Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrettán fá fálkaorðu Forseti Íslands sæmdi þrettán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum nú síðdegis. Þeir sem fengu riddarakross að þessu sinni eru 17.6.2004 00:01
Skólpleiðsla loksins lögð Ekki snúast allar framkvæmdir í Fjarðarbyggð um álversframkvæmdir. Daglegur rekstur sveitarfélagsins hefur heldur aukist við þær framkvæmdir, en daglegt líf gengur sinn gang og kappkostað er þessa dagana að nota veðurblíðuna til að framkvæma verk sem hafa beðið. 17.6.2004 00:01
Óformlegir fulltrúar embættisins "Fyrrum forsetar komast aldrei undan því að hafa verið forsetar og stundum er ætlast til þess að þeir komi að einhverjum málum sem slíkir, en þeir eru að sjálfsögðu ekki fulltrúar forsetaembættisins, né hafa neinum skyldum að gegna við það," segir Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti íslands. 17.6.2004 00:01
Hættir störfum sem íþróttastjóri Íþróttafélag stúdenta kvaddi Valdimar Örnólfsson með hófi í gærkvöldi en hann hætti í vor sem íþróttastjóri Háskólans eftir nærri 37 ára starf. Valdimar söng á Austurvelli í morgun sem einn af Fóstbræðrum en Valdimar hefur löngum þótt liðtækur söngmaður. 17.6.2004 00:01
Íslendingar dagsins í dag Ljósmyndabókin Íslendingar kom út í dag og á sama tíma var opnuð sýning af völdum myndum úr bókinni. Myndefnið er Íslendingar dagsins í dag. Sýningin hefur verið sett upp á Austurvelli og hún er framlag til að skilja hvar Íslendingar eru staddir nú í upphafi 21. aldar. 17.6.2004 00:01
Erum ekki kynþáttahatarar Biskup áminnti þjóðina um að sýna umburðarlyndi í hátíðarguðþjónustu í Dómkirkjunni í dag. Í ræðu sinni lagði hann út af forsíðu blaðins Reykjavík Grapevine, en hana prýðir þeldökk kona íklædd þjóðbúningi Íslendinga. Eins og fram hefur komið í fréttum stöðvar 2 var það ekki heiglum hent að fá hátíðarbúning á konuna sem prýðir forsíðuna að láni. 17.6.2004 00:01
Hallgrímur er gott rauðvín Eftir tólf ár verður hann vel þroskaður, þungur, höfugur með ríkum ilmi. Stefán Jón Hafstein líkti með þessum orðum nýjum borgarlistarmanni við gott rauðvín í dag. Hallgrímur Helgason hlaut titilinn í ár, ekki síst fyrir að hafa gert víðreist og meðal annars komið, einn fárra listamanna, á teppið. 17.6.2004 00:01
Biskup messar yfir forystumönnum Virðing fyrir hinni opnu samræðu og friðsamlegum lausnum ágreiningsmála ætti ætíð að vera aðalsmerki okkar, sagði biskupinn yfir Íslandi, Karl Sigurbjörnsson, þegar hann messaði yfir forystumönnum þjóðarinnar í Dómkirkjunni. 17.6.2004 00:01
Veðurblíðunni var misskipt Þúsundir landsmanna komu saman og fögnuðu í tilefni dagsins þrátt fyrir að veðurblíðunni hafi verið misskipt milli landshluta. Dagskráin í höfuðborginni var vegleg í ár. Hún hófst með hefðbundnum hætti í kirkjugarðinum við Suðurgötu þar sem lagður var blómsveigur að gröf Jóns Sigurðssonar. 17.6.2004 00:01
Tóku saman þátt í opinberri athöfn Forseti Íslands og forsætisráðherra tóku saman þátt í opinberri athöfn í dag í fyrsta sinn frá því forsetinn synjaði lagafrumvarpi forsætisráðherrans staðfestingar. Strikum yfir stóru orðin, standa við þau minni reynum sagði forsætisráðherra og vitnaði í kvæði eftir Hannes Hafstein. 17.6.2004 00:01
Eldsvoði í Hafnarfirði Nú fyrir stundu kom upp eldur í klæðningu í verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði. Allt tiltækt slökkvilið í Hafnarfirði er á staðnum. Ekki lágu fyrir frekari upplýsingar um eldsvoðann. 17.6.2004 00:01
Kveikt í klæðningu Slökkvilið Hafnarfjarðar hefur nú slökkt eld sem kom upp í klæðningu verslunarmiðstöðvarinnar Fjarðarins í miðbæ Hafnarfjarðar fyrir stundu. Allt tiltækt slökkvilið bæjarins fór á staðinn en fjöldi fyrirtækja er í húsinu. 17.6.2004 00:01
Afstaðan í auðu seðlunum Við fyrstu sýn stefna forsetakosningarnar um næstu helgi ekki í að verða spennandi. Samkvæmt skoðanakönnun Gallups myndi Ólafur Ragnar hljóta 71,4 prósent atkvæða ef gengið væri til kosninga í dag. Baldur Ágústsson hlyti 7,9 prósent atkvæða en Ástþór Magnússon 0,6%. Tuttugu prósent kjósenda myndu ekki styðja neinn frambjóðendanna. 17.6.2004 00:01
Ásakanir um fordóma rakalausar Þjóðdansafélag Reykjavíkur hafnar ásökunum um kynþáttafordóma. Ritstjóri tímaritsins Reykjavík Grapevine lét hafa eftir sér í fjölmiðlum að Þjóðdansafélagið hafi neitað að leigja sér skautbúning því fyrirsætan sem átti að skarta honum var svört. 17.6.2004 00:01
Bitnar á síldarútflytjendum Skrifræði Evrópusambandsins getur verið þungt í vöfum og hefur það meðal annars bitnað á íslenskum síldarútflytjendum, sem ekki njóta umsaminnar tollalækkunar. Fimmtán prósenta tollur af síldarflökum átti til dæmis að falla niður fyrsta maí, eftir inngöngu nýju ríkjanna í sambandið. 16.6.2004 00:01
Mestu útflutningstekjurnar Á sama tíma og Frakkar státa sig af útflutningi eðal vína, Suður Afríkumenn af demantaútflutningi og Hollendingar af útflutningi á rósum er blautverkaður saltaður þorskur sú sjávarafurð, sem skilaði Íslendingum mestum útflutningstekjum í fyrra. 16.6.2004 00:01
Göng undir Almannaskarð Sprengingar hefjast í dag vegna gerðar jarðganga undir Almannaskarð í grennd við Höfn í Hornafirði. Þau verða ellefu hundruð metra löng auk 90 metra og 70 metra vegskála við stitt hvorn enda. Ráðgert er að verkinu verði að fullu lokið eftir eitt ár. 16.6.2004 00:01
Hákon og Mette á leið til landsins Hákon Magnús, krónprins Noregs og Mette Marit eiginkona hans, eru væntanleg í opinbera heimsókn hingað til lands 27. þessa mánaðar. Er ráðgert að þau dvelji hér á landi í þrjá daga. Þau munu meðal annars heimsækja síldarminjasafnið á Siglufirði en í ár er þess minnst að hundrað ár eru liðin síðan að síldarævintýrið þar hófst. 16.6.2004 00:01
Bréfum ekki svarað Þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur sendi forsætisráðuneytinu tvö bréf þar sem óskað var eftir samstarfi um 17. júní hátíðarhöld. Engin svör bárust og segir ráðuneytisstjórinn að erindið hafi dottið upp fyrir sökum tímaskorts. 16.6.2004 00:01
Stakk hann þrisvar Grétar Sigurðarson, einn sakborninga í líkfundarmálinu, játaði fyrir héraðsdómi í dag, að hafa stungið lík Vaidasar Jusevisiusar þrisvar sinnum, en ekki fimm sinnum, eins og hann er ákærður fyrir. Grétar neitaði að öðru leyti sök í málinu, en það var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur kl. 14 í dag. 16.6.2004 00:01
Lítilsvirða mótframbjóðendur Ingibergur Sigurðsson, kosningastjóri Ástþórs Magnússonar, telur að Leiklistarsamband Íslands lítilsvirði mótframbjóðendur Ólafs Ragnars Grímssonar með því að bjóða þeim ekki á leiklistarverðlaunin Grímuna í Borgarleikhúsinu í kvöld. Ólafur Ragnar afhendir þar heiðursverðlaun hátíðarinnar. 16.6.2004 00:01
TM dæmd til greiðslu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Tryggingamiðstöðina til að greiða erfingjum Svanhildar Bjarnadóttur 7 milljónir og 50 þúsund króna tryggingabætur. Svanhildur lést eftir að hún féll af svölum fjórðu hæðar hótels á Kanaríeyjum 5. janúar 2002. 16.6.2004 00:01
Kvóti kolmunna aukinn Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að hækka leyfilegan heildarafla á kolmunna á árinu um 220 þúsund tonn þar sem Evrópusambandið hefur aukið kvóta þess um 350 þúsund. 16.6.2004 00:01
Vigdís hefði nýtt málskotsrétt Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, telur að frekar hefði átt að vísa frumvarpi um Kárahnjúkavirkjun til þjóðaratkvæðagreiðslu en fjölmiðlafrumvarpinu. 16.6.2004 00:01
Grjótkast í Borgartúni Byggingafulltrúi Reykjavíkurborgar átti fótum fjör að launa þegar sprengt var fyrir grunni í Borgartúni. Svo virðist sem eitthvað hafi farið úrskeiðis við framkvæmdina því skæðadrífa grjóts kastaðist yfir byggingar og bifreiðar í nágrenninu. 16.6.2004 00:01
Verða að stöðva námugröft Stöðva verður námugröft í landi Kjarrs í Ingólfsfjalli, eftir að Skipulagsstofnun úrskurðaði að leggja þyrfti framkvæmdina í mat á umhverfisáhrifum. Stofnunin kemst að þeirri niðurstöðu, að náman sé ný og því eigi við lög um skipulags- og byggingarmál frá 1998. 16.6.2004 00:01
Hinir vísu menn funda Sex manna hópur sérfræðinga kom í gær fyrir nefnd "hinna vísu manna" sem undirbýr þjóðaratkvæðagreiðsluna vegna fjölmiðlalaganna. Megináherslan er lögð á að svara þeirri spurningu hvort eðlilegt sé að setja skilyrði um þátttökufjölda í atkvæðagreiðslunni. 16.6.2004 00:01
Vilja Guðrúnu burt Meirihluti norska Stórþingsins hefur brugðist harkalega við þeirri ákvörðun norska sjávarútvegsráðuneytisins að láta ekki hífa fjölveiðiskipið Guðrúnu Gísladóttur upp af hafsbotni við Lófóten. Stórþingsmenn krefjast frekari aðgerða, að öðrum kosti verði verðmætum fiskimiðum stefnt í hættu. 16.6.2004 00:01
Ólík kosningabarátta Tíu dögum fyrir forsetakosningar keppast frambjóðendurnir Ástþór Magnússon og Baldur Ágústsson við að koma sér á framfæri en þó með ólíkum hætti. Baldur Ágústsson mætti í hádeginu ásamt kosningastjóra sínum í dreifingarmiðstöð Íslandspósts á Stórhöfða í Reykjavík. Þar ávarpaði hann starfsfólk í mötuneytinu. 16.6.2004 00:01
Guðrún afhendir verðlaun Vigdísar Guðrún Helgadóttir, rithöfundur, afhendir verðlaun fyrir barnaleikrit í fjarveru Vigdísar Finnbogadóttur fyrrverandi forseta Íslands. Vigdís vildi ekki bendla forsetaembættið við umræðu um fjölmiðlalögin sem hún taldi að yrði óhjákvæmilegt í ljósi þess að Baugur fjármagnar hátíðina. 16.6.2004 00:01
Hefði verið ábyrgðarleysi Jónatan Þórmundsson lagaprófessor telur að það hefði verið ábyrgðarleysi af þjóðhöfðingja að stöðva Kárahnjúkamálið. Hann telur að skilja megi orð Vigdísar Finnbogadóttur fyrrverandi forseta í gær svo að hún telji að forseti hafi vald til að synja málum staðfestingar. 16.6.2004 00:01
Steyptist niður skriðu Mannlaus bíll steyptist niður Mánárskriður skammt frá Siglufirði í gær og hafnaði gjör ónýtur niðri í fjöru. Vegagerðarmaður, sem var að líta eftir veginum, var ný stiginn út úr bílnum, sem rann af stað og fór fram af vegkantinum. Snarbratt er á þessum slóðum og langt niður í fjöru og er ekki viðlit að ná flakinu upp, en hægt er að komast að því sjóleiðina. 16.6.2004 00:01
Hrun á úthafskarfa Algjört hrun hefur orðið í veiðum á úthafskarfa á þessu ári miðað við undanfarin ár og hefur aflinn frá áramótum dregist saman um rúm 80 % miðað við sama tíma í fyrra. Samkvæmt aflatölum Fiskistofu frá áramótum til maí loka, höfðu aðeins veiðst 3600 tonn af úthafskarfa á móti 18.600 tonnum á sama tíma í fyrra. 16.6.2004 00:01
Engin sárindi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands á Grímunni í Borgarleikhúsinu í kvöld. Guðrún Helgadóttir, rithöfundur og fyrrverandi forseti Alþingis, afhendir verðlaun fyrir barnaleikrit í fjarveru Vigdísar Finnbogadóttur. 16.6.2004 00:01
