Er Ásmundur Einar á leið úr Framsóknarflokknum? Heimir Már Pétursson skrifar 15. október 2013 15:49
Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi flokkssystir Ásmundar Einars Daðasonar þingmanns Framsóknarflokksins og fulltrúa í hagræðingarhóp ríkisstjórnarinar, velti því fyrir sér á þingi í dag hvort Ásmundur kunni að vera á förum úr Framsóknarflokknum. Lilja Rafney spurði hvort þingmaðurinn gæti tekið undir nýja ályktun kjördæmisráðs Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, kjördæmi Ásmundar Einars. „Þar sem nánast öllum áformum ríkisstjórnarinnar um niðurskurð var mótmælt. Það var ályktað gegn niðurskurði í vegamálum, gegn niðurskurði í jöfnun húshitunarkostnaðar, gegn niðurskurði til nýsköpunar og skapandi greina, gegn niðurskurði á stuðningi við innanlandsflugið í dreifðum byggðum, gegn niðurskurði í framhalds- og háskólanámi á landsbyggðinni, gegn almennum skattalækkunum, gegn sameiningu heilbrigðisstofnana og gegn virkjunum á kostnað náttúrunnar,“ rifjaði Lilja Rafney upp. Og Lilja Rafney minnti á að Ásmundur Einar hefði gagnrýnt fyrri ríkisstjórn harðlega m.a. fyrir niðurskurð, ekki stutt fjárlög hennar og gengið úr Vinstri grænum. „Hvernig getur háttvirtur þingmaður með góðri samvisku staðið fyrir þessum mikla niðurskurði á landsbyggðinni, þvert á vilja flokksmanna hans í hans eigin kjördæmi? Eða endurtekur sagan sig og háttvirtur þingmaður styður ekki fjárlögin, eða gengur háttvirtur þingmaður úr Framsóknarflokknum,“ spurði Llja Rafney. En Ásmundur Einar kaus að svara henni ekki í umræðunni á Alþingi í dag.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira