Fleiri fréttir

Fyrsta nýja kaupskipið í áratug

Fyrsta kaupskipið sem er smíðað fyrir Íslendinga í áratug siglir ekki undir íslenskum fána heldur færeyskum af skattaástæðum. Samgönguráðherra segir sig og fjármálaráðherra vera að skoða hvort unnt sé að breyta skattafyrirkomlaginu. Skipið var afhent í Hamborg um helgina.

Ekki hætta á flóðum í Reykjavík

Talsvert frost hefur verið á landinu það sem af er vetri en á næstunni er spáð hlýindum um allt land. Í Reykjavík mun hitinn vera frá fimm og upp í átta til níu stig þegar best lætur.

Fyrsta nýja kaupskipið í áratug

Fyrsta kaupskipið sem er smíðað fyrir Íslendinga í áratug siglir ekki undir íslenskum fána heldur færeyskum af skattaástæðum. Samgönguráðherra segir sig og fjármálaráðherra vera að skoða hvort unnt sé að breyta skattafyrirkomlaginu. Skipið var afhent í Hamborg um helgina.

Skriður gætu valdið flóðbylgju

Skriður af völdum eldgosa í Atlantshafi geta komið af stað hárri flóðbylgju sem næði alla leið til Íslands, segir Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur. Hættur á hafsbotni og afleiðingar hamfaranna á Indlandshafi verða til umfjöllunar á málþingi jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands í vikunni.

Segir smáþjóðir geta skipt sköpum

Ísland og aðrar smáþjóðir geta skipt sköpum í sáttaumleitunum með því að sýna hógværð í umdeildum alþjóðamálum, segir Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs. Hann telur smáþjóðir geta haft mikil áhrif með starfi innan öflugra alþjóðastofnana.

Lítið forrit lækkar símreikninginn

Eitt lítið tölvuforrit getur lækkað símreikning fólks um þúsundir króna á mánuði. Tugir milljóna manna nota þetta forrit nú þegar og þeim fer fjölgandi með degi hverjum. Tölvusérfræðingur segir að þetta kollvarpi símamarkaðnum.

Ekki alvarlegt athæfi

Tilkynnt var um þjófnað á næturklúbbnum Casino í Keflavík klukkan 04.38 aðfaranótt gærdagsins. Klúbburinn var enn þá opinn, en hann er með frjálsan opnunartíma, þegar starfsfólk kom að manni fyrir innan barborðið. Maðurinn var þá búinn að opna peningakassa staðarins og taka úr honum 4.500 krónur.

Próftaka í héraði

Lífleg starfsemi hefur verið í Þekkingarsetrinu á Húsavík að undanförnu að sögn Óla Halldórssonar, forstöðumanns setursins. Tugir nemenda frá Húsavík, sem stunda nám við Háskólann á Akureyri, nota setrið reglulega til náms og margir hafa tekið þar fjarpróf.

Eldur laus í íbúð á dvalarheimili

Grunur leikur á að vistmaður á dvalarheiminu Ási í Hveragerði hafi sjálfur kveikt eld sem upp kom í íbúð hans þar í gærkvöldi. Brunaviðvörunarkerfi lét vita af eldinum laust fyrir klukkan sjö í gærkvöldi og bárust boð til neyðarlínunnar.

Tekinn fyrir ölvunarakstur

Ökumaður, sem grunaður er um ölvun, varð valdur að árekstri á Ísafirði laust fyrir klukkan fimm í morgun. Tveir fólksbílar rákust saman á gatnamótum Ásgeirsgötu og Suðurgötu á Tanganum og reyndist ökumaður annars bílsins, piltur um tvítugt, ölvaður. Hann gistir nú fangageymslu lögreglunnar á Ísafirði.

Stoltenberg ræðir um öryggismál

Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, verður aðalræðumaður á málþingi framtíðarhóps Samfylkingarinnar um stöðu öryggismála í heiminum, sem fram fer á Grand Hóteli í Reykjavík í dag.

Reyndu að ryðjast inn á þorrablót

Fjórir óboðnir gestir, þrír piltar og ein stúlka, sem reyndu að komast inn á þorrablót í Garðabæ í nótt enduðu í fangageymslu lögreglunnar. Fólkinu var meinuð innganga á þorrablót Stjörnunnar í Ásgarði en lét sér ekki segjast og neitaði að hlýða fyrirmælum lögreglu. Greip lögregla þá til þess ráðs að handtaka fjórmenninganna.