Dæmdir til að greiða bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline og Líf hf. til að greiða Margréti Gísladóttur bætur vegna líkamstjóns er hún varð fyrir við inntöku lyfja. Krafist er 32ja milljóna króna bóta, auk vaxta. 16.6.2004 00:01
Dómurinn hefur enga þýðingu Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins telur að tryggja þurfi stjórnmálamönnum víðtækt málfrelsi. Að hans mati vann Davíð Oddsson forsætisráðherra fullnaðarsigur í meiðyrðamáli sem Jón Ólafsson fyrrverandi aðaleigandi Norðurljósa höfðaði gegn honum. 16.6.2004 00:01
Danir rífast um nýstárlega virkjun Raforkuframleiðsla bálstofa er ekki raunhæfur kostur hér að mati forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma. Í Danmörku er um þessar mundir tekist á um hvort virkja beri orkuna sem til verður við bálfarir og sýnist sitt hverjum, að því er fram kom í danska dagblaðinu Politiken um helgina. 15.6.2004 00:01
Röng ráðgjöf um fiskveiðar í 20 ár Jón Kristjánsson fiskifræðingur gefur lítið fyrir ráðleggingar Alþjóða hafrannsóknaráðsins. Færeyskir sjómenn og útgerðarmenn eru í senn undrandi og ósáttir við þær, en þær kveða á um stórfelldan niðurskurð veiða þeirra á næsta fiskveiðiári. 15.6.2004 00:01
Fór yfir strikið með ummælum sínum "Mín skoðun er að það hafi áhrif á trúverðugleika forsætisráðherra þegar það sem hann lætur hafa eftir sér sem slíkur er dæmt dautt og ómerkt," segir Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður Jóns Ólafssonar í meiðyrðamáli gegn Davíð Oddssyni. 15.6.2004 00:01
Nýtt hjarta í annað sinn Helgi Harðarson, þrjátíu og eins árs Grindvíkingur, er nú á skurðarborðinu á Salhgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg og er að fá nýtt hjarta - í annað sinn á ævinni. 15.6.2004 00:01
Loftvarnarbyrgi grafið upp Loftvarnarbyrgi úr seinni heimsstyrjöldinni, sem grafið var upp á Reyðarfirði í síðustu viku er mjög heillegt. Sigfús Guðlaugsson rafveitustjóri hafði frumkvæði af því að ná byrginu í heilu lagi upp og stefnt er á að koma því fyrir á lóð Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði. 15.6.2004 00:01
Rannsaka hvali án þess að drepa þá Alþjóðlegi dýraverndunarsjóðurinn hefur í fimm mánuði beðið eftir svari frá íslenskum stjórnvöldum við því hvort honum sé heimilt að stunda hvalarannsóknir hér við land í sumar. Fulltrúar samtakanna telja sig geta stundað nákvæmari rannsóknir en áður hefur verið hægt, án þess að drepa dýrin. 15.6.2004 00:01
Allir námsmenn fá vinnu Stofnanir og fyrirtæki Seltjarnarnesbæjar ásamt vinnuskóla Seltjarnarness munu fjölga ráðningum ungmenna í sumar eins og undanfarin tvö ár til að bregðast við minna framboði á sumarstörfum fyrir ungt fólk. Markmið stjórnenda bæjarins er að tryggja að allir námsmenn í bænum fái vinnu í sumar. 15.6.2004 00:01
Hjartaígræðslan gekk vel Læknar á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg í Svíþjóð luku undir morgun við að græða nýtt hjarta í Grindvíkinginn Helga Einar Harðarson, sem þurfti nýtt hjarta eftir hjartaígræðslu fyrir fimmtán árum. Einnig var grætt í hann nýtt nýra. 15.6.2004 00:01
Eitt lengsta björgunarflug TF-LIF Stóra þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, fór í eitt lengsta björgunarflug sitt til þessa í gær þegar hún sótti veikan sjómann um borð í togarann Venus sem staddur var djúpt út af Reykjaneshrygg. Sjómaðurinn var fluttur á Landsspítalann og er líðan hans eftir atvikum. 15.6.2004 00:01