Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samningur ekki endurnýjaður Stjórn KSÍ hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við þá Loga Ólafsson og Ásgeir Sigurvinsson um þjálfun A-landsliðs karla í knattspyrnu. Þess í stað hefur stjórn KSÍ falið formanni sambandsins að ræða við Eyjólf Sverrisson um að taka við starfinu. 14.10.2005 00:01
Nýtt tímarit um þjóðmál Bókafélagið Ugla hefur hafið útgáfu á nýju tímariti sem heitir Þjóðmál og mun koma út fjórum sinnum. Ritstjóri tímaritsins er Jakob F. Ásgeirsson og samkvæmt ritstjórnargrein hans er Þjóðmálum er ætlað að vera "vettvangur fyrir frjálshuga fólk sem er orðið þreytt á yfirborðslegri og einhliða fjölmiðlun um stjórnmál og menningu". Meðal efnis í 1. hefti má nefna að Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, skrifar af vettvangi stjórnmálanna. 14.10.2005 00:01
Vaxandi sóknarfæri hjá smábátum Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir að smábátarnir eigi vaxandi sóknarfæri vegna þess að togveiðar og fleiri veiðiaðferðir eigi nú undir högg að sækja hjá umhverfisverndarsinnum. 14.10.2005 00:01
Hlutur ríkisútgjalda eykst Öll undangengin ár hafa fjárlög íslenska ríkisins gert ráð fyrir myndarlegum afgangi segir í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins. Raunin hefur oftast orðið önnur. Samanburður á rekstrarafgangi fjárlaga og ríkisreikningi síðustu fimm ár sýnir að halli var þrjú ár og að hin tvö var afgangurinn mun minni en að var stefnt. 14.10.2005 00:01
Ríkissaksóknari kemur ekki að máli Bogi Nilsson ríkissaksóknari mun ekki koma að meðferð Baugsmálsins svokallað fyrir hönd ákæruvaldsins, eins og tilkynnt var á dögunum, vegna tengsla sinna við endurskoðunarfyrirtæki Baugs. 14.10.2005 00:01
Vistaskipti sýslumanna Lárus Bjarnason<font face="Courier New">,</font>sýslumaður á Seyðisfirði<font face="Courier New">,</font>hefur óskað eftir því, með tilvísun til tilraunaverkefnis um tímabundin vistaskipti ríkisstarfsmanna<font face="Courier New">,</font>að taka við störfum hjá embætti Tollstjórans í Reykjavík, frá fimmtánda október nk. til 1. maí 2006. 14.10.2005 00:01
Gæsluvarðhald framlengt Framlengt hefur verið til 25. nóvember gæsluvarðhald yfir pilti sem játað hefur að hafa stungið annan á menningarnótt í Reykjavík í ágúst. Pilturinn er grunaður um að hafa stungið tvo, en vill ekki kannast við nema eina árás. 14.10.2005 00:01
Borgin hótar lögsókn Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir standa af hálfu borgarinnar að farið verði með samráðsmál olíufélaganna fyrir dómstóla fá borgin ekki greiddar bætur.Í gær rann út frestur sem Reykjavíkurborg gaf olíufélögunum til greiðslu bóta vegna verðsamráðs sem þau höfðu í tengslum við tilboðsgerð vegna olíusölu árið 1996. 14.10.2005 00:01
Ríkið borgar Saltkaupum Íslenska ríkið þarf að greiða Saltkaupum ehf. tæplega 9,8 milljónir króna auk 700.000 króna málskostnaðar samkvæmt nýföllnum dómi Hæstaréttar. Upphæðin er 4,5 milljónum hærri en kveðið var á um í dómi Héraðsdóms Reykjaness í desember í fyrra. 14.10.2005 00:01
Tíu mánuðir fyrir fjárdrátt Fyrrum framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfjarða hefur verið dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir að draga sér rúmar 17 milljónir króna á árunum 2002 og 2003. Maðurinn játaði fjárdráttinn, en hann færði upphæðir til skuldar og endurgreiddi í mörgum greiðslum. Hæst varð skuldin rúmar 5 milljónir. Dómurinn var skilorðsbundinn. 14.10.2005 00:01
