Fleiri fréttir

Fékk ekki að kæra

Konu var vísað frá með kæru á hendur manni sem auglýsti eftir starfskrafti í mötuneyti í vegavinnu en var í raun að leita að vændiskonu. Konan, sem ekki vildi láta nafns síns getið, hafði samband við lögreglun í gær vegna málsins en fékk þær upplýsingar að hún gæti ekki kært.

Dregið úr framleiðslutengingu

Í nýjum mjólkursamningi sem landbúnaðarráðuneytið hefur gert við kúabændur og tekur gildi á næsta ári er dregið úr framleiðslutengdum greiðslum. Að sögn Ólafs Friðrikssonar, skrifstofustjóra skrifstofu framleiðslu- og markaðsmála í Landbúnaðarráðuneytinu, er það að hluta til gert til að bregðast við kröfum sem viðbúið sé að komi frá Alþjóðaviðskiptastofnuninni

Staðfestir voðaskot

Krufningsskýrsla vegna voðaskots sem varð Ásgeiri Jónsteinssyni að bana á Selfossi um miðjan mars hefur borist lögreglunni á Selfossi. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segir að ekki verði annað ráðið að krufningsskýrslunni en að um voðaskot hafi verið að ræða.

Fór yfir strikið

"Mín skoðun er að það hafi áhrif trúverðugleika forsætisráðherra þegar að það sem hann lætur hafa eftir sér sem slíkur er dæmt dautt og ómerkt," segir Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður Jóns Ólafssonar í meiðyrðamáli gegn Davíð Oddssyni. Ummæli Davíðs voru dæmd dauð og ómerk í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Rollur í rétti

Í Fáskrúðsfjarðarhreppi sem og í fleiri sveitarfélögum er lausafjárganga búfjár leyfð. Óskar Þór Guðmundsson, varðstjóri á Fáskrúðsfirði, segir að á annan tug sauðfjár hafi drepist í vor. "Á hverju ári verða miklar skemmdir á bílum," segir Óskar.

Gæsluvarðhald móður framlengt

Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir móður sem grunuð er um að hafa banað dóttur sinni og sært son sinn með hnífi. 

Forsætisráðuneytið svaraði ekki

Formaður þjóðhátíðarnefndar Reykjavíkurborgar segir það sérkennilega stjórnsýslu ef það ferst fyrir hjá forsætisráðuneytinu að svara erindum frá síðasta ári en borgin óskaði eftir samstarfi vegna þjóðhátíðardagsins í tengslum við aldarafmæli heimastjórnarinnar.

Ríflega sex þúsund gestir

Ríflega 6000 manns sóttu sýninguna Austurland 2004 sem lauk í íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum í fyrradag. Forsvarsmenn sýningarinnar eru að vonum hæstánægðir með aðsóknina, segjast þó hafa getað tekið á móti fleiri gestum, en eftirtekt sé að gestir stoppuðu lengi og komu jafnvel aftur.

Skipulagsbreytingar á Eimskipum

Unnið er að skipulagsbreytingum á Eimskipum sem meðal annars miða að því að samtvinna TVG-Zimsen og Flytjanda inn í heildarstarfsemi félagsins.

Nýr stjórnmálaflokkur stofnaður

Nýr stjórnmálaflokkur, Orkuflokkurinn, hefur verið stofnaður í Reykjavík, en markmið hans er að borin skuli virðing fyrir orkunni, bæði hlutlægri og óhlutlægri, eftir því sem haft er eftir stofnanda flokksins, Bjarna Þór Þorvaldssyni, á vefsíðu Morgunblaðsins.

Ákæra fyrir líkamsárás þingfest

Ákæra gegn tveimur bræðrum fyrir alvarlega líkamsárás var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Bræðurnir, sem eru á þrítugsaldri, eru sakaðir um að hafa í ágústlok á síðasta ári ráðist að manni í Tryggvagötu í Reykjavík.

