Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rjúpnaskytta gekkst undir langa aðgerð í gærkvöldi Rjúpnaskyttan, sem fékk skot úr eigin byssu í aðra höndina, þegar hann var að veiðum ofan við Reyðarfjörð í gær, gekkst undir langa aðgerð á Landsspítalanum í gærkvöldi. Hann féll á hálku og missti byssuna, en við það hljóp skot úr henni í hönd mannsins. 30.11.2005 07:15
Byggðastofnun láni á ný án fjárframlags Iðnaðar- og viðskiptaráðherra gefur fyrirmæli um að Byggðastofnun hefji útlán á ný. Ekki er gert ráð fyrir framlögum ríkisins til stofnunarinnar á þessu ári þrátt fyrir að eigið fé sé undir löglegum mörkum. Hlutverki hennar verður breytt. 30.11.2005 07:15
Pálmatré fóru upp með rótum "Það lágu ljósastaurar og pálmatré með rótum hingað og þangað," segir Birna Guðjónsdóttir sem búsett er ásamt eiginmanni og tveimur stúlkum á Santa Brigida nálægt Las Palmas á Kanaríeyjum. Hún var akandi á heimleið frá Playa del Ingles í fyrrinótt þegar hitabeltisstormurinn Delta gekk yfir. 30.11.2005 07:00
Stenst varla EES-samninginn "Fljótt á litið sýnist mér að þriðja greinin í frumvarpi ráðherrans sé til þess fallin að brjóta í bága við frjálst flæði þjónustu eins og samningurinn um evrópska efnahagsvæðið kveður á um," segir Eggert B. Ólafsson, lögfræðingur og fyrrverandi yfirmaður eftirlitsskrifstofu EFTA. 30.11.2005 07:00
Tóku áfengi sem átti að farga Fjórum starfsmönnum vörumiðstöðvar Samskipa hefur verið sagt upp störfum fyrir að stela áfengi sem átti að farga. Björgvin Jón Bjarnason, framkvæmdastjóri innanlandssviðs Samskipa, segir málið hið raunalegasta, en eftir að afbrotin uppgötvuðust sagði fólkið upp og lét af störfum á föstudag og um helgina. 30.11.2005 06:30
Tekist á um frelsi til tjáningar og einkalífs Lögmaður Jónínu Benediktsdóttir telur réttlætanlegt að setja tjáningarfrelsinu skorður til að vernda friðhelgi einkalífsins. Lögmaður Fréttablaðsins vísar til tjáningarfrelsis og upplýsingahlutverks fjölmiðla í máli Jónínu gegn blaðinu. 30.11.2005 06:15
Fengu þrjú ár fyrir að smygla Tveir Litháar, 55 og 27 ára, hafa verið dæmdir í þriggja ára fangelsi hvor í Héraðsdómi Austurlands. Mennirnir smygluðu hingað tæpum fjórum kílóum af metamfetamíni sem falið hafði verið í Citroën-bifreið um borð í farþegaferjunni Norrænu. 30.11.2005 06:15
Með 2.000 starfsmenn í Eystrasalti Íslendingar reka hátt í 20 fyrirtæki af 400 norrænum fyrirtækjum í Eystrasaltsríkjunum. Í flestum tilfellum eru starfsmenn íslensku fyrirtækjanna ekki í stéttarfélögum. Kannað verður hvort þau virði leikreglur á vinnumarkaði. 30.11.2005 06:00
Aðgerðaráætlun um umferðamál kynnt í Hverfamiðstöð Vesturbæjar Vesturbær Reykjavíkur heldur á samgöngublóminu þetta árið. Íbúasamtök hverfisins kynntu aðgerðaráætlun sína sem ætlað er að bæta samgöngur í borgarhlutanum. Áherslan er á breytt viðhorf, betri hegðun og vilja til að breyta. Með miklu samstarfi Borgarinnar og íbúa var samin aðgerðaáætlun sem kynnt var í dag. 29.11.2005 21:59
