Nýtt hjarta í annað sinn 15. júní 2004 00:01
Helgi Harðarson, þrjátíu og eins árs Grindvíkingur, er nú á skurðarborðinu á Salhgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg og er að fá nýtt hjarta - í annað sinn á ævinni. Helgi var annar Íslendingurinn til að fá grætt í sig nýtt hjarta en hann gekkst undir sína fyrstu hjartaaðgerð árið 1989 á Brombton sjúkrahúsinu í Lundúnum. Hann veiktist fimmtán ára gamall af flensu og fékk upp úr þeim veikindum illkynjaðan vírus í hjartað sem olli því að það tók að stækka. Honum var ekki hugað líf nema hann gengist undir hjartaígræðslu. Eftir ígræðsluna, árið 1999, kom leki að hjartaloku sem olli því að hjartað tók aftur að stækka og nú er svo komið að Helgi þarf að fá hjarta öðru sinni enda hefur heilsu hans hrakað jafnt og þétt síðustu árin. Í þessari atrennu á einnig að græða nýtt nýra í Helga enda hefur hjartaígræðslan valdið miklu álagi á nýru hans en nýrun vilja skemmast vegna mikils álags hjá hjartaþegum. Eftir aðgerðina verður Helgi því með þrjú nýru. Þetta er í þriðja skiptið sem Helgi býr sig undir hjartaígræðsluna. Í eitt skipti var hann stöðvaður áður en hann fór úr landi en í hitt skiptið var hann nánast kominn á skurðarborðið þegar í ljós kom að hjartað hentaði ekki. Helgi Harðason var bjartsýnn fyrir aðgerðina og bað fyrir kærar kveðjur heim.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Erlent Losnar fyrr og fær ekki að koma aftur í 30 ár Innlent Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Erlent Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Innlent Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Erlent Þórdís Lóa ætlar ekki fram Innlent Fordæma ummæli Musk á mótmælum gegn útlendingum Erlent Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Innlent Brueckner neitar að ræða við bresk lögregluyfirvöld Erlent Tvíburarnir fengu ár í viðbót Innlent Fleiri fréttir Ingvar aftur kominn í leyfi frá þingstörfum Oddvitarnir ætla sér stóra hluti eftir átta mánuði Loka fyrir heitt vatn vegna leka á Bústaðavegi Tvíburarnir fengu ár í viðbót Hlaut náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Vara við svikapóstum um ólöglegar klámsíður og reikninga frá raforkusölum Baráttunni lauk með íslenskum ríkisborgararétti Er með hugmynd að nafni sem gæti vel gengið Bein útsending: Umhverfisþing 2025 Hells Angels á Íslandi hafi aukið umsvif sín og sýnileika Losnar fyrr og fær ekki að koma aftur í 30 ár Komið gott af borgarmálum og meirihlutaslit hafi engin áhrif Töldu nauðsynlegt að taka fast á Hells Angels og Kourani fær endurkomubann Ætlar sér formennsku hjá ungum Sjálfstæðismönnum Úr inniskónum og yfir í hringiðu heimsmálanna Þórdís Lóa ætlar ekki fram Ölvaðir og í annarlegu ástandi Farmur flugvélaeldsneytis hafi ekki uppfyllt gæðastaðla Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Enn deilt um sameiningu: „Í raun sé verið að leggja niður Háskólann á Akureyri“ Vill drónavarnir á Íslandi Fannar bæjarstjóri kveður Grindavík Sundlauginni í Reykholti í Bláskógabyggð lokað í eitt ár Lögreglan vilji kæfa glæpahópa í fæðingu Farið yfir Vítisenglamálið og drónavarnir á Íslandi Neysluvatnið óhreint eftir að aurskriða féll Tæplega fimmtíu komast ekki um borð eftir að neyðarrenna var opnuð fyrir mistök Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Myndband: Lögregla stóð vörð vegna Vítisenglaveislu Sjá meira