Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Með fíkniefni innvortis Íslensk kona um þrítugt var handtekin á Keflavíkurflugvelli með fíkniefni innvortis og í fórum sínum þegar hún kom til landsins á þriðjudag. Í kjölfarið var konan úrskurðuð í gæsluvarðhaldi til dagsins í dag. 20.1.2005 00:01
Gerir athugasemd við geðrannsóknin Hákon Eydal, sem varð Sri Rahmawati að bana, hefur hætt við að fara fram á að dómskvaddir matsmenn geri aðra geðrannsókn á honum en hann er að hluta til ósáttur við þá geðrannsókn sem gerð hefur verið. Milliþinghald var í málinu gegn honum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 20.1.2005 00:01
Sniffuðu kókaín á salernisvaskinum Nokkrir veitingahúsaeigendur sem Fréttablaðið ræddi við segja að ekki fari á milli mála að talsvert mikið sé notað af kókaíni samhliða skemmtanahaldi í miðborg Reykjavíkur. 20.1.2005 00:01
Reyndist einnig vera með LSD Brasilísk kona sem var handtekinn á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins fyrir að reyna að smygla 850 grömmum af kókaíni var einnig með um tvö þúsund skammta af LSD. LSD-sýran var í töfluformi sem falin var í leggöngum konunnar en hún kom til landsins rétt fyrir jól. 20.1.2005 00:01
Katrín í Lýsi fær viðurkenningu Félag kvenna í atvinnurekstri veitti í dag Katrínu Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Lýsis, viðurkenningu fyrir vel unnin störf en hún þykir geta orðið öðrum konum hvatning og fyrirmynd. Þetta er í sjötta sinn sem viðurkenningin er veitt. Katrín Pétursdóttir tók við Lýsi árið 1999 og hefur snúið rekstrinum til betri vegar. 20.1.2005 00:01
Þjóðlagahátíðin fékk Eyrarrósina Gunnsteinn Ólafsson tónlistarmaður tók við Eyrarrósinni úr hendi Dorritar Moussaieff forsetafrúar í dag en hún er viðurkenning fyrir menningarvakningu á landsbyggðinni. Gunnsteinn stóð fyrir þjóðlagahátíðinni á Siglufirði. Auk þess að fá verðlaunagrip fær hátíðin hálfa aðra milljón króna í styrk. 20.1.2005 00:01
Árni Þór og Kristján Ra ákærðir Kristján Ragnar Kristjánsson og Árni Þór Vigfússon, kenndir við Skjá einn, hafa ásamt þremur öðrum mönnum verið ákærðir fyrir stórfelld skattalagabrot. Málið varðar vanskil á sjötta tug milljóna króna í vörslusköttum, virðisaukasköttum og staðgreiðslu. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 20.1.2005 00:01
Gæti bjargað Landsvirkjun Úrskurður Héraðsdóms um að Álverið við Reyðarfjörð þurfi að fara í nýtt umhverfismat gæti bjargað Landsvirkjun frá hárri skaðabótakröfu vegna tafa við Kárahnjúkastíflu. Úrskurðurinn gæti meira að segja orðið til þess að eigandi Álversins þyrfti að greiða Landsvirkjun en ekki öfugt. 20.1.2005 00:01
Helmingi ódýrari jarðgöng til Eyja Sænska verktakafyrirtækið NCC telur sig geta borað jarðgöng út í Vestmannaeyjar fyrir helmingi lægra verð en Vegagerðin gerði ráð fyrir. Kostnaðaráætlun NCC hljóðar upp á 14-16 milljarða króna. 20.1.2005 00:01
Lögreglumaður sóttur með valdi Ungur maður hefur höfðað mál gegn lögreglunni fyrir ólögmæta handtöku og skerðingu tjáningarfrelsis þegar honum var meinað að mótmæla komu forseta Kína hingað til lands. Lögreglumaður, sem handtók manninn og er sakaður um að hafa hótað honum í framhaldinu, mætti ekki fyrir dóm og var þess krafist í dag að hann yrði sóttur með lögregluvaldi. 20.1.2005 00:01
KB stefnir Mjólkurfélaginu KB banki hefur stefnt Mjólkurfélagi Reykjavíkur til að greiða hálfan milljarð króna vegna samnings sem fyrrverandi stjórnarformaður félagsins gerði við bankann vegna viðskipta með Fóðurblönduna. Mjólkurfélagið segir samninginn ólögmætan. 20.1.2005 00:01
Sýknaður fyrir að aka löggur Maður sem var ákærður fyrir að aka á lögreglumenn við Lyfju í Lágmúla í Reykjavík var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 20.1.2005 00:01
Í ósamræmi við loforð ráðamanna Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir afleiðingar frumvarps um eftirlaun æðstu embættismanna ríkisins í hróplegu ósamræmi við loforð ráðamanna um að jafna lífeyrisréttindi í landinu. Hann segir sérkennilegt að sendiherrar teljist ekki vera á vinnumarkaði. 20.1.2005 00:01
Samfylkingin vill aflétta trúnaði Þingflokkur Samfylkingarinnar fer fram á að trúnaði verði aflétt af fundargerðum utanríkismálanefndar og ríkisstjórnarinnar þar sem fjallað var um aðdraganda ákvörðunarinnar um stuðning Íslands við innrásina í Írak. 20.1.2005 00:01
Akureyrarbær braut jafnréttislög Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra um að Akureyrarbær hefði brotið jafnréttislög. Brotið snýr að því að konu var mismunað í launakjörum á grundvelli kynferðis. 20.1.2005 00:01
Ákærðir fyrir skattsvik Kristján Ragnar Kristjánsson og Árni Þór Vigfússon hafa, ásamt þremur öðrum mönnum, verið ákærðir fyrir skattalagabrot í tengslum við rekstur fyrirtækja sem þeir áttu. Ríkisútvarpið greindi frá þessu í gærkvöld. 20.1.2005 00:01
Byggt við Björgunarmiðstöðina SHS-fasteignir ehf. hafa samið við Keflavíkurverktaka hf. um byggingu þriðja og síðasta áfanga Björgunarmiðstöðvarinnar Skógarhlíðar í Reykjavík og munu Landhelgisgæslan og Bílamiðstöð Ríkislögreglustjórans flytja í nýja húsnæðið. Um er að ræða 1.626 fermetra alls og er byggingarkostnaður áætlaður 258 milljónir króna. Framkvæmdir hefjast nú í janúar en þeim á að vera lokið 31. ágúst næstkomandi. 20.1.2005 00:01
Haförn í Húsdýragarðinum Komið var með stóran og mikinn haförn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn á dögunum en hann fannst austur í Grafningi þar sem hann hafði flogið á raflínu. Við áreksturinn fór „Erna“, en það heiti fékk fuglinn við komuna í bæinn, úr lið á vinstri væng. 20.1.2005 00:01
Trúnaði aflétt af fundargerðum Þingflokkur Samfylkingarinnar fer fram á að trúnaði verði aflétt af fundargerðum funda utanríkismálanefndar og ríkisstjórnarinnar þar sem fjallað var um aðdraganda ákvörðunarinnar um stuðning Íslands við innrásina í Írak og um að Ísland skyldi vera sett á lista hinna staðföstu þjóða. 20.1.2005 00:01
Víðtækt samstarf lögregluliða Lögreglustjórinn á Akranesi og varalögreglustjórinn í Reykjavík ásamt yfirlögregluþjónum undirrituðu í dag samning um víðtækt samstarf lögregluliðanna í Reykjavík og á Akranesi til að styrkja löggæslu á Akranesi, Kjalarnesi, Kjósarhreppi og eftir atvikum í Mosfellsbæ. 20.1.2005 00:01
Ummæli um Írak stangast á Samkvæmt forsætisráðherra hafði Íraksmálið ekki verið rætt í ríkisstjórn viku áður en ákvörðunin um stuðninginn við innrásina í Írak var tekin. Þingmenn Framsóknarflokksins greinir á um hvort Íraksmálið hafi verið rætt í þingflokknum eða ekki. </font /></b /> 19.1.2005 00:01
Skoða aðstæður við Kárahnjúka Ítalska verkalýðshreyfingin kemur til Egilsstaða í kvöld og fer að Kárahnjúkum á morgun og eyðir þar deginum. Forystumennirnir koma svo suður á föstudag. 19.1.2005 00:01
Snjóflóð lokaði veginum Tíu metra breitt og tveggja metra djúpt snjóflóð féll á þjóðveginn á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar í gærkvöldi og lokaði honum. Enginn var á ferð um veginn þegar það féll og Vegagerðin ruddi veginn. 19.1.2005 00:01
