Fleiri fréttir

O'Neal fær að halda Warhol myndinni af Fawcett

Leikarinn Ryan O'Neal fær að halda málverki sem verið hefur í fórum hans síðustu ár og málað var af Andy Warhol. Kviðdómur í Los Angeles komst að þessari niðurstöðu í gærkvöldi en málverkið er af Förruh Fawcett, fyrrverandi konu O'Neal. Fawcett, sem á sínum tíma var ein helsta kynbomba heimsins og fræg fyrir hlutverk sitt í Charlies Angels sjónvarpsþáttunum, og lést fyrir nokkru.

Stálu milljónum kreditkortanúmera hjá Target

Kreditkortaupplýsingum um fjörutíu milljóna viðskiptavina stórverslanakeðjunnar Target í Bandaríkjunum virðist hafa verið stolið eftir að þeir notuðu kort sín í búðunum.

Suður Súdan á barmi borgarastyrjaldar

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir að Suður - Súdan rambi nú á barmi borgarastríðs. Átök sem hófust á milli stríðandi fylkinga innan hersins í höfuðborginni Juba í byrjun vikunnar hafa nú breiðst út um landið.

Varúðarstig vegna snjóflóðahættu

Snjóflóð féll á Ólafsfjarðarveg síðdegis í gær og lokaðist vegurinn. Hann verður ekki ruddur fyrr en sjóflóðaeftirlitsmenn hafa kannað aðstæður.

Kynna sér flóttamenn í Danmörku

Fjölskylduráð Akraness vill þiggja boð fyrir tvo starfsmenn félagsþjónustunnar um að taka þátt í dagskrá í Kaupmannahöfn með öðru fagfólki frá Íslandi þar sem kynna á þjónustu við flóttafólk.

Óttast að ákæra muni breyta heilbrigðiskerfinu

Stjórnendur Landspítalans vilja byggja upp menningu meðal starfsmanna sem hvetur þá til að tilkynna öll mistök. Á næstunni kemur í ljós hvort heilbrigðisstarfsmaður verður ákærður fyrir manndráp af gáleysi.

Ráðuneyti skoðar nauðungarvistanir

Innanríkisráðherra segir nauðungarvistun og sjálfræðissviptingu til skoðunar hjá ráðuneytinu. Til athugunar er aðkoma aðstandenda að beiðnum um nauðungarvistun, en samkvæmt ráðuneytinu fjölgar beiðnum frá félagsþjónustu en fækkar frá aðstandendum.

Háskólum sé ekki miðstýrt að sunnan

Bæjarráð Stykkishólms skorar á menntamálaráðherra að "standa vörð um sjálfstæði Háskólans á Bifröst og Landbúnaðarháskóla Íslands“.

Túlkur lagður inn á geðsjúkrahús

Táknmálstúlkurinn Thamsanqa Jantjie, sem vakti heimsathygli á minningarathöfn um Nelsons Mandela fyrir undarlega tilburði sína, hefur verið lagður inn á geðsjúkrahús.

Ráðherra svarar ekki fyrirspurn á Alþingi

Á bilinu eitt til þrjú tilvik hafa komið upp árlega þar sem farþegaflugvélar hafa þurft að hætta við lendingar á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í svari innanríkisráðherra við spurningu Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar á Alþingi.

Í hvaða jólaboðum eiga börnin að vera?

Samkomulag um fyrirkomulag á jólunum kemur í veg fyrir togstreitu og áhyggjur í stjúpfjölskyldum, segir félagsráðgjafi. Börnin eiga ekki að bera skilaboð á milli.

Spá hvítum jólum um allt land

Allt stefnir í að jólin verði hvít víðast hvar á landinu samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Hvít jól hafa verið algengari en rauð síðustu nítján árin samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni.

Stærðfræðilæsi íslenskra barna hrynur

"Það er hægt að kenna öllum allt með réttum aðferðum.“ Þetta segir forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands sem kallar eftir breyttum kennsluaðferðum í stærðfræði enda hrynur stærðfræðilæsi íslenskra barna samkvæmt nýrri PISA-könnun.

"Auðvelt að stunda vörumerkjastuld"

Þjófar sem stela íslenskri hönnun og græða á henni á netinu, láta sér ekki nægja að selja eftirlíkingar heldur stela jafnvel markaðsefni og selja það beint til þriðja aðila. Framkvæmdastjóri hönnunarfyrirtækis segir íslenska hönnuði þurfa að verja vörumerkin sín.

Rætt við íslensku hetjurnar: "Við vorum bara að reyna að bjarga þessu fólki"

Tveir íslenskir félagar sem björguðu rúmenskri fjölskyldu úr brennandi húsi í Árósum í morgun, viðurkenna að hafa verið dauðhræddir þegar þeir óðu inn í eldinn. Þeir hugsuðu samt lítið um það og björguðu út tveimur drengjum og ungri konu með barn. Annar þeirra hefur áður bjargað mannslífum.

Konudekkin seljast vel

Sérstök konudekk eru til sölu hér á landi og segir sölumaður þeirra að dekkin séu góð, rétt eins og konur eru.

Gunnar Birgisson gefur ekki kost á sér

Gunnar Ingi Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs, gefur ekki kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Frestur til að skila inn framboði vegna prófkjörs Sjálfstæðismanna í Kópavogi rann út klukkan 18 í dag.

Fimm til viðbótar fá ríkisborgararétt

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis leggur til að 24 einstaklingar fái íslenskan ríkisborgararétt samkvæmt breytingartillögu frá nefndinni og fjölgar þeim um fimm miðað við fyrstu tillögu.

Putin ætlar að náða fyrrverandi olíubarón

Vladimir Putin, forseti Rússlands ætlar að náða Mikhail Khodorkovsky. Sagðist hann hafa fengið beiðni frá fanganum um náðun á grundvelli mannréttinda, því móðir hans væri veik.

Góðar fréttir að fólk fái vinnu

Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunnar, segist vona að sem flestir sem hafi verið á atvinnuleysisbótum á árinu, fái ekki desemberuppbót. Það þýði að þau séu kominn með vinnu.

Fernanda öðlast nýtt líf

Skipið Fernanda kom á fast land í Helguvík í gærkvöldi eftir að hafa verið dregið frá Njarðvík í gær. Fyrirtækið Hringrás mun sjá um að rífa skipið niður í brotajárn.

Sjá næstu 50 fréttir