Fyrsta nýja kaupskipið í áratug 23. janúar 2005 00:01
Fyrsta kaupskipið sem er smíðað fyrir Íslendinga í áratug siglir ekki undir íslenskum fána heldur færeyskum af skattaástæðum. Samgönguráðherra segir sig og fjármálaráðherra vera að skoða hvort unnt sé að breyta skattafyrirkomlaginu. Skipið var afhent í Hamborg um helgina. Það var Ingibjörg Kristjánsdóttir, eiginkona Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Samskipa, sem gaf skipinu nafnið Arnarfell við höfnina í Hamborg að viðstöddu fjölmenni: fulltrúum eigenda Samskipa, fulltrúa Seatas-skipasmíðastöðvarinnar og Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra. Skipið kostar 1,7 milljarða króna og getur borið nærri þúsund gáma. Það er fyrsta kaupskipið sem smíðað er fyrir Íslendinga í nærri áratug, en undanfarinn aldarfjórðung hafa aðeins þrjú önnur verið smíðuð fyrir Íslendinga. Burðargeta Arnarfellsins er rúmlega 11 þúsund tonn en það er 138 metra langt og 21 metri á breidd og er ganghraðinn liðlega 18 sjómílur. Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, sagði daginn ánægjulegan og hann væri mjög glaður að taka á móti Arnarfellinu. Hann segir þetta fyrikomulag hafa verið hagstæðasta kostinn fyrir Samskip en skipið er hannað eftir óskum félagsins og sérhannað fyrir þær aðstæður sem geta orðið á Norður-Atlantshafi. Á því sé sérstakur bakki sem sé til þess að verja gáma og frakt fyrir brotsjó og eins sé byggt yfir spil og vindur til þess að verja skipið sem best fyrir sjónum við strendur Íslands. En þrátt fyrir að þetta sé fyrsta kaupskipið sem smíðað er fyrir Íslendinga í um áratug siglir það ekki undir íslenskum fána eins og ýmsir hefðu haldið heldur færeyskum. Þetta er vegna skattamála, en Færeyingar bjóða fyrirtækjum í skiparekstri upp á skattaafslátt sem Íslendingar gera ekki. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir að innan ríkisstjórnarinnar sé verið að skoða hvort hægt sé að breyta þessu. Á borði hjá honum og fjármálaráðherra séu tillögur sem þeir séu að láta vinna úr og vonandi komist þeir fljótlega að niðurstöðu. En það er skammt stórra högga á milli í nýsmíði íslenskra kaupskipa því í næsta mánuði verður annað skip afhent Samskipum og er það einnig smíðað í Seatas-skipasmíðastöðinni í Hamborg. Það nefnist Helgafell og er systuskip Arnarfellsins. Vinna við Helgafellið stendur nú sem hæst og þótt ótrúlegt megi virðast verður það tilbúið til afhendingar í febrúarlok.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í útkalli á Hringbraut Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Sjá meira