Hálka víðast hvar Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði, hálka og éljagangur á Suðurlandi og hálka og hálkublettir á Suðausturlandi. Hálka og skafrenningur er á Vesturlandi, á Vestfjörðum er hálka, snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði, ófært og stórhríð er á milli Bíldudals og Patreksfjarðar, þungfært og stórhríð er á Kleifarheiði og Klettshálsi. 19.1.2005 00:01
Samráð á kjarnfóðurmarkaði? Fimmtíu íslenskir bændur sem staddir eru í Danmörku þessa dagana ætla að kanna til hlítar hvernig það megi vera að kjarnfóður fyrir kýr sé allt að helmingi ódýrara í Danmörku en á Íslandi. Þessu vilja þeir ekki una, ekki síst með tilliti til vaxandi samkeppni af erlendum mjólkurvörum, og ætla að leita allra leiða til að ná verðinu niður. 19.1.2005 00:01
Slasaðist á snjóbretti Unglingspiltur féll af snjóbretti í Bláfjöllum um áttaleytið í gærkvöldi og slasaðist. Hann meiddist meðal annars á öxl og var fluttur í sjúkrabíl á slysadeild en var ekki talinn alvarlega slasaður. 19.1.2005 00:01
Sextíu úrum stolið í nótt Brotist var inn hjá úrsmið við Laugaveginn í nótt og þaðan stolið að minnsta kosti sextíu úrum. Þjófurinn braut rúðu í útihurð og gler í sýningarskápum og lét greipar sópa. Hann var eldsnöggur á vettvangi og komst undan með þýfið og er enn ófundinn. Andvirði þýfisins nemur hundruðum þúsunda króna. 19.1.2005 00:01
Sextán ára stúlka undir stýri Lögreglan í Keflavík stöðvaði sextán ára stúlku á bíl í miðbænum í gærkvöldi og var hún að sjálfsögðu réttindalaus vegna aldurs. Í ljós kom að hún hafði fengið bílinn lánaðan upp á að vinkona hennar, sem hefur réttindi, æki bílnum. Hún ók hins vegar sjálf en sú með réttindin fékk að sitja í sem farþegi. 19.1.2005 00:01
Norsk loðnuskip á Íslandsmiðum Um það bil tuttugu norsk loðnuskip eru komin á miðin austur af landinu og hafa nokkur þeirra þegar fengið afla. Þau mega veiða 45 þúsund tonn af loðnu í íslenskri lögsögu, samkvæmt samningi Norðmanna og Íslendinga um nýtingu stofnsins, en aflann mega þau aðeins veiða í nót en ekki flottroll sem gefið hefur góða raun hjá íslensku skipunum. 19.1.2005 00:01
Fischer íslenskur ríkisborgari? Bobby Fischer gæti fengið íslenskan ríkisborgararétt með lagasetningu strax í næstu viku þegar þing kemur saman. Lögfræðingar Fischers telja að ríkisborgararéttur myndi auka möguleika hans á að fá fararleyfi til Íslands. Japanskur dómari féllst í nótt ekki á beiðni Fischers um að verða fluttur hingað til lands. 19.1.2005 00:01
Bjór úr íslensku byggi Nýtilkomin byggrækt er bændum ekki aðeins drjúg búbót í stað innflutts fóðurbætis heldur er nú farið að brugga Þorrabjór, sem nú er kominn á markað, úr íslensku byggi. 19.1.2005 00:01
Veðurstofan ákveði ekki rýmingu Átta sýslumenn og bæjarstjórar á Vestfjörðum hafa sent frá sér orðsendingu vegna umræðna um að Veðurstofan eigi ekki að taka ákvörðun um rýmingu húsa vegna hættu á snjóflóðum og skriðuföllum. Bent er á að Veðurstofan hafi ekki lögregluvald til að rýma hús heldur sé það hlutverk lögreglustjóra og almannavarnanefnda. 19.1.2005 00:01
Andvíg Íraksstríði fyrir kosningar Dagný Jónsdóttir og Birkir J. Jónsson sátu í æðstu embættum Sambands ungra Framsóknarmanna þegar Íraksstríðið var við að hefjast og mótmæltu þá harðlega. Ungir Framsóknarmenn eru enn á sömu skoðun en Birki hefur snúist hugur. Afstaða Dagnýjar er óljós í dag. 19.1.2005 00:01
Landsliðið og strákarnir okkar Handboltaáhugi Íslendinga sveiflast upp og niður. Heimsmeistaramótið í Túnis hefst á sunnudag en óhætt er að segja að þjóðin haldi ró sinni. Þjálfarinn er bjartsýnn og metnaðarfullur en gengið í æfingaleikjum heldur dapurt. Úrslit fyrstu leikja á HM sker úr um hvort Íslendingar verða handboltaþjóð á þorranum eða ekki. Örfáir ætla til Túnis að fylgjast með. </font /></b /> 19.1.2005 00:01
