Fleiri fréttir

Seldu Maríu mögulega í barnavændi

Lögmaður sígaunaparsins, sem grunað er um að hafa rænt stelpunni Maríu, segir skjólstæðinga sína halda því fram að þau hafi ekki rænt Maríu, heldur ættleiddu þau barnið á hátt sem var ekki löglegur, því líffræðileg móðir hennar hafi ekki getað séð um Maríu.

Hægt að velja um fegurstu og ljótustu orð íslenskrar tungu

Nú hefur verið opnuð Facebook-síða þar sem hægt er að velja ljótasta orðið í íslenskri tungu. "Ég er ekki búinn að sjá síðuna en ég frétti af henni í morgun,“ segir Ástráður Eysteinsson, formaður starfshóps vegna leitarinnar að fegursta orðinu.

Segja miðaldadómkirkjuna spilla Skálholti til framtíðar

„Það lítur út fyrir að það sé vilji til að byggja nálægt kirkjunni. Margir segja að þetta myndi spilla Skálholti til framtíðar,“ segir vígslubiskup í Skálholti sem hefur fundið fyrir miklum hita í umræðum um byggingu miðaldadómkirkju.

Rósa vill leiða listann

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, vill leiða listann í komandi kosningum.

Spá stormi fyrir vestan

Veðurstofan spáir stormi á miðvikudag og aðfararnótt fimmtudags á Vestfjörðum ásamt því sem hvasst verði um land allt.

Rjúpnaveiðitímabil næstu þriggja ára ákveðin

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur gefið út fyrirkomulag rjúpnaveiða til næstu þriggja ára, eða til ársins 2015. Öll árin eru veiðar leyfilegar um fjórar þriggja daga helgar.

Einar Örn og Björn Blöndal í Kína

Einar Örn Benediktsson og Björn Blöndal, eru nú staddir, fyrir hönd Reykjavíkurborgar, úti í Kína á mikilli ráðstefnu sem haldin er í Beijing.

Myndband af handtöku Ómars Ragnarssonar

"Í hnotskurn er málið þannig að það er siðlaust að á meðan að málið er enn rekið fyrir Hæstarétti að fara í þessa framkvæmd,“ segir Ómar Ragnarsson, náttúruvinur sem er laus úr haldi, en hann var handtekinn í morgun þar sem hann var að mótmæla við Gálgahraun.

Vélarvana bátur í Önundarfirði

Björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar var kallað út í nótt vegna vélarvana báts en um bilun í stýrisbúnaði mun hafa verið að ræða.

Fimm látnir í sprengingu í Rússlandi

Að minnsta kosti fimm manns féllu og og meira en tólf manns særðurst þegar sprengja sprakk í Volgograd í suður-Rússlandi. Talið er að um sprengjuárás sé að ræða.

Draga grænmetisát Neanderdalsmanna í efa

Ekki er víst að Neanderdalsmenn hafi lifað jafn heilsusamlegu lífi og vísindamenn hafa gert skóna, og ástæða til að efast um að þeir hafi borðað grænmeti að nokkru ráði segja vísindamenn við breska náttúruvísindasafnið í London.

Lýst eftir fimmtugri konu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og björgunarsveitir leita að konu sem ekkert hefur sést til né heyrst frá, síðan klukkan 17:30 í gær.

Besti flokkurinn byggir upp spennu

Þrátt fyrir blússandi byr í skoðanakönnunum fæst ekki uppgefið hvort Besti flokkurinn fari fram í næstu borgarstjórnarkosningum.

Parið ákært fyrir mannrán

Par úr hópi Rómafólks í Grikklandi verður ákært fyrir mannrán í máli hinnar fjögurra ára gömlu Maríu sem vakið hefur athygli víða um heim.

Ómar Ragnarsson handtekinn

"Ég sat bara þarna og hreyfði mig ekki neitt, en núna er ég í lögreglubíl á leið í steininn,“ segir Ómar Ragnarsson náttúruvinur, sem var handtekinn rétt í þessu þar sem hann var viðstaddur mótmælin í Gálgahrauni.

Menn eru að gera sig "eldklára“

Íslensk kona sem býr við skógareldasvæðið í Ástralíu segir fólk auðvitað vera hrætt og þeir sem búa í úthverfum séu virkilega smeykir við að missa allt sitt.

Hafís á Suðurskautinu í hámarki

Meðan hafísinn á Norðurskautinu bráðnar þá hefur hafísinn umhverfis Suðurskautslandið ekki mælst meiri frá upphafi mælinga.

Harmar að lögreglan standi með lögbrjótum

"Ég var handtekinn fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu og ég er núna í fangaklefa, eða einskonar biðklefa þar sem ég bíð eftir lögreglunni og lögfræðinginum mínum,“ segir Gunnsteinn Ólafsson sem var handtekinn í morgun þar sem hann var við mótmæli í Gálgahrauni.

Meirihluti ungs fólks íhugað að flytja til útlanda

Meirihluti ungs fólks undir þrítugu hefur hugsað um að flytja til útlanda á síðustu mánuðum samkvæmt skoðanakönnun MMR. Alls sögðust 56 prósent fólks í aldurshópinum 18 til 29 ára hafa íhugað að flytja frá Íslandi.

Komu fram við Mariu litlu eins og "dansandi björn“

Fyrir þremur vikum síðan var tekið myndband af Mari litlu, þar sem hún sést dansa ásamt fullorðnu fólki. Stúlkan sem talið er að sé um fjögurra ára þykir ekki sýnast hamingjusöm þar sem hún stígur dansinn.

Utanríkisráðherra Frakka segir njósnir NSA "óásættanlegar"

Laurent Fabius, utanríkisráðherra Frakklands, hefur kallað bandaríska sendiherrann í Frakklandi til fundar vegna meintra njósna. Frétt í Le Monde í morgun leiðir í ljós að bandaríska Þjóðaröryggisstofnunin, NSA, safnaði saman gögnum um fleiri en 70 milljónir símtala í Frakklandi á mánaðar tímabili um og eftir síðustu áramót.

Hundruðum hefur verið hjálpað úr ánauð

Rauði krossinn á Íslandi hefur með stuðningi utanríkisráðuneytisins styrkt baráttu gegn þrælahaldi í Hvíta-Rússlandi með fjárhagsaðstoð og ráðgjöf undanfarin þrjú ár. Talið er að fórnarlömb mansals þar séu nú yfir 1.000 á ári.

Vænta má harðari stefnu

Carl I. Hagen, fyrrverandi formaður Framfaraflokksins í Noregi, segir stjórnmálamenn flokksins með innflytjendabakgrunn munu taka harðar á málefnum hælisleitenda en nú er gert.

Í minningu um Árna Vilhjálmsson

Brjóstmynd af Árna heitnum Vilhjálmssyni, prófessor og fyrrverandi stjórnarformanni HB Granda, var afhjúpuð við hátíðlega athöfn í Odda í byrjun vikunnar

Tjaldanesið dregið til Flateyrar

Björgunarskipið Gunnar Friðriksson er nú að draga fiskiskipið Tjaldanes GK til Flateyrar, eftir að vélarblinu varð í skipinu upp úr miðnætti og allt rafmagn sló út.

Átta ára telpa skotin til bana

Þrír voru myrtir, þar á meðal átta ára gömul telpa, þegar byssumenn á mótorhjólum skutu á hóp brúðkaupsgesta fyrir utan kirkju í Kaíró í gærkvöldi. Að minnsta kosti tíu liggja sárir eftir en ekki er ljóst hverjir stóðu að ódæðinu.

Tekinn á 170 í Árnessýslu

Lögreglan í Árnessýslu stöðvaði ökumann í Hveradalabrekkunum laust fyrir miðnætti eftir að bíll hans hafði mælst á tæplega 170 kílómetra hraða, en þrír farþegar voru í bílnum auk ökumanns.

Sjá næstu 50 fréttir