Meirihluti vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri Meirihluti Reykvíkinga vill Reykjavíkurflugvöll annars staðar en í Vatnsmýrinni. En þeir eru hins vegar ekki á einu máli um hvar þeir vilja hafa hann. En eigi fólk að velja um annaðhvort Keflavík eða Reykjavík vill meirihlutinn hafa haNn áfram í Vatnsmýri. Borgarstjórnarflokkur Frjálslyndra segir þetta samrýmast tillögu sinni um að framtíðarstaðsetning flugvallarins verði í Vatnsmýri. 29.11.2005 20:45
Handteknir fyrir veggjakrot Tveir sautján ára drengir voru handteknir við veggjakrot við Miklubraut í nótt. Lögreglan hefur reynt að hafa hendur í hári þeirra um nokkurt skeið en myndfletir þeirra eru meðal annars bílar og umferðarskilti. 29.11.2005 20:24
Hvenær er maður rekinn? Vilhjálmur Rafnsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Læknablaðsins til tólf ára, hefur verið rekinn úr starfi að eigin sögn. Og það fyrir orð Kára Stefánssonar. Formaður Læknafélagsins er á öndverðum meiði og segir að ritnefndin hafi einvörðungu verið endurnýjuð þar sem sú gamla hafi verið lömuð. Vilhjálmur hefur ekki ákveðið hvort hann höfði mál á hendur læknafélögunum. 29.11.2005 20:21
Deildu um tilvist bréfa Jónína Benediktsdóttir bar forsvarsmenn Fréttablaðsins þungum sökum í héraðsdómi í dag og sagði þá halda hlífiskildi yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, með því að birta ekki bréf hans til Jóns Geralds Sullenbergers, sem finna hafi mátt meðal tölvubréfa hennar sem rötuðu á síður blaðsins. Hvorki ritstjóri né fréttaritstjóri Fréttablaðsins kannast við umrætt bréf, en segjast á móti hafa tekið vægt á Jónínu. 29.11.2005 20:13
Dregið úr skerðingu bóta Heilbrigðisráðherra hefur fellt úr gildi reglugerð um skerðingu bóta sem leiddi til þess að tryggingabætur fjölda öryrkja og aldraðra voru felldar niður í nóvember og desember, þar sem greiðslur þeirra úr lífeyrissjóðum voru hærri en tekjumörk Tryggingastofnunar gerðu ráð fyrir. 29.11.2005 19:59
Byggðastofnun lánar út á ný Byggðastofnun á að hefja aftur lánastarfsemi samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar, þrátt fyrir að eiginfjárstaða stofnunarinnar sé verri en lög gera ráð fyrir. 29.11.2005 19:56
Skýra verði betur útgáfu íbúðabréfa Ríkisendurskoðun telur brýnt að mæla með skýrari hætti fyrir um í lögum hvernig standa eigi að útgáfu íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs við þær aðstæður sem nú eru á markaði. Með hliðsjón af þeim miklu hagsmunum sem eru í húfi sé brýnt að stjórnvöld og löggjafinn bregðist skjótt við til að eyða óvissu um starfsheimildir sjóðsins. 29.11.2005 19:49
Íslandsbanki fékk tvenn verðlaun fyrir vef sinn Íslensku vefverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag. Þetta var í fimmta sinn sem verðlaunin voru veitt en þau fá þeir vefir sem taldir eru skara fram úr á sínu sviði. Verðlaunum var úthlutað í fimm flokkum og var mbl.is valinn besti íslenski vefurinn. Íslandsbanki fékk tvenn verðlaun fyrir vef sinn, isb.is, annars vegar fyrir besta útlits- og viðmótshönnun og hins vegar fyrir besta fyrirtækjavefinn. 29.11.2005 19:28
Ríkinu stefnt í fimmta sinn Mál Öryrkjabandalags Íslands gegn Íslenska ríkinu var þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Heilbrigðisráðherra segir að samkomulag um hækkun lífeyris hafi verið fullefnt með einum milljarði króna. Hann sagði hins vegar annað fyrir tveimur árum. Lögmaður Öryrkjabandalagsins segir stefnuna ekki snúast um krónur, heldur kjarabætur öryrkja. 29.11.2005 19:00