Ríkir verða ríkari

Þeir ríku verða sífellt ríkari samkvæmt nýútkominni skýrslu um fjölda forríkra á síðasta ári. Ríkum fjölgaði á heimsvísu í fyrra um hálfa milljón og teljast nú 7,7 milljónir manna um allan heim til hóps þeirra sem þykja hafa hátt nettóvirði. Aukningin var því 7,5% á milli ára.

Mál sem brennur á kúabændum

Stofnuð hefur verið samstarfsnefnd Yfirdýralæknisembættisins, Bændasamtakanna og Rannsóknarstofnunar Landbúnaðarins, til að grafast fyrir um orsakir aukins kálfadauða hér á landi. Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssambands Kúabænda, segist vænta þess að einhverjar niðurstöður liggi fyrir frá nefndinni að loknum sumarleyfum.

Rangar ráðleggingar í 20 ár

"Sé litið yfir 20 ára feril hafa ráðleggingar Alþjóða hafrannsóknarráðsins yfirleitt reynst rangar, bæði hvað varðar Færeyjar, Ísland og Noreg, svo dæmi séu nefnd. Það er allt öfugu megin á hrossinu" sagði Jón Kristjánsson fiskifræðingur um tillögur Alþjóða hafrannsóknarráðsins sem ráðleggur Færeyingum að minnka veiðar á þorski og ýsu um 60% á næsta fiskveiðiári.

Ákærður fyrir þrjár líkamsárásir

Stefán Logi Sívarsson hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir þrjár líkamsárásir á tveimur dögum, þar af eina sérstaklega hættulega. Stefán var á reynslulausn þegar hann framdi árásirnar og reyndi lögreglan í Reykjavík án árangurs að fá hann úrskurðaðan í gæsluvarðhald eftir fyrstu árásina.</font /></b />

Vill rannsaka hvali við Ísland

Alþjóðadýraverndunarsjóðurinn, International Fund for Animal Welfare, hefur beðið í tæpa fimm mánuði eftir leyfi sjávarútvegsráðuneytis til að stunda rannsóknir á spendýrum við Íslandsstrendur. Sjávarútvegsráðuneytið ætlar að óska eftir frekari upplýsingum áður en leyfið verði veitt.

Siðanefnd fundar vegna Hannesar

Fundur var haldinn í siðanefnd Háskóla Íslands í morgun. Tilefnið var kæra aðstandenda Halldórs Laxness vegna fyrsta bindis ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Nóbelsskáldið. Þeir telja Hannes hafa brotið höfundarréttarlög og siðareglur Háskóla Íslands við ritun bókarinnar.

ÖBÍ leitar að tillögum

Þessa dagana leitar Arnþór Helgason, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands, að tilnefningum til aðgengisverðlauna samráðsvettvangs Norrænu ráðherranefndarinnar um málefni fatlaðra (NSH). Verðlaunaafhending NSH er árviss viðburður, en að þessu sinni er sjónum beint að upplýsingasamfélaginu.

Ný lög hefðu breytt öllu

"Ef vændisfrumvarpið svokallaða hefði farið í gegnum þingið, þá hefði refsiábyrgðinni verið snúið við og konan hefði getað kært," sagði Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður um mál, þar sem konu var vísað frá með kæru á hendur manni sem auglýsti eftir starfskrafti en var í raun að leita að vændiskonu.

Læknisþjónusta tryggð

Heilbrigðisstofnunin Patreksfirði og Heilsugæslan í Reykjavík og nágrenni hafa gert með sér samstarfssamning um læknisþjónustu sem gildir til tveggja ára. Samkvæmt samningnum verða læknar á vegum heilsugæslunnar starfandi við heilbrigðisstofnunina samkvæmt ákveðnu skipulagi.

KB banki sýknaður í Héraðsdómi

Kaupþing-Búnaðarbanki var í dag sýknaður af kröfu fyrrverandi vaktmanns í bankanum sem sagt var upp vegna gruns um að leka trúnaðarupplýsingum úr bankanum. Maðurinn lá undir grun um að hafa lekið upplýsingum til Norðurljósa um að Búnaðarbankinn ætti í viðræðum við aðila um yfirtöku á fyrirtækinu og að bankinn hafi þar rofið trúnað við Norðurljós.