Óvissa um nýjan vef dómstólanna Anna Mjöll Karlsdóttir, framkvæmdastjóri Dómstólaráðs, segir ekki hægt að segja til um hvernær ný heimasíða héraðsdómstóla landsins komist í loftið, en búið er að loka þeirri sem fyrir var. Nú er á slóðinni domstolar.is einungis að finna tilkynningu um að ný síða sé væntanleg. 14.10.2005 00:01
Funda eftir helgi Vilhjálmur H. Vilhjálmssson hæstaréttarlögmaður segir að honum hafi ekki enn borist neitt svar um skaðabótakröfu þá, sem Reykjavíkurborg krefst að olíufélögin Ker, Olís og Skeljungur, greiði vegna samráðs sem þau höfðu við tilboðsgerð á vegum borgarinnar árið 1996. 14.10.2005 00:01
Lífeyrissjóður var sýknaður Hæstiréttur féllst ekki á kröfu fyrrum bankastarfsmanns um að breyting á reglugerð um lífeyrisgreiðslur hefði svipt hann áunnum réttindum. Fyrir gildistöku reglugerðar í árslok 1997 var miðað við laun eftirmanns, en vísitölu neysluverðs á eftir. 14.10.2005 00:01
Skuldfært fyrir sekt Skeljungs Hagar, eignarhaldsfélag olíufélagsins Skeljungs, hafa skuldfært hjá sér 250 milljónir króna í ársreikningi síðasta árs vegna sektar fyrir olíusamráð. Allt umfram þá upphæð sækir félagið til fyrri eigenda Skeljungs. 14.10.2005 00:01
Þrotabúskrafa tekin fyrir í dómi Tekin var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær krafa Sparisjóðs Vestfjarða í þrotabú Kristjáns Ragnars Kristjánssonar, eins sakborninga úr Landssímamálinu. Björn Jóhannesson, lögmaður sparisjóðsins, segir deilt um hvers eðlis krafa sjóðsins sé, en hún sé til komin vegna láns til fyrirtækisins Lífsstíls. 14.10.2005 00:01
Ríkisútgjöld hafa aukist Samtök atvinnulífsins segja að Ísland skeri sig úr meðal Norðurlanda að því leiti að ríkisútgjöld í hlutfalli við landsframleiðslu hafi aukist verulega. Alls staðar annars staðar á Norðurlöndum hafi ríkisútgjöld farið lækkandi í hlutfalli við landsframleiðslu. Þá benda Samtök atvinnulífsins á í tilkynningu að þrátt fyrir að gert hafi verið ráð fyrir myndarlegum afgangi á fjárlögum hafi raunin oftast orðið önnur. 14.10.2005 00:01
Kona fær greiddar bensíndælur Kona sem leigði olíufélaginu Skeljungi land og húsnæði í Kópavogi undir bensínstöð fær að eiga tanka og dælubúnað samkvæmt dómi Hæstaréttar. Hæstiréttur sneri í vikunni fyrri dómi Héraðsdóms Reykjaness frá því í desember í fyrra. 14.10.2005 00:01
Ísland er komið á kortið Hagfræðingar KB Banka meta það svo að áhætta af erlendri skuldabréfaútgáfu sé minni en menn hafa ætlað. Ísland sé komið á kortið hjá erlendum fjárfestum og því sé minni hætta á falli en ætla mætti þegar að gjalddaga erlendu bréfanna kemur. Í nýrri skýrslu bankans er gert ráð fyrir að skuldabréfaútgáfa haldi áfram og því muni áhættan jafnast út. 14.10.2005 00:01
Rjúpnaveiðar hefjast á ný Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands, segist sannfærður um að skotveiðimenn stilli rjúpnaveiðum í hóf en rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun. Hann telur að um 3000 veiðimenn séu á leið á veiðar. 14.10.2005 00:01
Segir eftirlaunafrumvarpið dýrara Umdeilt eftirlaunafrumvarp alþingis sem samþykkt var naumlega á þingi fyrir tveimur árum jók lífeyrrisskuldbindingu ríkisins um 650 milljónir á árinu 2004. Þetta segir Helgi Hjörvar alþingismaður á heimasíðu sinni í dag. Hann segir kostnaðinn orðinn miklu mun hærri en gert hafi verið ráð fyrir. 14.10.2005 00:01
Fuglaflensan til Íslands næsta vor Fuglaflensutilvik hafa undanfarna daga komið upp í bæði Tyrklandi og Rúmeníu. Flest bendir til að fuglaflensa breiðist út um alla Evrópu næsta vor. Yfirdýralæknisembættið á Íslandi hefur fengið tæpar tvær milljónir króna til að rannsaka alifugla hérlendis og farfugla sem koma hingað næsta vor. 14.10.2005 00:01
