Fernanda öðlast nýtt líf Samúel Karl Ólason skrifar 19. desember 2013 13:43 Fernanda í svokölluðum náttúruslipp. Mynd/Hafsteinn Hilmarsson
Skipið Fernanda kom á fast land í Helguvík í gærkvöldi eftir að hafa verið dregið frá Njarðvík í gær. Fyrirtækið Hringrás mun sjá um að rífa skipið niður í brotajárn. „Við renndum henni upp í náttúruslippinn í gærkvöldi og tókum hana fimm metrum lengra inn í rennuna í morgun, á aðeins hærri straumi,“ segir Einar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Hringrásar. Eldur kviknaði í skipinu í lok október þegar skipið var nálægt Vestmannaeyjum og var það dregið að bryggju í Hafnarfirði, þar sem eldur kom aftur upp í skipinu. Nú er unnið að því að tryggja aðstæður í kringum skipið og gera aðbúnað sem allra bestan. „Þegar við erum sáttir, þá hefjum við verkið. Við munum búta niður skipið. Það eru hinar ýmsu tegundir af málmum og hin ýmsu efni um borð. Endurvinnslan er í því að flokka og vinna. Við lágmörkum rúmtakið og lestum þetta um borð í skip og flytjum á erlendan markað sem fullendurunnið hráefni til framleiðslu,“ segir Einar. „Þetta er hin fullkomna hringrás og kannski kemur Fernanda aftur til landsins. Kannski í formi steypustyrktarjárns, þakjárns eða sem nokkur reiðhjól.“ Í skipinu eru spilliefni og segir Einar að þeim verði fargað með viðurkenndum hætti. „Við erum með spilliefnadeild hjá okkur og öllum spilliefnum verður fargað. Þar eru allir ferlar gagnsæir og við erum með starfsleyfi frá heilbrigðis- og umhverfisyfirvöldum. Það þarf að gera grein fyrir öllu. Það er öllu fargað á viðurkenndan hátt svo umhverfið beri ekki skaða af. Það er okkur mikið metnaðarmál.“ Áætlað er að verkið taki um tvo mánuði. „Við förum okkur að engu óðslega í þessu, látum umhverfið njóta vafans og tryggjum að allt verði eins og best verður á kosið. Öðruvísi verður verkið ekki hafið, fyrr en allt er klárt,“ segir Einar.Mynd/Hafsteinn Hilmarsson.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira