Innlent

Loftvarnarbyrgi grafið upp

Loftvarnarbyrgi úr seinni heimsstyrjöldinni, sem grafið var upp á Reyðarfirði í síðustu viku er mjög heillegt. Sigfús Guðlaugsson rafveitustjóri hafði frumkvæði af því að ná byrginu í heilu lagi upp og stefnt er á að koma því fyrir á lóð Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði. Byrgið er steinsteypt um 2 metra hátt, 5 metra langt með hvolfþaki og vegur um það bil 14 tonn. Vitað var af tilvist byrgisins en lítið var vitað um ástand þess fyrr en verktakar byrjuðu að grafa fyrir grunni nýrrar verslunarmiðstöðvar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×