Nýr kjarasamningur samþykktur

Skipstjórnarmenn á flutningaskipum og farþegaskipum, 500 brúttótonn og stærri í millilandasiglingum og strandferðum, samþykktu nýjan kjarasamning sem undirritaður var með fyrirvara um samþykki hinn 11. maí síðastliðinn.

Truflanir á tölvupósti

Síminn Internet hefur á einum og hálfum sólarhring stöðvað um hálfa milljón vírussýktra tölvupóstskeyta sem send voru til viðskiptavina fyrirtækisins. Í tilkynningu fyrirtækisins kemur fram að starfsmenn Símans hafa sjaldan séð annað eins magn sýktra skeyta á jafn skömmum tíma.

Nýr forstjóri ráðinn

Jakob Óskar Sigurðsson hefur verið ráðinn forstjóri SÍF, en Örn Viðar Skúlason sem gegnt hefur stöðu forstjóra undangfarna mánuði tekur við sínbu fyrra starfi sem aðstoðarforstjóri. Jakob er með BS gráðu í efnafræði og MBA gráðu í fjármálstjórn, markaðsmálum og alþjóðaviðskiptum.

Frekara rannsóknarstarf undirbúið

Stofnuð hefur verið samstarfsnefnd Yfirdýralæknisembættisins, Bændasamtakanna og Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, til að grafast fyrir um orsakir aukins kálfadauða hér á landi.

Mat miðað við ákveðnar forsendur

"Við sem erum að vinna í þessum hefðbundnu vísindum erum að leggja fram mat okkar miðað við ákveðnar forsendur," sagði Einar Hjörleifsson fiskifræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun um fram komna gagnrýni á ráðleggingar Alþjóða hafrannsóknarráðsins um samdrátt í fiskveiðum Færeyinga.

Fáir afpanta húsnæði

Fáir hafa afpantað sumarbústaðapláss í Húsafelli samkvæmt þeim upplýsingum sem Fréttablaðið fékk frá nokkrum stéttafélögum sem eiga búastaði þar. Ýmsir hafa þó hringt í stéttarfélög sín og kannað stöðu sína.

Atvinnuleysi 3,3 %

Atvinnuleysi í maí mældist 3,3 prósent samkvæmt Vinnumálastofnun. Þetta er 0,3 prósentum minna en á sama tíma í fyrra. Í maí síðastliðnum voru skráðir 102.875 atvinnuleysisdagar á landinu öllu, sem jafngilda því að 4.900 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.

Fjöldi flækingsfugla á landinu

Þrjár ryðendur hafa gert sig heimakærar á Hjarðarnesi í Nesjum í rúma viku. Þar fara tveir kvenfuglar og karlfugl sem líklega eru ársamlir, segir Brynjúlfur Brynjólfsson, formaður félags fuglaáhugamanna á Hornafirði. Síðast sást til ryðandapars á landinu árið 1999. Fjöldi sjaldseðra flækingsfugla hafa haft viðkomu á landinu í vor.

Fá ekki að koma aftur til Íslands

Útlendingar sem eru dæmdir til refsingar hér á landi þurfa að afplána helming refsingarinnar. Að henni lokinni er þeim vísað úr landi og fá ekki að koma aftur til Íslands. </font /></b />

Seldi tugi gramma í hverri viku

Rannsókn á máli 22 ára manns, sem handtekinn var í Þorlákshöfn um hádegi á föstudaginn í síðustu viku, er enn í fullu gangi. Maðurinn hefur játað töluverða sölu fíkniefna. Hann býr hjá afa sínum og ömmu og fundust á heimilinu riffill, haglabyssa, loftskotvopn, fíkniefni, axir, hnífar og þýfi.

Kaup KB banka vekja athygli

Markaðsverðmæti KB banka hélt áfram að hækka í gær og hefur nú hækkað um 26 milljarða á tveimur dögum. Hlutabréfin hækkuðu um 3,29 prósent í gær en eftir að kaup KB banka á danska bankanum FIH hækkuðu bréfin um 12,5 prósent. Markaðsvirði KB banka er nú tæpir 180 milljarðar króna.

Fjórir í forvali

Fjórir aðilar hafa tilkynnt þátttöku sína í forvali varðandi hönnun, byggingu og rekstur tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels í miðborg Reykjavíkur. Hóparnir fjórir eru Fasteign hf. sem Ístak/PIHL stýrir, Multiplex, Portus Group sem Íslenskir aðalverktakara stýra og Viðhöfn sem Eykt stýrir.

Prófniðurstöður í skoðun

Niðurstöður prófa í tveimur áföngum Tækniháskóla Íslands eru í skoðun eftir að 80% nemenda féllu í öðrum þeirra og 60% í hinum. Sami kennarinn kenndi báða áfangana og voru nemendurnir á fyrri önn lokaárs í rekstrardeild.

Samþykktu kjarasamning

Félag skipstjórnarmanna hefur samþykkt nýjan kjarasamning skipstjórnarmanna á flutninga- og farþegaskipum, 500 brúttótonn og stærri. Samningurinn var undirritaður í maí með fyrirvara um samþykki.

Hóta starfsfólki lífláti

Tveir pólitískir flóttamenn sem beðið hafa um hæli hér á landi hafa haft uppi alvarlegar hótanir við starfsfólk Félagsþjónustunnar í Reykjanesbæ samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þeir hafa hótað starfsfólki líkamsmeiðingum og jafnvel lífláti.

Hóta starfsfólki lífláti

Tveir pólitískir flóttamenn sem beðið hafa um hæli hér á landi hafa haft uppi alvarlegar hótanir við starfsfólk Félagsþjónustunnar í Reykjanesbæ samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þeir hafa hótað starfsfólki líkamsmeiðingum og jafnvel lífláti.

Meira veitt í maí

Aflinn í maí var 1451.927 tonn sem er rúmlega fjögur þúsund tonnum meira en á sama tíma í fyrra. Fyrstu sex mánuði ársins hefur aflasamdráttur verið 76 þúsund tonn milli ára sem skýrist á slökum árangri í loðnuveiðum.

Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu

Stjórnarandstaðan hefur ákveðið að leggja fram sameiginlegt frumvarp um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu þegar þing kemur saman þann 5. og 6. júlí.

Leigjendasamtökin stefna í þrot

"Það verður ógerlegt að starfrækja Leigjendasamtökin með einungis eina milljón króna til rekstrar á ári, ef heldur fram sem horfir," sagði Guðmundur St. Ragnarsson formaður samtakanna, spurður um þann þrönga fjárhagslegan kost sem samtökin búa nú við.

Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu

Stjórnarandstaðan hefur ákveðið að leggja fram sameiginlegt frumvarp um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu þegar þing kemur saman þann 5. og 6. júlí.

Vigdís afhendir ekki verðlaun

Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands vill ekki afhenda leiklistarverðlaun á Grímunni vegna þess að hátíðin er að hluta til kostuð af Baugi Group. Hún vill forðast pólitíska umræðu. Vigdís segist ekki skilja í forseta Íslands að synja fjölmiðlalögunum staðfestingar. Nær hefði verið að gefa þjóðinni tækifæri til að greiða atkvæði um Kárahnjúkavirkjun.

DV - Kvótasvindl trillukónganna

Í DV í dag er fjallað um mikið kvótasvindl sem farið hefur fram á Íslandsmiðum. Smábátasjómenn hafa kastað fiski á milli báta með kvóta og þeirra kvótalausu og smyglað í land.

Fer á Sogn

Gæsluvarðhald yfir móðurinni sem varð dóttur sinni að bana á Hagamel í lok síðasta mánaðar hefur verið framlengt um þrjár vikur eða til fimmta júlí. Hún verður flutt á réttargeðdeildina á Sogni um leið og hún útskrifast af Landspítalanum.

Skilti sem vara við ögðum

Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands, segir að sem fyrr verði sett upp skilti við Landmannalaugar þar sem fólk verði varað við hættunni sem stafað getur af blóðögðulifrum. "Við höfum bent fólki á þetta með ýmsum hætti þarna innfrá.

Sjá næstu 50 fréttir