Íslenskt bygg í þorrabjórnum Ölgerðin Egill Skallagrímsson bruggar þorrabjór sinn þetta árið að hluta úr íslensku byggi. Íslenskt bygg hefur ekki áður verið notað til bjórframleiðslu en landbúnaðarforystan sér fram á bjarta tíma í þessum efnum og vonast til að þetta sé aðeins upphafið að einhverju meira. 19.1.2005 00:01
Hellisheiði lokuð Hellisheiði hefur verið lokað vegna slæmrar færðar að sögn Vegagerðarinnar. Fólk hefur þurft að skilja bíla sína eftir úti í vegakanti í morgun og hafa björgunarsveitarmenn unnið að því að koma ökumönnum til aðstoðar. Fólki er eindregið ráðið frá því að aka heiðina að svo stöddu. 19.1.2005 00:01
Margir 35-44 ára tannlausir Rúmlega 550 einstaklingar á aldrinum 35 til 44 ára eru tannlausir í báðum gómum. Tannlækningastofnun Háskóla Íslands heldur áfram að rannsaka tannheilsu Íslendinga og í fjórða áfanga þeirrar rannsóknar er fjallað um fólk á þessum aldri. 19.1.2005 00:01
Innflytjendum vefst tunga um tönn Ný könnun á viðhorfum og aðstæðum innflytjenda á Vestfjörðum og Austurlandi sýni að fjölmargir eiga í mesta basli með íslenskuna. Af því leiðir að margir skilja ekki ráðningarsamninga sem þeir þó hafa undirritað. Könnunin sýnir líka að margir innflytjendur eiga börn í upprunalandinu, margir búa í eigin húsnæði og atvinnuleysi meðal þeirra er nánast óþekkt. </font /></b /> 19.1.2005 00:01
Snjóflóðahætta að verða liðin tíð Ekkert íbúðarhús í Ísafjarðarkaupstaðnum sjálfum var rýmt í óveðrinu fyrir nokkrum dögum og Ísafjarðarbær, með Suðureyri, Flateyri, Þingeyri og Hnífsdal innanborðs, er í heild að verða býsna öruggt svæði gagnvart snjóflóðum, að sögn Halldórs Halldórssonar bæjarstjóra. 19.1.2005 00:01
Laun bæjarfulltrúa lækkuð Tillaga um að lækka laun bæjarfulltrúa og bæjarráðsmanna í Reykjanesbæjar var borin upp á bæjarstjórnarfundi í gær og var tillögunni vísað til bæjarráðs. Það var Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, sem bar tillöguna fram en nauðsynlegt er að draga úr kostnaði hjá yfirstjórn bæjarins um fjórar milljónir króna. 19.1.2005 00:01
Fullnægjandi meðferð gæti fundist Samstarf norrænna vísindamanna hefur leitt í ljós að frávik í tveimur genum auki líkurnar á því fá gigtarsjúkdóminn lúpus sem oft nefnist „rauðir úlfar“ á íslensku. Að sögn Snævars Sigurðssonar lífefnafræðings hefur verkefnið staðið yfir í rúm þrjú ár. Uppgötvunin getur orðið til þess að fullnægjandi meðferð finnist innan tíðar. 19.1.2005 00:01
Úrbætur í íslenskukennslu Stjórnvöld hafa ákveðið að efna til samstarfs við Kennaraháskólann um úttekt á íslenskukennslu innflytjenda og tillögum til úrbóta, að sögn Árna Magnússonar félagsmálaráðherra. Hann kvaðst frekar eiga von á að bætt yrði úr vanköntum sem kynnu að koma fram. Hann teldi að úrbóta væri þörf. 19.1.2005 00:01
Einnota atvinnuleyfi Ný tegund atvinnuleyfa er nú til athugunar í félagsmálaráðuneytinu, að sögn Árna Magnússonar ráðherra þar á bæ. 19.1.2005 00:01
Óvenju mikil velta í haust Um 6% íbúða á höfuðborgarsvæðinu hafa skipt um eigendur frá því bankarnir hófu að bjóða verðtryggð íbúðalán á sambærilegum kjörum og Íbúðalánasjóður síðastliðið haust. Þetta er óvenju mikil velta að sögn greiningar Íslandsbanka. 19.1.2005 00:01
110 ára afmæli skáldsins fagnað Á föstudaginn hefði skáldið Davíð Stefánsson frá Fagraskógi orðið 110 ára. Í tilefni af því verður opnuð sýning um Davíð í bókasal Þjóðmenningarhússins við Hverfisgötu þar sem hann verður Skáld mánaðarins. Dagskráin hefst klukkan 17 með ávarpi Guðmundar Andra Thorssonar. 19.1.2005 00:01