Ráðuneyti skoðar nauðungarvistanir Eva Bjarnadóttir skrifar 20. desember 2013 07:00 Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segir ráðuneytið meðvitað um að skoða þurfi breytingar á nauðungarvistunum.
Innanríkisráðherra segir nauðungarvistun og sjálfræðissviptingu til skoðunar hjá ráðuneytinu. Til athugunar er aðkoma aðstandenda að beiðnum um nauðungarvistun, en samkvæmt ráðuneytinu fjölgar beiðnum frá félagsþjónustu en fækkar frá aðstandendum. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segir framkvæmd nauðungarvistunar og sjálfræðissviptingar vera til skoðunar hjá ráðuneytinu. Fréttablaðið hefur fjallað um málaflokkinn undanfarna viku og komið hefur fram margvísleg gagnrýni.Innanríkisráðuneytið telur tilefni til þess að fara yfir verklagsreglur varðandi nauðungarvistun.Fréttablaðið/Vilhelm„Þessi mál hafa verið til skoðunar í ákveðinn tíma. Ráðuneytið er meðvitað um að skoða þarf breytingar á nauðungarvistunum í heild sinni. Við höfum verið í samráði við fjölbreyttan hóp aðila sem koma að málinu og við munum halda áfram þeirri vinnu á nýju ári,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra. „Verið er að skoða hvort eigi að byggja þetta öðruvísi upp,“ segir Hanna Birna. „Við höfum til dæmis séð að velferðarþjónustan sækir oftar um nauðungarvistun og sjálfræðissviptingu en aðstandendur,“ segir hún en það hefur meðal annars verið gagnrýnt að aðstandendur geðsjúkra komi að því að sækja um nauðungarvistun, þar sem það hafi slæm áhrif á samskipti innan fjölskyldna. „Þá teljum við tilefni til að fara yfir verklagsreglur,“ segir Hanna Birna, en á nýju ári mun áðurnefndur hópur samráðsaðila leggja fram minnisblað með hugmyndum að næstu skrefum. Fram hefur komið að innanríkisráðuneytið, sem er sá aðili sem samþykkir beiðnir um tuttugu og eins dags nauðungarvistanir, tekur ekki saman tölur yfir fjölda nauðungarvistana eða sjálfræðissviptinga með skipulegum hætti. Almenningur hefur því ekki aðgang að upplýsingum um fjölda nauðungarvistana eða þróun þeirra. Þá fór Landspítalinn þess á leit við innanríkisráðuneytið að tekinn yrði saman fjöldi sjálfræðissviptinga, en fékk synjun á þeim grundvelli að ekki yrði lögð vinna í slíka gagnaöflun. Frá ráðuneytinu fást þær upplýsingar að breyting gæti orðið á þessu í kjölfar endurskoðunar á ferlinu í heild, enda séu tölulegar upplýsingar gott stjórntæki og mikilvægar fyrir stefnumótun. „Ég held að það þurfi að skoða þetta allt í samhengi við vinnu ráðuneytisins. Einnig að upplýsingar séu aðgengilegar og að staða mála sé skýr. Það skiptir auðvitað miklu máli, enda viljum við tryggja að þessi mál séu unnin eins vel og faglega og frekast er unnt,“ segir Hanna Birna.Nánar er fjallað um þennan málaflokk í Fréttablaðninu í dag.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira