Læra að gera sushi á landsmóti Boði Logason skrifar 6. október 2013 13:14 Frá Samfés-ballinu í Laugardalshöll í fyrra. Mynd/Anton Brink
Um 400 unglingar alls staðar að af landinu hafa verið á Hvolsvelli um helgina á landsmóti Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi, þar sem þeir hafa meðal annars lært að gera sushi. Framkvæmdastjórinn segir að landsmótið hafi gengið mjög vel. Markmið landsmótsins er að stjórnir í unglingaráðum félagsmiðstöðva landsins hafi vettvang til að mynda tengsl og fá nýjar hugmyndir sem hægt er að nýta í starfi félagsmiðstöðvanna. Eftir helgi verða teknar saman niðurstöður þess og sendir ályktanir á ráðuneyti , sveitarstjórnir og fjölmiðla. Björg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samfés, segir að á föstudag hafi krakkarnir kosið í ungmennaráð Samfés, og síðan hafi verið haldin kvöldvaka þar sem söngvarinn og gleðigjafinn Friðrik Dór hafi haldið uppi stuðinu. Í gær var svo smiðjuvinna. „Þetta var tvískipt, þau fengu annars vegar að velja sér smiðjur sem voru léttari eins og leiklist, tónlist, læra að gera sushi, og allskonar útivist og svo hins vegar voru þau í smiðjum þar sem var meðal annars rætt um jafnrétti kynjanna, valdeflingu og mannréttindi.“ Og í dag fer fram landsþing, þar sem allir koma saman og ræða um allt á milli himins og jarðar. „Þar eru þau að ræða um sitt nær umhverfi og sitt ytra umhverfi, menntamál, kynlíf, áfengis- og vímuefnaneyslu, ýmsar forvarnir og framkomu fullorðinna til ungmenna og öfugt.“ Og þau hafa gott af þessu? „Ég myndi segja það, þau kvarta ekki og eru ótrúlega glöð - þetta er stór og fallegur hópur sem við höfum.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira