Fleiri fréttir

„Óhentugt að reka bráðamóttöku á tveimur stöðum“

"Okkur vantar fé til tækjakaupa og við þurfum að endurskipuleggja starfsemina,“ segir framkvæmdastjóri lækninga til að efla bráðamóttöku á Landspítalanum og segir hann afar óhentugt að reka bráðamóttöku á tveimur stöðum.

„Tilviljun að ég var í sundlauginni“

Það var tilviljun sem réði því að Gunnar Áki Kjartansson, bjargvætturinn úr Suðurbæjarlaug Hafnarfjarðar, skellti sér til sunds í sundlauginni í gær.

Árni Páll fundar með ráðamönnum ESB

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, er á leið til Strassborgar í Frakklandi þar sem hann mun eiga fundi með ráðamönnum Evrópusambandsins.

Uppboð á bíl Ringo Starr

Facel Vega bílar voru smíðaðir í Frakklandi á árunum 1954 til 1964 og voru vandaðir og dýrir bílar.

Veiðileyfagjaldið renni aftur í hérað

"Það er fólkið sem veiðir, vinnur og selur fiskinn sem býr til verðmætin. Það er þetta fólk sem á heimtingu á því að njóta sérstaks veiðileyfagjalds, ef það er lagt á,“ segir bæjarráði Vestmannaeyja.

Aðgerðir í þágu hinna fáu

Ungir jafnaðarmenn telja það með eindæmum að mögulegt sé að standa fyrir jafn mikilli afturför á jafn skömmum tíma og ný ríkisstjórn Íslands hafi staðið fyrir.

Kerry ánægður með Assad

Assad forseti Sýrlands og samstarfsmenn hans í Damaskus eigi hrós skilið fyrir að standa hingað til við gerða samninga um eyðingu efnavopna í landinu.

Fitow gerir Kínverjum lífið leitt

Hæsta viðbúnaðarstig er nú í gildi í austurhluta Kína eftir að öflugur fellibylur sem kallaður er Fitow gekk þar á land í morgun.

Læknandi gerlar úr saur í pillur

Vísindamenn við háskólann í Calgary í Kanada hafa fundið nýstárlega leið til þess að lækna sýkingar í þörmum.

Kokkur ákærður fyrir að taka eldhúsinnréttingu, tæki og hurðir

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært hálffertugan mann fyrir skilasvik og fjárdrátt með því að hafa strípað eldhús, baðherbergi og þvottahús íbúðar í Árbæ sem hann hafði til umráða mánuðina áður og eftir að hún var seld nauðungarsölu.

Vilja breyta frídagakerfinu

Þingmenn Bjartrar framtíðar leggja til að almennir frídagar vegna uppstigningardags og sumardagsins fyrsta verði næsta föstudag eftir þann dag sem þá ber upp á.

Aðföng kvörtuðu yfir merkingum hjá Kosti

Heildsalan Aðföng hefur frá árinu 2009 átt í samskiptum við Matvælastofnun um meintar vanmerkingar og ólögleg matvæli á markaðnum. Í svari til Aðfanga segir heilbrigðiseftirlitið aðspurt að samevrópsk lög gildi um alla. Aðföng klöguðu Kost.

Segir stefnuleysi ríkjandi í málefnum geðsjúkra barna

Barnageðlæknar segja vanda barnageðlækninga frekar skipulagsleysi en fjárhagsvanda. Þetta valdi skekkju í kerfinu og auki álag á BUGL. Þeir vilja að skipuð verði sérfræðingateymi sem stýri því hvert börn í vanda leita.

Allt að 150 er enn þá saknað

Búið er að finna tæplega tvö hundruð lík afrískra flóttamanna sem fórust með skipi nærri ströndum eyjunnar Lampedúsa fyrr í vikunni. Kafarar endurheimtu 83 lík úr flaki skipsins í gær en talið er að allt að 500 manns hafi verið um borð.

Stjórnvöld í Líbíu heimta útskýringar

Stjórnvöld í Líbíu hafa óskað eftir útskýringum frá Bandaríkjamönnum á handtöku þeirra á grunaða hryðjuverkamanninum Abu Anas al-Libi fyrir utan Trípólí.

