Björguðu lífi vinar síns 14. febrúar 2005 00:01
Tveir ellefu ára drengir unnu hetjudáð um helgina þegar þeir björguðu lífi tíu ára vinar síns. Þremeningarnir voru í Kringlunni þegar einn þeirra fann fyrir miklum verk, en í ljós kom að hann var með gat á lunga. Hundur eins var með þeim og varð það til þess að strætóbílstjóri neitaði þeim um far. Félagarnir þrír brugðu sér í Kringluna á laugardag. Á leiðinni þangað fann einn þeirra, Róbert Heiðar, fyrir verk, en lét ekki á neinu bera. Í Kringlunni fengu þeir sér ís og versnaði þá líðanin. Þeir ákváðu að snúa heim og fóru út á strætóbiðstöð en þar sem þeir voru með hund eins þeirra fengu þeir ekki far með vagninum. Alexander Theódórsson, einn strákanna, segir að á leiðinni frá strætóskýlinu hafi Róbert hnigið niður og verið mjög illt. Hann og Arnar Þór Stefánsson hafi gripið um hann og stutt hann í aftur strætóskýlið og þeir hafi fengið far með næsta strætó. Farþegi sem var í þeim vagni sá að ekki var allt í lagi og ætlaði að hringja á neyðarlínuna. Þeir afþökkuðu það enda nánast komnir á leiðarenda. En þegar þeir komu út úr vagninum var Róbert Heiðar orðinn mjög slappur og þurfti félagi hans, Arnar Þór, að halda á honum heim. Aðspurður hvort það hafi ekki verið erfitt sagði Arnar svo ekki hafa verið. Þegar Róbert kom heim lagðist hann í gólfið alveg uppgefinn og með verki. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem í ljós kom gat á lunga og þarf hann að taka lífinu með ró. Hann og bjargvættirnir og einn félagi til viðbótar voru í veislu á heimili Róberts í dag þar sem þeim var þökkuð frammistaðan. Þremeningarnir voru með síma á sér þegar þeir voru í Kringlunni á laugardag en notuðu ekki. Róbert segir að félagar hans hafi reynt að hringja en hann hafi ekki viljað það þar sem hann hafi haldið að hann væri bara með lítinn verk sem hann fengi stundum. Aðspurðir hvort þeir hafi ekki verið hræddir svöruðu þeir játandi.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira