Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ræningjarnir yfirgáfu skipið Vopnaðir menn sem fóru um borð í olíuflutningaskip undan ströndum Óman í gær, yfirgáfu skipið Sjóher Bretlands tilkynnti þetta í morgun og var skipinu siglt í átt að Óman skömmu seinna. 4.8.2021 10:10
Metumferð um Hringveginn Umferð um Hringveginn jókst um nærri sex prósent í júlí síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Met var slegið í mánuðinum en umferðin reyndist 2,3 prósentum meiri en í júlí 2019 þegar fyrra met var sett. 4.8.2021 10:04
„Við erum á krossgötum“ Sigurður Ingi Jóhannesson, samgönguráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir stjórnvöld vera að meta hvernig þjóðin geti lifað með kórónuveirufaraldrinum. Hann segir Íslendinga nú vera á krossgötum í kórónuveirufaraldrinum. 4.8.2021 10:02
Sektaður fyrir ólöglegt vopnabúr: Notaði skriðdrekann sem snjóplóg Þýskur eftirlaunaþegi hefur verið dæmdur í 14 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 37 milljónir króna í sekt fyrir að eiga umfangsmikið safn ólöglegra vopna. Meðal gripanna var skriðdreki, sem var fjarlægður af heimili mannsins af þýska hernum. 4.8.2021 10:01
Geimskoti Starliner frestað þrisvar sinnum á einni viku Geimskoti geimfars Boeing, Starliner, hefur verið frestað enn eina ferðina og það þrisvar sinnum á einni viku. Geimskotinu var frestað í gær þegar ákveðinn galli kom upp og stóð til að gera aðra tilraun í dag. Í nótt var einnig hætt við hana og Starliner fjarlægt af skotpalli. 4.8.2021 09:28
Langvarandi Covid-19 fátítt meðal barna Börn og ungmenni virðast sjaldan þjást af langvarandi einkennum í kjölfar Covid-19, samkvæmt niðurstöðum breskrar rannsóknar. Eldri börn eru almennt lengur veik en yngri börn. 4.8.2021 08:14
Ísland í næsthæsta áhættuflokk hjá CDC Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna, CDC, hefur sett Ísland í næsthæsta áhættuflokk á ferðaráðssíðu stofnunarinnar. Óbólusettum Bandaríkjamönnum er ráðið frá því að ferðast til Íslands. 4.8.2021 08:03
Auknar líkur á eldingum í skúraveðrinu Í dag og fram til föstudags er útlit fyrir hæga breytilega átt víðast hvar um landið. Skýjað verður að mestu og skúrir en auknar líkur eru á eldingum í skúraveðrinu. 4.8.2021 07:38
Hönnuður bóluefnisins frá AstraZeneca orðinn að Barbie-dúkku Leikfangarisinn Mattel hefur afhjúpað nýja línu af Barbie-dúkkum til heiðurs konum sem hafa lagt sitt af mörkum í baráttunni gegn SARS-CoV-2. Þeirra á meðal er prófessorinn Sarah Gilbert, sem „hannaði“ bóluefnið frá AstraZeneca. 4.8.2021 07:37
Góð ráð til að þrífa flugur af bílum Nú þegar verslunarmannahelgin er liðin þá er gott að huga að því hvernig bíllinn er að koma undan helginni. Eru líkamsleifar flugna það eina sem sést þegar bíllinn er skoðaður. Myndin hér að ofan er af bíl blaðamanns eftir að hafa ekið um Mývatnssveit um helgina. 4.8.2021 07:01
Timanovskaya farin frá Japan og er á leið til Vínarborgar Spretthlauparinn Krystina Timanovskaya frá Belarús (Hvíta-Rússlandi), sem leitaði hælis í sendiráði Póllands á Ólympíuleikunum í Tókýó, er farin frá Japan. BBC greinir frá því að hún hafi flogið þaðan í morgun að japönskum tíma á leið til Vínarborgar. 4.8.2021 06:56
Hafa aldrei selt jafn mikið áfengi á einum mánuði Met voru slegin í áfengissölu hjá Vínbúðinni, verslunum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, í júlímánuði og vikunni fyrir verslunarmannahelgina. 4.8.2021 06:42
Hlaut heilahristing eftir fjögurra manna vespurúnt Umferðarslys varð í Kópavogi seint í gærkvöldi þegar ökumaður vespu missti stjórn á henni með þeim afleiðingum að hún fór á hliðina. Á vespunni voru fjórir 14 ára drengir og aðeins einn með hjálm. 4.8.2021 06:23
Biden hvetur Cuomo til að segja af sér Þrýstingur á að Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, segi af sér stigmagnast nú vegna ásakana um kynferðislega áreitni hans. Joe Biden Bandaríkjaforseti og flokksbróðir ríkisstjórans bættist í hóp þeirra sem hvetja hann til þess að stíga til hliðar í dag. 3.8.2021 23:27
Boða til Covid-fundar með fulltrúum listafólks og íþróttahreyfingar Stjórnvöld hafa boðað til fundar á morgun með fulltrúum úr listageiranum og íþróttahreyfingunni til að ræða áhrif kórónuveirufaraldursins. 3.8.2021 23:21
Tækifæri til að gera enn betur í orkuskiptum Eitt af lykilverkefnum íslensks samfélags er að klára orkuskipti í samgöngum og mörg tækifæri eru til að gera betur í þeim efnum að mati Höllu Hrundar Logadóttur, nýs orkumálastjóra. Sífellt alvarlegri hliðar loftslagsbreytinga þrýsti á að orkuskiptum verði lokið sem fyrst. 3.8.2021 22:36
Maður sem fannst sofandi í gámi með Covid-úrgangi sendur í sóttkví Lögregla hafði í morgun afskipti af manni sem fannst sofandi í ruslagámi við Fosshótel Baron í Reykavík. Gámurinn innihélt rusl frá fólki sem greinst hefur með Covid-19 en hótelið við Barónstíg er nú notað sem farsóttahús. 3.8.2021 20:52
„Maður getur bara verið alveg eins og maður er” Litadýrð, gleði og regnbogar eru sem fyrr einkennandi fyrir Hinsegin daga sem voru formlega settir í miðborg Reykjavíkur í dag, þrátt fyrir að engin gleðiganga verði - annað árið í röð. 3.8.2021 20:01
Lést í átökum við bandaríska varnarmálaráðuneytið Lögreglumaður er látinn af völdum stungusára sem hann hlaut í átökum við vopnaðan mann fyrir utan varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í dag. Árásarmaðurinn var skotinn til bana. 3.8.2021 19:57
Opna skimunarstöð fyrir skyndipróf á BSÍ Skimunarstöð fyrir hraðpróf hefur verið opnuð í húsnæði BSÍ í Reykjavík en hún er sérstaklega ætluð þeim sem ætla úr landi. Um er að að ræða skyndipróf sem framkvæmd eru af einkaaðila en tekin gild á landamærum. 3.8.2021 19:46
Ekki á hverjum degi sem fólk með ísbjarnarbit leitar á sjúkrahúsið á Akureyri Kvikmyndagerðamaður var fluttur frá Grænlandi á bráðamóttöku sjúkrahússins á Akureyri í gær eftir að ísbjörn beit vinstri hönd hans. 3.8.2021 19:39
Hafa þurft að fresta hjartaaðgerðum vegna skorts á gjörgæslurýmum Uppsveifla í smitum innanlands hefur gríðarleg áhrif á starfsemi Landspítala að sögn skurðlæknis sem segir skorta skilning á viðkvæmri stöðu spítalans. Fresta hefur þurft hálfbráða hjartaaðgerðum vegna skorts á gjörgæslurýmum. 3.8.2021 19:30
Hafnar því að hafa áreitt konur kynferðislega Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, hafnaði því að hann hefði nokkru sinni snert konur á óviðeigandi hátt eða haft uppi óviðeigandi kynferðislega tilburði á blaðamannafundi í dag. Hann er sakaður um að hafa áreitt fjölda kvenna. 3.8.2021 19:23
Kennarar áhyggjufullir en vilja þó eðlilegt skólastarf Gert er ráð fyrir að engar takmarkanir verði á skólastarfi í haust að sögn menntamálaráðherra. Formaður Kennarasambands Íslands segir kennara hafa áhyggjur af smithættu en viljuga til þess að halda úti venjulegu skólahaldi. 3.8.2021 19:01
Ætla að lyfta upp einkaþotu sem situr föst á Rifi Vonir standa til að þýsk einkaþota sem festist í slitlagi á flugvellinum á Rifi á Snæfellsnesi verði hífð upp á morgun. Rannsóknarnefnd samgönguslysa og lögreglan hafa óhappið til rannsóknar. 3.8.2021 18:27
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Nýr tónn er í sóttvarnalækni sem hyggst ekki senda áfram niðurnegldar tillögur um aðgerðir innanlands vegna kórónuveirunnar heldur áhættumat í minnisblaði sínu til ráðherra. Segir hann í höndum stjórnvalda að meta hvaða aðgerðir henti, með tilliti til annarra hagsmuna. 3.8.2021 18:00
Aldrei fleiri smitaðir í einu á Íslandi Aldrei hafa fleiri verið í einangrun smitaðir af Covid-19 á Íslandi og einmitt í dag. Alls eru 1.304 í einangrun eins og er, nokkru fleiri en voru skráðir í einangrun þegar fyrri bylgjur faraldursins náðu sínum hápunkti. 3.8.2021 17:00
Vopnaðir menn fóru um borð í olíuflutningaskip á Persaflóa Sjóher Bretlands tilkynnti í dag að olíuflutningaskipi hafi líklegast verið rænt undan ströndum Sameinuðu arabísku furstadæmanna í dag. Hópur vopnaðra manna eru sagðir hafa farið um borð í skipið Asphalt Princess. 3.8.2021 16:50
Til skoðunar að gefa þriðja skammtinn Til skoðunar er að gefa þriðja bóluefnaskammtinn, að sögn Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Um verður að ræða svokallaðan örvunarskammt og sérstaklega verður horft til viðkvæmra hópa. 3.8.2021 15:44
Tveir á slysadeild eftir bílveltu í Hafnarfirði Tveir voru fluttir á slysadeild eftir bílveltu í Hafnarfirði nú síðdegis. 3.8.2021 15:41
Sakaður um áreitni í garð minnst ellefu kvenna Andrew M. Cuomo, ríkisstjóri New York, áreitti konur kynferðislega og beitti sér gegn einni þeirra sem sakaði hann opinberlega um áreitni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem Letitia James, ríkissaksóknari New York, opinberaði nú fyrir skömmu. 3.8.2021 15:27
Bein útsending: Hinsegin 101 fyrir hinsegin fólk Gengin er í garð hin litríka hátíð hinsegin og alls konar fólks og margt forvitnilegt á dagskrá Hinsegin daga að vanda. Vegna Covid-19 verður takmarkaður sætafjöldi í boði á fræðslufundi en þeim verður streymt á netinu, öllum til ánægju og upplýsingar. 3.8.2021 15:15
Wypadek autobusowy w okolicy Biskupstungur W autobusie, który wpadł z drogi było około 50 pasażerów, turystów oraz pracowników firmy turystycznej. 3.8.2021 14:49
Fyrsta borgin nærri því fallin í hendur Talibana Talibanar eru nálægt því að ná fullum tökum á Lashkar Gah, héraðshöfuðborg Helmand-héraðs. Þeir hafa einnig sótt fram gegn stjórnarher landsins í borgunum Kandahar og Herat. 3.8.2021 14:23
Aðrir en skólastarfsmenn geta ekki mætt í bólusetningu strax Bólusetningar með örvunarskammti frá Pfizer fyrir kennara og starfsmenn skóla sem fengu Janssen bóluefnið hófust í dag. Aðrir sem fengu bóluefni Janssen geta ekki freistað þess að mæta í aukaskammta í dag, eins og stundum var boðið upp á þegar heilsugæslan var með skipulegar fjöldabólusetningar í Laugardalshöll fyrr í sumar. 3.8.2021 14:15