Byrjaðir að eyða efnavopnum

Alþjóðlegt teymi sérfræðinga hóf í dag að taka í sundur og eyða efnavopnum Sýrlendinga og búnaði sem notaður er til að framleiða þau. Þar með hefur fyrsta skrefið verið tekið til að eyða öllum efnavopnum í landinu fyrir mitt ár 2014.

Íslandsmeistarar í ökuleikni

Íslandsmeistarakeppni í ökuleikni var haldin á Kirkjusandi um helgina og sýndu þátttakendur mikla færni undir stýrinu. Hrund Þórsdóttir spreytti sig á ökuþrautum.

Mótmælt með söng

Svíar mótmæltu í dag bágri stöðu hinsegin fólks í Rússlandi með því að syngja rússneska þjóðsönginn.

Sauðkindur á Þingvöllum

Ferðamenn, sem nutu haustdýrðar í þjóðgarðinum á Þingvöllum um helgina, urðu eflaust margir hissa á að sjá sauðkindur spóka sig þar í makindum.

Kærir fyrir gallað sæði

Kona sem eignaðist barn með alvarlegan erfðasjúkdóm kærir sæðisbankann fyrir gallaða vöru.

Ryan Gosling farinn af landi brott

Leikarinn Ryan Gosling er farinn af landi brott en hann hefur verið hér á landi að klippa kvikmynd sína How To Catch A Monster með Valdísi Óskarsdóttur.

„Uppgjör við þrotabúin er leysanlegur vandi“

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fyrrverandi fjármálaráðherra ræddu þrotabú, afskriftir krónunnar og gjaldeyrishöft við Sigurjón M. Egilsson í Sprengjusandi í morgun.

Eini krullótti Spói landsins

115 kettir eru til sýnis um helgina í gamla Toyota húsinu í Kópavogi þar sem haustsýning Kynjakatta fer fram.

„Sýnist stjórnin ekki hafa trú á fjárlagafrumvarpi sínu“

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir ummæli forsætisráðherra um fjárlagafrumvarpið verða sífellt óskiljanlegri en hann skilji orð Sigmundar sem svo að stjórnarandstæðan eigi að endurskoða forgangsröðun í fjárlagafrumvarpinu.

Fimm ár frá ávarpi Geirs Haarde: „Guð blessi Ísland“

Í dag eru fimm ár síðan að Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, ávarpaði þjóðina í beinni útsendingu og bað Guð um að blessa Ísland. Oft hefur verið talað um að þessi dagur, 6. október árið 2008, sé dagurinn sem íslenska bankakerfið hrundi.

„Ekkert haturspasta á mínum borðum takk“

Vörur frá Barilla eru á tilboði víðsvegar í verslunum á Íslandi. Fjölmargir hafa skrifað athugasemdir á facebook-síðu Barilla á Íslandi vegna neikvæðra ummæla stjórnarformanns Barilla og segjast ekki vilja kaupa vörur Barilla.

Læra að gera sushi á landsmóti

Um 400 unglingar alls staðar að af landinu hafa verið á Hvolsvelli um helgina á landsmóti Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi, þar sem þeir hafa meðal annars lært að gera sushi. Framkvæmdastjórinn segir að landsmótið hafi gengið mjög vel.

Aldrei fleiri íslenskar bækur þýddar

Aldrei hafa fleiri íslenskar bækur verið þýddar á erlend mál en nú og dæmi eru um að verk íslenskra höfunda séu þýdd á tugi tungumála. Þetta má þakka samstilltu átaki opinberra aðila og bókaútgefenda.

Leitin bar engan árangur

Leitin að Nathan-Foley Mendelson, bandaríska ferðamanninum sem ekki hefur spurst til síðan 10. september hefur engan árangur borið.

FBI að störfum í Afríku

Bandarískar sérsveitir gerðu í gær atlögu að tveimur hátt settum hryðjuverkamönnum í Afríku. Annar var einn af æðstu mönnum íslömsku hryðjuverkahreyfingarinnar al-Sjabab í Sómalíu, en heimildum ber saman um að líklega hafi mistekist að ráða hann af dögum.

Kona handtekin fyrir að kýla dyravörð

Kona um þrítugt var handtekin á skemmtistað í Hafnarfirði á tólfta tímanum í gær eftir að hún kýldi dyravörð með þeim afleiðingum að hann hlaut áverka á vanga.

Sjá næstu 50 fréttir