Samið fyrir blaða- og fréttamenn Samningur Blaðamannafélags Íslands við samtök atvinnulífsins voru undirritaðir á sjöunda tímanum í kvöld. Samningurinn nær til fréttamanna og ljósmyndara á öllum helstu fjölmiðlum landsins utan Ríkisútvarpsins. 29.11.2005 18:52
Slösuð rjúpnaskytta í aðgerð á Landspítala Rjúpnaveiðimaðurinn sem slasaðist á hendi þegar hann fékk voðaskot í höndina í Svínadal ofan við Reyðarfjörð er kominn á Landspítalann þar sem hann gegnst brátt undir aðgerð. 29.11.2005 18:30
217 milljónir í rannsóknir AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi styrkir 64 verkefni um samtals 217 milljónir króna í ár. 110 milljónir króna fara í verkefni á sviði veiða, vinnslu og búnaðar, 64 milljónir í fiskeldisverkefni og líftækniverkefni og markaðssetning fengu hvort um sig 21 milljón króna. 29.11.2005 17:45
Umhverfissvið innkallar grænmetisblöndu vegna aðskotahlutar Umhverfissvið Reykjavíkurborgar hefur innkallað af markaði Hátíðarblöndu, blandað frosið grænmeti frá Íslensku meðlæti, með best fyrir dagsetninguna 08.11.2007. Varan reyndist innihalda aðskotahlut og hefur framleiðslulotan því verið tekin af markaði og er nú hvergi í sölu. 29.11.2005 17:22
Rúm 50 prósent vilja Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýri Ríflega fimmtíu prósent Reykvíkinga vilja að Reykjavíkurflugvöllur verði annars staðar en í Vatnsmýrinni samkvæmt skoðananakönnun sem Gallup hefur geft fyrir lista Frjálslynda flokksins í Reykjavík. Tæplega 48 prósent vildu hins vegar hafa flugvöllinn áfram í mýrinni. 29.11.2005 17:03
Tveir listar í framboði Tveir listar verða í framboði við sveitarstjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi Bólstaðarhrepps, Sveinsstaðahrepps, Svínavatnshrepps og Torfalækjarhrepps laugardaginn 10. desember næstkomandi. Listarnir eru Listi framtíðar og Nýtt afl. Þá verður kosið milli þriggja tillagna að nafni nýja sveitarfélagsins. 29.11.2005 17:03
Lagt til að ákveðnir hlutar hússins verði friðaðir Húsafriðunarnefnd hyggst leggja til við menntamálaráðherra að ákveðnir hlutar Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg verði friðaðir. Eins og greint hefur verið frá stendur til að selja húsið verktakafyrirtækinu Mark-Húsum sem bauð hæst í það, alls 980 milljónir króna. 29.11.2005 16:44
Lítill munur á bönkunum Það kostar að lágmarki 374 þúsund krónur að taka fimmtán milljóna króna lán til íbúðakaupa. Þetta kemur fram í nýrri könnun Alþýðusambands Íslands á lántökukostnaði og opinberum gjöldum. 29.11.2005 16:34
Upplýsa ekki hvernig þeir fengu tölvupóstana Ekki kemur til greina að upplýsa hvernig Fréttablaðið fékk afrit af tölvupóstum sem það notaði við vinnslu frétta sinna um aðkomu þjóðþekktra manna að upphafi Baugsmálsins sagði Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, í beinni útsendingu NFS úr Héraðsdómi Reykjavíkur. 29.11.2005 16:30