Skoða að koma varanlegri Covid-deild á laggirnar Heilbrigðisráðherra segir að verið sé að skoða hvort hægt sé að koma á laggirnar varanlegri Covid-einingu á Landspítalanum. Sextán liggja nú inni á sjúkrahúsi með Covid-19 og Landspítalinn er á hættustigi vegna stöðu faraldursins. 3.8.2021 13:31
Ár frá sprengingunni í Beirút: Ráðamenn hunsuðu hættuna Embættismenn í Líbanon vissu af hættunni af um 2.750 tonnum af ammóníum nítrati sem geymt var í vöruskemmu á hafnarsvæðinu í Beirút. Þá sættu þeir sig við þá hættu en efnin sprungu í loft upp fyrir ári síðan í einni stærstu sprengingu jarðarinnar, séu kjarnorkusprengingar ekki taldar með. 3.8.2021 13:00
Stefna að takmarkalausu skólahaldi á öllum stigum í haust Stefnt er að því að skólahald geti hafist takmarkalaust á öllum skólastigum í haust. Forsætisráðherra segir að verið sé að meta hvort áhættuþætti við bólusetningar barna og ungmenna og fylgst sé náið með stöðunni. 3.8.2021 12:53
Breyting hjá Þórólfi sem gefur boltann á stjórnvöld Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að óvíst sé hvort hann muni leggja til einhverjar ákveðnar aðgerðir þegar núverandi takmarkanir á samkomum renna sitt skeið á enda. Stjórnvöld þurfi að taka ákvörðun um hvort grípa eigi til harða aðgerða eða ekki til þess að koma böndum á núverandi bylgju kórónuveirufaraldursins. 3.8.2021 12:04
Katrín leiðir lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík suður Katrín Baldursdóttir skipar fyrsta sætið á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum þar sem segir að slembivalinn hópur félaga í flokknum raði á lista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar í september. 3.8.2021 12:03
Sigmundur Ernir er nýr ritstjóri Fréttablaðsins Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur verið ráðinn nýr ritstjóri Fréttablaðsins og aðalritstjóri útgáfufélagsins Torgs ehf., sem rekur Fréttablaðið, DV, Markaðinn og Hringbraut. Hann tekur við aðf Jóni Þórissyni sem hefur starfað sem ritstjóri frá haustinu 2019. 3.8.2021 11:58
Lýsir erfiðu lífi í nýsjálensku leiðinni Hin svokallaða „nýsjálenska leið“ í baráttunni við heimsfaraldurinn, sem margir stjórnarandstæðingar hafa talað fyrir í fjölda mánaða, er engin útópía og henni fylgja ýmsir gallar sem hafa farið fram hjá Íslendingum í umræðunni, að sögn Sigurgeirs Péturssonar, ræðismanns Íslands á Nýja-Sjálandi. 3.8.2021 11:36
Vegkantur sem gaf sig líklega ástæða þess að rútan valt Vegkantur sem gaf sig er talinn vera ástæða þess að rúta, með fjölda íslenskra og erlendra ferðamanna innanborðs, valt í Biskupstungum í gær. Betur fór en á horfðist og enginn slasaðist alvarlega, að sögn yfirlögregluþjóns. 3.8.2021 11:34
Þrír laumufarþegar um borð í skipi Eimskips Lögregluþjónar handtóku þrjá menn sem komu sem laumufarþegar um borð í skipi Eimskips frá Danmörku í dag. Mennirnir hafa verið færðir í fangaklefa. 3.8.2021 11:24
Stærsta bylgjan til þessa: Bólusetningar hafa ekki leitt til hjarðónæmis Við erum nú stödd í stærstu bylgju Covid-19 frá því að faraldur kórónuveirunnar skall á heimsbyggðinni. Víðtækar bólusetningar virðast hins vegar draga úr alvarlegum veikindum og hlutfall innlagna er lægra en áður. 3.8.2021 11:19