Fleiri fréttir

Þjálfunartæki frá fiskþurrkun

Forsvarsmenn fiskþurrkunarfyrirtækisins Klofnings á Suðureyri hafa fært sjúkraþjálfun Landspítala á Grensásdeild nýtt þjálfunartæki að gjöf.

Sýrlensk börn fá neyðaraðstoð

Borgarstjórn samþykkti samhljóða að veita sem svarar 100 krónum á hvert barn í Reykjavík til hjálparstarfs vegna yfirstandandi hörmunga í Sýrlandi.

Fjöldagreftrun flóttamanna

Fjöldi óþekktra flóttamanna lét lífið við strendur Ítalíu á dögunum þegar kviknaði í báti fullum af flóttamönnum frá Erítreu og Sómalíu með þeim afleiðingum að hann sökk.

Tvær nýjar ákærur sameinaðar Stokkseyrarmálinu

Tveir sakborninganna ákærðir, annar fyrir að hafa skallað mann fyrir utan skemmtistaðinn Faktorý og fíkniefnaakstur og hinn fyrir að skalla og bíta fyrrverandi tengdaföður sinn og dælda bíl hans.

Sameini ekki á Vestfjörðum

Bæjarráð Ísafjarðar leggst eindregið gegn sameiningu heilbrigðisstofnana á Patreksfirði og Ísafirði.

Tók fyrstu myndina ellefu ára af vinkonum

Agnes Heiða Skúladóttir sem sigraði í ljósmyndakeppni Fréttablaðsins stofnaði ásamt vinkonum sínum ljósmyndaklúbbinn ÁLFkonur en hástafirnir standa fyrir "áhugaljósmyndarafélag“.

Hundadeilum í fjölbýlishúsum fjölgað

Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis segja að deilum vegna hundahalds í fjölbýlishúsum hafi fjölgað eftir að lögum var breytt. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur segir ákveðna óvissu uppi með lögin um dýrahald.

Órökstudd upplýsingasöfnun

Persónuvernd telur að enn vanti rökstuðning stjórnvalda fyrir nauðsyn upplýsingasöfnunar vegna nýrra laga þar sem kveðið er á um heimild til öflunar persónugreinanlegra fjárhagsupplýsinga.

Myndi aldrei selja medalíuna

"Menn geta vissulega verið í slíkum fjárhagsvandræðum að þeir þurfi að selja en það hlýtur að vera hreint neyðarúrræði“

Börn af erlendum uppruna líklegri fórnarlömb eineltis

Ný rannsókn sýnir að börn af erlendum uppruna eru líklegri til að vera þolendur og jafnframt gerendur eineltis en íslensk börn. Mikill munur er þar á. Erlend börn standa verr félagslega og eiga erfiðara með að eignast vini.

Karlar í lögreglunni vantreysta konunum

Karlkyns lögreglumenn eru oft ekki tilbúnir að viðurkenna kvenkyns samstarfsmenn sína sem jafninga. Þetta er niðurstaða viðamikillar rannsóknar sem Ríkislögreglustjóri lét vinna á stöðu kvenna innan lögreglunnar.

Ekki sást vel til norðurljósa

Slökkt var á ljósum víðsvegar um höfuðborgarsvæðið í kvöld eins og fram hefur komið á Vísi. Ljós voru einnig slökkt á Akranesi.

Myndi ekki vilja sleppa glösum

Fjögurra ára leikskólabörnum, sem heimsóttu Þjóðminjasafnið á dögunum, þóttu ævagamlar beinagrindur mest spennandi. Þau voru ekki sérlega áhugasöm um að taka upp forna lífshætti, eins og nota horn sem drykkjarmál. "Ég myndi ekki vilja sleppa glösum," sagði Aníta 4 ára. Þjóðminjasafnið tekur árlega á móti um fjórtán þúsund leikskóla- og grunnskólanemendum í safnakynningu.

Amma ekur inn í þvottastöð fyrir mistök

Amma í Bretlandi slapp án meiðsla eftir að hafa ekið inn í bílaþvottastöð fyrir mistök, hún ætlaði að keyra út af bílastæði stórmarkaðs þar sem hún hafði nýlokið við að versla. Þetta kemur fram á Daily Mail.

Alþjóðlegur dagur missis á meðgöngu: Feður byrgja sorgina frekar inni

Jón Þór Sturluson og kona hans, Anna Baldvinsdóttir misstu ófætt barn sitt. Jón Þór segir feður frekar byrgja inni sorgina en finni hana engu að síður jafn sterkt og mæður. Hefð hafi skapast um það í samfélaginu að ræða ekki þessa tegund missis og því þurfi að breyta.

Silfurpeningurinn kominn og farinn

"Ég orgaði af gleði þegar íslenska landsliðið vann silfrið, en ég orgaði enn hærra þegar medalían kom í hús.“ Þetta segir eigandi safnarabúðar en hann hafði milligöngu um sölu á silfurverðlaunapening íslenska landsliðsins.

Stytta refsivist fanga til að spara

Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, telur rétt að skoða hvort hægt sé að stytta refsivist fanga og leyfa þeim þess í stað ljúka afplánunun undir rafrænu eftirlit. Slíkt gæti falið í sér verulegan sparnað fyrir ríkið.

Konur í meirihluta í borgarstjórn

Konur eru nú í meirihluta í borgarstjórn, eftir að Hildur Sverrisdóttir tók sæti Gísla Marteins Baldurssonar í borgarstjórn.

Illugi stefnir að styttingu framhaldsskólanáms

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarráðherra sagðist ætla að stytta framhaldsskólanám í Stóru málunum á Stöð 2 í gærkvöldi. "Mér finnst að röksemdarfærslan þurfi að vera þannig, að þeir sem eru þeirrar skoðunar að við Íslendingar einir eigum að hafa 14 ár þegar allir aðrir hafa 13 og 12, það þarf að rökstyðja það sérstaklega."

Sameining grunnskóla erfiðasta mál Jóns Gnarr

Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur sagði í Stóru málunum í gærkvöldi að erfiðasta mál hans í borgarstjórastóli hefðu verið þær sameiningar grunnskóla sem hann stóð fyrir. Jón telur þróunina á skólakerfinu vera góða og það væri alltaf að verða betra en það var.

Kastaði sér fyrir bíl og vildi bætur

Karlmaður sem sagðist ætla að binda endi á eigið líf með því að kasta sér fyrir bíl við Höfðabakka í desember árið 2010 fór í mál við ökumanninn sem keyrði á hann og tryggingarfélagið sitt.

Er Ásmundur Einar á leið úr Framsóknarflokknum?

Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi flokkssystir Ásmundar Einars Daðasonar þingmanns Framsóknarflokksins og fulltrúa í hagræðingarhóp ríkisstjórnarinar, velti því fyrir sér á þingi í dag hvort Ásmundur kunni að vera á förum úr Framsóknarflokknum.

Lokun handritasýningar eins og ef breitt væri yfir Akropolis

Elín Hirst þingmaður Sjálfstæðisflokksins vakti athygli á því á Alþingi í dag að sýningu á íslenskum handritum í Þjóðmenningarhúsinu hafi verið lokað, vegna þess að ekki væru tryggðir fjármunir til sólahringsgæslu í húsinu.

Byggðasamlag á móti sameiningu heilbrigðisstofnana

Það má búast við ennafrekari skerðingu á þjónustu og starfsemi Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi sem þegar er komin að þolmörkum bæði rekstrar- og þjónustulega, segir í ályktun Byggðasamlags um menningu um atvinnumál í Austur-Húnavatnssýslu.

Ormar í indverskri samloku

Indverska flugfélagið Air India segir að rannsókn sé hafin á því hversvegna ormar hafi fundist í samloku farþega sem flaug með félaginu í síðasta mánuði.

Útvarpssendingar RÚV niðri í fimm daga í Grundarfirði

Tækjabilun varð í útsendingarbúnaði RÚV í Grundarfirði á föstudaginn í síðustu viku svo truflun varð á útvarpsútsendingum í bænum og hafa íbúar átt í erfiðleikum með að hlusta á RÚV stöðvarnar.

IKEA krefur meinta þjófa um á fimmtu milljón

IKEA hefur höfðað mál gegn þremur konum og tveimur karlmönnum vegna þjófnaðar sem virðist hafa verið þaulhugsaður og skipulagður. Fyrirtækið krefst þess að fimmmenningarnir greiði IKEA á fimmtu milljón króna.

Sjá næstu 50 fréttir