreglunnar á Ísafirði grunaðir um sölu á hassi. Mennirnir voru handteknir um tíuleytið í gærmorgun í Ísafjarðardjúpi, þar sem þeir voru á leiðinni akandi til Ísafjarðarbæjar. 19.2.2006 12:30
Ofsaakstur á Kjalarnesi Lögreglan á Akranesi stöðvaði ungan ökumann fyrir ofsaakstur á Kjalarnesi í gær en hann mældist á 170 kílómetra hraða á klukkustund. Ökumaðurinn var nýkominn með fullnaðarskírteini en hefur nú sviptur því til bráðabirgða. 19.2.2006 11:30
Gerður Kristný fékk Blaðamannaverðlaun Íslands Gerður Kristný Guðjónsdóttir fékk Blaðamannaverðlaun Íslands fyrir bók sína Myndin af pabba en verðlaunin voru afhent í gærkvöldi. Bókin segir af lífi Thelmu Ásdísardóttur og systra hennar en við gerð bókarinnar lagðist Gerður Kristný í ítarlegar rannsóknir á lífi þeirra. 19.2.2006 11:30
Slapp betur en útlit var fyrir Maður á miðjum aldri sem kastaðist af vélsleða á Langjökli í gær, hefur verið útskrifaður af slysadeild Landspítalans í Fossvogi. 19.2.2006 11:30