Teknir fyrir verkfæraþjófnað

Þrír sextán ára piltar voru gripnir við innbrot í vinnuskúra á Álftanesi í nótt. Til piltanna sást og var lögregla látin vita. Reyndu þeir að komast undan en lögregla náði þeim fljótlega á hlaupum. Höfðu piltarnir stolið verkfærum og komið þeim undan en þeir vísuðu síðan á þýfið. Málið telst upplýst.

Litlar líkur á svipuðum bruna

Brunamálastofnun telur í skýrslu um brunann á athafnasvæði Hringrásar í Sundahöfn þann 22. nóvember síðastliðinn litlar líkur á því að svipaðir atburðir gerist aftur þar sem hvergi er jafn miklu af hjólbörðum safnað saman nálægt íbúðarbyggð og var á athafnasvæði Hringrásar.

Fjölmenni á skíðasvæðum

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa flykkst á skíðasvæðin í kringum borgina enda veður gott og aðstæður fínar til skíðaiðkunar. Að sögn Loga Sigurfinnssonar, framkvæmdastjóra skíðasvæðanna, eru á milli tvö og þrjú þúsund manns í Bláfjöllum í hægviðri en þar hefur hlýnað nokkuð miðað við síðustu daga.

Magnús formaður Varðar

Magnús L. Sveinsson var í dag kjörinn formaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, á aðalfundi sem haldinn var á Hótel Sögu. Magnús er fyrrverandi formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur og fyrrverandi forseti borgarstjórnar en hann var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokkinn til margra ára.

Ný lög auka hættu á stórbrunum

Ný lög og reglugerðir um söfnun og förgun úrgangs hafa skapað aukna hættu á stórbrunum og geta leitt til hættu fyrir almenning. Þetta kemur fram í skýrslu Brunamálastofnunar vegna brunans í Hringrás fyrir tveimur mánuðum. Skýrslan vekur enn fremur athygli á því að eigendur fyrirtækja hér á landi gera sér ekki nægjanlega grein fyrir lagalegri ábyrgð sinni hvað brunavarnir varðar.

Drengur slasast við Hólmavík

Björgunarsveitin Dagrenning á Hólmavík var kölluð út upp úr kl.16 í dag eftir að ungur drengur sem var á ferð með föður sínum á vélsleða við Kálfanes, sem er við flugvöllinn á Hólmavík, slasaðist lítils háttar eftir að vélsleði þeirra fór fram af lítilli hengju.

Brunabótamatið ónothæft

Brunbótamat er ónothæfur grundvöllur til að ákvarða veðhæfni eigna. Því ber að breyta strax og miða lánveitingar við kaupverð eigna, að mati Jónnu Sigurðardóttur þingmanns Samfylkingarinnar. Jóhanna ritar um málið á heimasíðu sinni og segir að vegna misræmis brunabótamats og kaupverðs hafi rýmkaðir lánamöguleikar Íbúðalánasjóðs ekki hafa nýst sem skyldi.

Höfðu heimild til að taka ákvörðun

Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson höfðu fulla lagalega heimild til þess að taka einir þá ákvörðun að styðja innrás Bandaríkjanna og Bretlands í Írak. Þetta segir Eiríkur Tómasson, forseti lagadeildar Háskóla Íslands.

Heimurinn hættulegri eftir innrás

Heimurinn er hættulegri og hryðjuverkaógnin hefur aukist eftir innrásina í Írak, segir Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, sem var aðalræðumaður á málþingi um öryggismál í heiminum, sem Samfylkingin hélt í dag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að aðild Íslands að innrásinni gangi á svig við friðarímynd landsins.

Segir samruna draga úr samkeppni

Tvö af minnstu tryggingafélögum landsins hafa sameinast og eru nú að meirihluta komin í eigu VÍS, sem er eitt af stóru tryggingafélögunum. Formaður Neytendasamtakanna segir þetta draga úr samkeppni og hækka verðið til neytenda.

Segir ekki gripið til uppsagna

Formaður stjórnarnefndar Landspítalans segir að þótt stefnt sé að því að draga úr rekstrarkostnaði spítalans um rúmlega 500 milljónir króna verði öllum ráðum beitt til að tryggja áfram eðlilega þjónustu. Hann segir ekki koma til greina að grípa til frekari uppsagna.

Óbeinar reykingar mjög skaðlegar

Óbeinar reykingar eru mjög skaðlegar og valda miklu heilsutjóni á vinnustöðum, samkvæmt erindi sem sænskur lungnasérfræðingur flutti á Læknadögum sem haldnir voru í Reykjavík. Það er óviðunandi að vinnuvernd nái ekki yfir starfsfólk veitingastaða, segir formaður Tóbakasvarnaráðs.

Fjórir handteknir í Garðabæ

Fjórir 17 ára piltar voru handteknir fyrir utan Stjörnuheimilið í Garðabæ aðfaranótt laugardags. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði voru piltarnir að reyna að komast inn á Þorrablótsskemmtun sem þar var haldin án þess að hafa til þess aldur.

Blótin fara vel fram

Landsmenn blótuðu þorrann víða á bóndadag en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu um allt land fóru þorrablótin almennt vel fram og fólk var víðast hvar prútt og stillt.

Tveimur vélsleðum stolið

Tveimur vélsleðum var stolið frá Litlu kaffistofunni aðfaranótt laugardags. Að sögn lögreglunnar á Selfossi liggur ekki fyrir hvernig sleðunum var stolið eða hver hafi gert það en málið er í rannsókn.

45 gætu misst vinnuna

Þetta kemur kannski ekki á óvart en ég ætla að vona að svona mörg störf tapist ekki. Maður getur rétt ímyndað sér ef annað eins hlutfall starfa myndi glatast á einu bretti á höfuðborgarsvæðinu," segir Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar fyrir Norðaustur kjördæmis um fréttir þess efnis að Samherji muni hugsanlega leggja niður landvinnslu á Stöðvarfirði.

Fátækt nýja ógnin

Hagsmunum Norðurlandaþjóðanna er best borgið innan alþjóðlegra stofnana líkt og Sameinuðu þjóðanna, NATO og Evrópusambandsins. Þetta sagði Thorvald Stoltenberg, fyrrum utanríkisráðherra Noregs og forseti norska Rauða Krossins, á málþingi framtíðarhóps Samfylkingar í gær.

Mikil viðbrögð

Mikil viðbrögð hafa borist vegna auglýsingar Þjóðarhreyfingarinnar sem birtist í dagblaðinu New York Times á föstudag, að sögn Ólafs Hannibalssonar.

Grunaður um sölu á hassi

Lögreglan í Keflavík fann 70 grömm af hassi við húsleit hjá manni í Njarðvík í gærkvöldi og lagði hald á efnið. Í fyrrakvöld, þegar lögreglumenn þurftu að hafa tal af sama manni, fundust sjö grömm á honum. Hann er grunaður um að hafa ætlað að selja efnið og er málið í frekari rannsókn.

Reyndist heill á húfi

Maður á níræðisaldri, sem farið var að óttast um í Kópavogi í gærkvöldi, kom fram heill á húfi rétt eftir að búið var að kalla út fjörutíu björgunarsveitarmenn með leitarhunda til að leita að honum. Hann hafði villst á göngu sinni og maður sem sá til hans og grunaði að ekki væri allt með felldu ræddi við hann og ók honum heim eftir að ljóst varð hvernig á stóð.

Gæsluvarðhald rennur út í dag

Gæsluvarðhald yfir íslenskri konu, sem handtekin var í Leifsstöð á þriðjudag með fíkniefni í fórum sínum, rennur út í dag. Ekki hefur verið gefið upp hversu mikið af fíkniefnum fannst en hún var bæði með efni innvortis og innan klæða. Konan var að koma frá Kaupmannahöfn þegar hún var handtekin.

Fjölmörg loðnuskip í Norðfirði

Það er óvenju líflegt í og á Norðfirði þessa stundina. Nokkur stór, norsk loðnuskip lóna á firðinum og keppast áhafnir þeirra við að frysta loðnu um borð. Íslensk loðnuskip eru á þönum inn og út. Ýmist landa þau frystum loðnuafurðum eða ferskri loðnu til bræðslu eða frystingar í landi. Loks er von á flutningaskipi til að flytja afurðirnar til út.

Innlendir aðilar á fund Impregilo

Fundur sem verktakafyrirtækið Impregilo boðaði til með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins og fulltrúum ítalskra og íslenskra verkalýðshreyfinga hófst klukkan níu. Tilgangur hans er óljós. Fyrr í morgun hittust fulltrúar íslenskra verkalýðsfélaga og fulltrúar Alþjóðasambands byggingarverkamanna þar sem farið var yfir gildandi lög hér á landi og samninga við Impregilo.

Kaupmáttarauking í fyrra aðeins 2%

Kaupmáttaraukningin hér á landi í fyrra var aðeins tvö prósent, sem er langt undir meðaltali síðastliðinna tíu ára. Þá var verðbólgan talsvert yfir meðaltali í löndum á Evrópska efnahagssvæðinu.

Sakaðir um stórfelld skattsvik

Þremur af fyrrverandi stjórnendum Skjás eins, sem hlutu dóma í fyrra vegna stórfellds þjófnaðar frá Landssímanum, er nú gefið að sök að hafa svikið hátt í 60 milljónir króna undan skatti. Það er vegna fimm fyrirtækja sem þeir ráku og Ríkislögreglustjóri hefur rannsakað. Brotin ná meðal annars til vangoldinna vörsluskatta.

Óskar eftir skýringum sýslumanns

Bogi Nilsson ríkissaksóknari segir að óskað hafi verið eftir skýringum frá sýslumanninum í Vestmannaeyjum vegna frétta um að kæra fyrir líkamsárás hafi verið fyrnd þegar loks var ákært í málinu.

Fundargerð orðin opinber

Fréttablaðið birtir í morgun orðréttan texta upp úr fundargerðum utanríkismálanefndar Alþingis. Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur farið fram á að trúnaði verði aflétt af fundargerðum nefndarinnar og ríkisstjórnarinnar þar sem fjallað var um aðdraganda ákvörðunarinnar um stuðning Íslands við innrásina í Írak og um að Ísland skyldi vera sett á lista hinna staðföstu þjóða.

Dreifbýli megi síst við hækkunum

Húshitunarkostnaður á Vestfjörðum hækkar um 70 til 80 milljónir króna á ári, eða um hátt í tíu þúsund krónur á hvert mannsbarn, í kjölfar breytinga á rekstrarumhverfi raforkufyrirtækja. Einar K. Guðfinnsson alþingismaður segir að strjálbýlið megi alls ekki við slíku og að leita verði allra leiða til að koma í veg fyrir þetta.

Ráðherra vill aukið eftirlit

Eftirlit með erlendu ólöglegu vinnuafli hér á landi er á hendi lögreglu, segir dómsmálaráðherra. Ráðuneyti hans hefur ekki haft þessi mál sérstaklega til skoðunar að undanförnu, þrátt fyrir fullyrðingar um ólöglega atvinnustarfsemi hér. Félagsmálaráðherra vill hert eftirlit. </font /></b />

Ráðleggur körlum breyttan lífsstíl

Mikilvægt er að hlusta á karla sem hafa einkenni minnkandi karlhormóns og breytingaskeiðs og gefa þeim góð og lífsstílsbreytandi ráð, segir Jón Gunnars Hannesson heimilislæknir.

Karlar hópast í kynhormónameðferð

Íslenskir karlar fara í síauknum mæli í kynhormónameðferð, þegar þeir fara að kenna einkenna breytingaskeiðsins. Þau eru helst þreyta, framtaksleysi og depurð, jafnvel þunglyndi, sem og minnkandi áhugi og geta til kvenna. </font /></b />

Miltisbrandur girtur af

Nú stendur yfir girðingavinna á bænum Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd, þar sem miltisbrandur drap hross á dögunum.

Sviðakjammar og gervihnattadiskar

Augu handboltaunnenda beinast að Túnis meðan Heimsmeistaramótið stendur yfir. Landið sker sig úr Miðjarðarhafinu inn í norðanverða Afríku og lúrir þar milli Alsír, Líbýu og hafs. Túnis er nokkuð stærra en Ísland og íbúarnir tæpar tíu milljónir. Landið laut yfirráðum Frakka um árabil og franskra áhrifa gætir í menningu og mannlífi. </font /></b />

Sjá næstu 50 fréttir