Systkinafsláttur á leikskólum Seltjarnarness Nýjar reglur um afsláttarkjör barnafjölskyldna á Seltjarnarnesi sem nýta dagmæðrakerfi, leikskóla eða Skólaskjól grunnskóla tóku nýlega gildi. Um nokkurt skeið hafa reglurnar gilt milli leik- og grunnskóla þannig að fjölskyldur sem átt hafa börn á þeim skólastigum hafa notið systkinaafsláttar af leikskólagjöldum eða gjöldum fyrir Skólaskjól. Fjölskylda sem er með eitt barn á leikskóla og nýtir Skólaskjól grunnskólans fyrir annað barn fær þannig 25% afslátt fyrir annað barnið og 50% afslátt fyrir þriðja barnið. Það sama á að sjálfsögðu við ef öll börnin eru á sama skólastigi. 29.11.2005 16:00
Segir hafa verið valið úr tölvupóstum til birtingar Jónína Benediktsdóttir sagði við skýrslutöku í aðalmeðferð máls hennar gegn Fréttablaðinu að blaðið hefði haldið hlífiskildi yfir eigendum sínum með því að birta ekki tölvupósta þar sem fjallað væri um Thee Viking. Hvorki ritstjóri né fréttaritstjóri Fréttablaðsins sögðust muna eftir slíkum tölvupóstum. Jónína neitaði að svara flestum spurningum verjanda um hvernig hún teldi fréttirnar hafa verið villandi eða hvort einhverjar persónulegar upplýsingar úr tölvupóstunum hefðu ekki verið birtar. 29.11.2005 15:58
Rjúpnaskytta varð fyrir voðaskoti við Reyðarfjörð Björgunarsveitin Ársól á Reyðafirði var kölluð út á öðrum tímanum í dag. Rjúpnaskytta hafði fengið voðaskot í hendi á svínadal fyrir ofan Reyðafjörð. Það tók sveitina aðeins sex mínútur að komast að slysstað. Maðurinn er mikið slasaður á hendi en gat þrátt fyrir það verið í sambandi við neyðarlínuna og látið vita af sér. Er búið var að hlúa að manninum var hann fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. 29.11.2005 15:23
Össur vill strangari lög Nýtt frumvarp um starfsmannaleigur gengur ekki nógu langt til að ná höndum yfir ribbalda sem brjóta lög og jafnvel mannréttindi starfsmanna sinna, segir Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Hann segir að aðgerðarleysi fulltrúa ráðherra í nefnd um starfsmannaleigur hafi orðið til þess að atvinnurekendur hafi ráðið þar lögum og lofum. 29.11.2005 15:07
SA gerir athugasemdir við frumvarp Það er ekki bara verkalýðsforystan og stjórnarandstaðan sem vilja gera breytingar á frumvarpi um starfsmannaleigur. Samtök atvinnulífsins vilja það líka, þó með öðrum hætti sé. Yfirlögfræðingur samtakanna, sem átti sæti í nefnd sem frumvarpið byggir á, tekur dræmt í þær kröfur ASÍ og fleiri að fyrirtæki sem notfæri sér þjónustu starfsmannaleiga beri ábyrgð brjóti starfsmannaleigan á fólkinu. 29.11.2005 15:01
Segir eigendum hafa verið hlíft Jónína Benediktsdóttir sagði við skýrslutöku í aðalmeðferð máls hennar gegn Fréttablaðinu að blaðið hefði haldið hlífiskildi yfir eigendum sínum með því að birta ekki tölvupósta sem kæmu þeim illa. 29.11.2005 14:59
Byggðastofnun starfi án fjárstuðnings ríkisins Lánastarfsemi Byggðastofnunar mun halda áfram með óbreyttum hætti á næstunni á meðan ekki koma frekari athugasemdir frá Fjármálaeftirlitinu. Hins vegar verða gerðar grundvallarbreytingar á fjármögnunarstarfsemi stofnunarinnar til lengri tíma litið, þannig að hún standi undir þeim rekstri, án fjárstuðnings ríkisins. 29.11.2005 13:57
Blysför á Akureyri á Alnæmisdaginn Alnæmisdagsins verður minnst með blysför á Akureyri 1. desember næstkomandi. Dagurinn er alþjóðlegur dagur alnæmis en víða um heim er þessa dags minnst með samkomum og samstöðugöngum. 29.11.2005 13:38
Jón bakkar Jón Kristjánsson dregur til baka reglugerð um skerðingu bótagreiðslna til öryrkja og ellilífeyrisþega eftir harða gagnrýni af þeirra hálfu. 29.11.2005 13:15
Konur í rafiðnaðarstétt hafa nú 87% af launum karla samanborið við 65% fyrir fimm árum Konur í rafiðnaðarstétt, eru að draga verulega á karlana í launum og nema laun þeirra nú 87% af launum karla, samanborið við 65% af launum þeirra fyrir fimm árum. Að hluta gæti þetta skýrst af þvi að þær hafi ekki unnið eins mikla yfirvinnu og karlarnir, en karlar hafa undanfarin misseri verulega dregið úr henni þannig að samanburðurinn nú ætti að vera raunhæfur. 29.11.2005 12:00
Skotbardagar fyrir botni Miðjarðarhafs Palestínskur lögreglumaður særðist nú rétt fyrir hádegið þegar til skotbardaga kom á milli ísraelskra hermanna og palestínksra lögreglumanna í borginni Betlehem. 29.11.2005 12:00
Starfshópur skipaður á næstu dögum Starfshópur verður skipaður á næstu dögum sem fjalla mun um mál þeirra þeirra áttatíu öryrkja sem nýtt hafa bótarétt sinn og fyrirsjáanlegt var að yrðu fyrir greiðsluskerðingu út árið. 29.11.2005 11:56
Öryggisbæklingur gefinn út fyrir vélsleðamenn Slysavarnarfélagið Landsbjörg og Landssamband íslenskra Vélsleðamanna hafa í sameiningu gefið út bæklinginn "Öryggi og ábyrgð". Bæklingurinn veitir upplýsingar um akstur vélsleða, áhættuþætti við akstur, ástæður vélsleðaslysa, lög og reglur við notkun vélsleða og hvernig koma megi í veg fyrir slys. 29.11.2005 10:33
Skortur á legurúmum fækkar gerviliðaaðgerðum Skortur á legurúmum á Landspítala - háskólasjúkrahúsi hefur orðið til þess að þurft hefur að hætta við fjölda gerviliðaaðgerða á þessu ári. Aukið álag er meðal annars vegna sjúklinga sem bíða útskriftar. 29.11.2005 08:00
Viðræður um framhald listdanskennslu Viðræður standa nú yfir á milli menntamálaráðuneytisins og aðila um framhald á listdanskennslu í landinu. Ekki fæst upp gefið hver sá aðili er en ljóst er að fagið verður áfram kennt þrátt fyrir að Listdansskóli Íslands verði lagður niður. 29.11.2005 08:00
Framhaldsskólanemar ætla að skila auðu í prófunum Stór hluti framhaldsskólanema ætlar að skila auðu í samræmdu stúdentsprófunum sem fram fara í vikunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Hagsmunaráðs íslenskra framhaldsskólanema. Nemendur ætla að gera þetta í mótmælaskyni við að prófin séu lögð fyrir nemendur sem þeir segja að séu vanhugsuð og meingölluð í framkvæmd. 29.11.2005 07:56
Veggjakrotarar gripnir glóðvolgir Lögreglumenn í Reykjavík gripu tvo veggjakrotara glóðvolga þar sem þeir voru að spreyja á umferðarskilti við Kringlumýrarbraut í nótt. Ekki skorti sönnunargögnin, því þeir höfðu tekið afrek sín upp á myndband, væntanlega til að setja inn á netið. 29.11.2005 07:06
Gengi á bréfum í DeCode hefur hækkað um 44% Gengi á bréfum í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, hefur hækkað mikið undanfarna mánuði og um heil 44%, ef farið er 12 mánuði aftur í tíman, samkvæmt greiningardeild Landsbankans. 29.11.2005 07:01