Viðræður í næstu viku Viðræðum um framtíð bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli verður fram haldið í Washington í næstu viku. 14.10.2005 00:01
Hækka skatt þegar þeir sjá hann Davíð Oddsson, fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi félagshyggju í setningarræðu sinni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins og kvað talsmenn hennar vilja skattahækkanir. 14.10.2005 00:01
Telur sig vanhæfan Bogi Nilson ríkissaksóknari hefur sagt sig frá Baugsmálinu þar sem hann sé vanhæfur til að fjalla um málið. Ríkslögreglustjóri óskaði eftir því að Ríkissaksóknari fjallaði um málið, í kjölfar dóms hæstaréttar. 14.10.2005 00:01
Atburðir kalla á fjölmiðlalög Í fyrirspurnartíma á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær vísaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra til þverpólítískrar samstöðu sem náðs hefur í fjölmiðlanefnd á hennar vegum. 14.10.2005 00:01
Stjúpfaðir hindraði ekki afskipti Stjúpfaðir barnaníðings í Hafnarfirði reyndi ekki að koma í veg fyrir að barnayfirvöld hefðu afskipti af málinu segir fyrrverandi tengdadóttir hans. Öðru hefur verið haldið fram. 14.10.2005 00:01
Ræða Davíðs gagnrýnd Davíð Oddsson, fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á landsfundi flokksins í gærkvöld að innan fárra ára yrði ljótasti blettur á íslenskri fjölmiðlun kominn í sitt skot í sögunni. Hann sagði að fjölmiðlasamsteypa hefði verið notuð til að þjóna hagsmunum auðhrings, þar sem óvægnum árásum og slúðri úr stolnum gögnum hefði verið beitt gegn einstaklingum sem auðhringnum væri í nöp við. 14.10.2005 00:01
Veiðibann hrekur frá Fréttir af skotveiðibanni frá og með 15. októbersem bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti á fundi sínum á miðvikudag og tekur til allra þeirra sem ekki eiga lögheimili í sveitarfélaginu hefur skaðað þá sem standa að ferðaþjónustu á svæðinu segir Jón Hákon Ágústsson, eigandi gistiheimilisins Kaupfélagið. 14.10.2005 00:01
Lóðaverð hækkar um fimmtíu prósent Lóðaverð í Hafnarfirði hækkar um fimmtíu prósent með nýjum úthlutunarreglum og skilmálum sem samþykktir voru í bæjarstjórn á þriðjudaginn. Bæjarstjórinn segir helstu ástæðuna vera brask þeirra sem hafa fengið úthlutað lóðum langt undir markaðsverði. Hafnfirðingar ganga ekki lengur fyrir um lóðir. 14.10.2005 00:01
Bíða úrlausnar mála sinna Stríðið í Tsjetsjeníu teygir anga sína víða, meðal annars hingað til lands. Ung múslimahjón frá Tsjetsjeníu leituðu hælis hér á landi fyrir tæplega hálfum mánuði. Maðurinn segist ekki vilja berjast gegn Rússum eða nokkrum öðrum, en óttast um líf sitt, - að verða álitinn svikari af löndum sínum. 14.10.2005 00:01
Milljóndollara seðlar Bíræfnir peningafalsarar hafa undanfarna mánuði reynt að fá íslenska banka til að taka sjötíu einnar milljónar dollara seðla sem veð gegn láni. Það jafngildir nærri fjórum og hálfum milljarði króna. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur seðlana undir höndum og vinnur nú að því með lögregluyfirvöldum í Bretlandi að hafa hendur í hári svindlaranna. 14.10.2005 00:01
Vímuvarnarvikan 2005 Vímuvarnarvikan 2005 verður haldin dagana 17. -23. október næstkomandi. Fjölmörg samtök standa að vikunni en henni er ætlað að beina athygli að börnum og forvarnarstarfi. 14.10.2005 00:01
Hefur öðlast trú á mannkynið á ný Það á alltaf að leyfa börnunum að njóta vafans og tilkynna um ef minnsti grunur er um að þau séu beitt ofbeldi. Þetta segir Thelma Ásdísardóttir sem hefur hrundið af stað vakningu gegn barnaofbeldi í samfélaginu. 14.10.2005 00:01
Eftirlit hert í Leifsstöð Yfirdýralæknir hefur beðið um hert eftirlit í Leifsstöð vegna fuglaflensu sem er að breiðast út. Landbúnaðarráðuneytið gaf í gær út herta reglugerð um innflutning á fuglum og hvers kyns fuglaafurðum. 14.10.2005 00:01
Sláturfé sett á gjöf Sunnlenskir bændur hafa nú sláturlömb sín á gjöf og bíða óvenju mörg lömb slátrunar. Þeir eru uggandi um hvort hægt verði að slátra hrútlömbunum áður en þau verða kynþroska. 14.10.2005 00:01
Eldur í íbúð við Skúlagötu Eldur kom upp í kjallaraíbúð við Skúlagötu í kvöld og var allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sent á vettvang. Að sögn varðstjóra á vakt er nú búið að slökkva eldinn en íbúðin var mannlaus. Mikinn reyk lagði frá henni og a.m.k. ein rúða í íbúðinni sprakk vegna eldsins. 14.10.2005 00:01
Falsaðir milljóndollaraseðlar Erlendur maður hefur undanfarna mánuði reynt að blekkja íslenska banka með fölsuðum bandarískum milljón dollara seðlum. „Þetta er mjög ævintýralegt, seðlarnir eru mjög vel falsaðir, þetta er allt mjög faglega gert,“ segir Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn Ríkislögreglustjóraembættisins. 14.10.2005 00:01
Eftirlaunafrumvarpið dýrt Aukinn kostnaður ríkisins vegna eftirlaunafrumvarpsins, sem tekur til alþingismanna, var um 650 milljónir króna árið 2004, samkvæmt fjársýslu ríkisins. Þegar Davíð Oddson, þáverandi forsætisráðherra og núverandi Seðlabankastjóri, lagði fram frumvarpið árið 2003, áætlaði hann að kostnaðaraukningin yrði um sex milljónir króna á árinu 2004. 14.10.2005 00:01
Átta segja upp Átta háskólamenntaðir starfsmenn hafa sagt upp hjá Landmælingum Íslands síðan í vor, en þar starfa um 35 manns. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fer nú fram sálfræðiúttekt á samskiptum yfirmanna Landmælinga við undirmenn. 14.10.2005 00:01
Formaður kjörinn einróma Ingólfur Sveinsson var einróma kjörinn formaður Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis suður á aðalfundi félagsins á fimmtudagskvöld. Sigrún Jónsdóttir, fyrrum formaður félagsins, hafði ákveðið að gefa ekki kost á sér að þessu sinni. 14.10.2005 00:01
Dómsmálaráðherra talinn vanhæfur Bogi Nilsson ríkissaksóknari hefur sagt sig frá Baugsmálinu. Gestur Jónsson telur að dómsmálaráðherra sé hugsanlega vanhæfur til þess að velja nýjan saksóknara. Páll Hreinsson dósent segir þessar reglur vandmeðfarnar. 14.10.2005 00:01
Barist um völdin hjá Framsókn Búist er við átökum á aðalfundi Framsóknarfélagsins í syðra kjördæmi Reykjavíkur í kvöld. Rúmlega hundrað nýir félagsmenn hafa bæst í félagið fá mánaðamótum að því er Fréttablaðið greinir frá í dag og munu flestir þeirra stuðningsmenn Björn Inga Hrafnssonar, varaþingmanns og aðstoðarmanns forsætisráðherra. 13.10.2005 00:01
Breyta iðnaðarsvæði í íbúðabyggð Bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi íhuga að breyta iðnaðarsvæðinu við Bygggarða og Sefgarða, vestast í bænum, í íbúðabyggð. Hugmyndirnar snúa að því að reisa þétta byggð á þriggja hektara landsvæði þar sem húsin yrðu ýmist tvær eða þrjár hæðir. 13.10.2005 00:01
Betri byggð mótmælir Samtök um betri byggð mótmæla harðlega leiðandi spurningu í skoðanakönnun samgönguráðherra um framtíðarstaðsetningu miðstöðvar innanlandsflugsins þar sem eingöngu var gefinn kostur á flutningi til Keflavíkur. Samtökin telja að þessi leiðandi spurning hafi valdið einstaklega lágu svarhlutfalli, eða 54 prósentum. 13.10.2005 00:01
Skrúfað frá brunahönum í borginni Suðurgatan í Reykjavík lokaðist fyrir umferð á tólfta tímanum í gærkvöldi vegna vatnsflaums úr brunahana, en nokkru áður hafði verið skrúfað frá brunahana við Listabraut og nokkru síðar við Engjaveg. Lögreglu- og slökkviliðsmenn skrúfuðu fyrir hanana og ekki hlaust tjón af í þetta skiptið. 13.10.2005 00:01