Tóku áfengi sem átti að farga 30. nóvember 2005 06:30 Starfsmenn vörumiðstöðvar Samskipa stálu áfengi sem átti að farga. Starfsmennirnir fjórir voru reknir.
Fjórum starfsmönnum vörumiðstöðvar Samskipa hefur verið sagt upp störfum fyrir að stela áfengi sem átti að farga. Björgvin Jón Bjarnason, framkvæmdastjóri innanlandssviðs Samskipa, segir málið hið raunalegasta, en eftir að afbrotin uppgötvuðust sagði fólkið upp og lét af störfum á föstudag og um helgina. Lögregla rannsakar nú þjófnaðinn, en hann var upplýstur með aðstoð hennar og tollayfirvalda. Ekki liggur fyrir hversu umfangsmikill þjófnaðurinn var, en Björgvin telur þó að ekki hafi verið um mikið magn að ræða. Hann segir upp hafa komist um málið vegna þess að auga sé haft með svo viðkvæmum innflutningi, en ekki vegna þess að merkja hefði mátt aukningu í förgun áfengis. "En förgun getur verið vegna beyglaðra dósa, skemmda á umbúðum, til dæmis utan um kassavín, eða vegna þess að vara reynist útrunnin," segir hann. Fólkið sem hætti starfaði saman á sömu deild og sagði Björgvin ákveðna eftirsjá af því, enda um góða starfsmenn til margra ára að ræða. "Þarna var verið að farga víni og fólki finnst kannski að vara sem búið er að afskrifa sé komin á eitthvert einskismannsland, en svo er náttúrlega alls ekki."
Innlent Mest lesið Vaktin: Dómari kveður upp um refsingu Diddy Erlent Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Innlent Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Innlent Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Innlent Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Innlent Látinn fara eftir að hafa neitað Trump um sverð í eigu Eisenhower Erlent Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Innlent Vann á öllum deildum leikskólans Innlent Rekja andlát dóttur að hluta til samsæriskenninga móður Erlent Bein útsending: Siglt áleiðis til Gasa Erlent Fleiri fréttir Dugar ekki lengur að dorga og nú þurfi að kasta út neti Vann á öllum deildum leikskólans Segja Rússa heyja stríð við Vesturlönd og síðustu ævidagarnir á Grund „Kópavogsmódelið er ekkert annað en þjónustuskerðing“ Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Fresta framkvæmdum vegna veðurs Sýnist komið að seinni hluta í eldsumbrotum í Sundhnúksgígaröðinni Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Varaformannsslagur í Miðflokknum: Öll vinir og „peppuð“ fyrir landsþingi Stöðfirðingum enn ráðlagt að sjóða vatn vegna mengunar Tillögurnar í leikskólamálum séu vonbrigði og uppgjöf Jörð skelfur í Krýsuvík og Þjóðaröryggisráð fundaði í morgun Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Snorri etur kappi við Bergþór og Ingibjörgu Hafnaði kæru Sameindar vegna Konukots í Ármúla Ingibjörg tekur slaginn við Bergþór Skjálftahrina við Krýsuvík og Kleifarvatn Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Bergþór vill verða varaformaður Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Rauk upp úr flugvél Jet2 Loka leikskóladeild á Stöðvarfirði vegna manneklu Nýjar tillögur falli á herðar vinnandi foreldra Eðlilegt að Ísland skoði að taka þátt Til umræðu að setja upp lokunarpósta við Fossvogsbrú Ragnhildur tekur við Kveik Blæs á sögusagnir um úthugsaða fléttu og ótti við að enda rúmliggjandi Vilja að fallið verði frá hækkun áfengisskatta Sjá meira