Innlent

Ríkisútgjöld hafa aukist

Samtök atvinnulífsins segja að Ísland skeri sig úr meðal Norðurlanda að því leiti að ríkisútgjöld í hlutfalli við landsframleiðslu hafi aukist verulega. Alls staðar annars staðar á Norðurlöndum hafi ríkisútgjöld farið lækkandi í hlutfalli við landsframleiðslu. Þá benda Samtök atvinnulífsins á í tilkynningu að þrátt fyrir að gert hafi verið ráð fyrir myndarlegum afgangi á fjárlögum hafi raunin oftast orðið önnur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×