Fleiri fréttir

Ölvaður sofnaði á ljósum

Lögreglumenn höfðu afskipti af sofandi ökumanni á umferðarljósum á Höfðabakka í Reykjavík rétt fyrir klukkan níu í morgun. Kom í ljós að sá var á leiðinni í Grafarvog en komst ekki lengra þar sem hann sofnaði sökum ölvunarástands. Hann var færður á lögreglustöð þar sem málið var afgreitt. Ökumaðurinn var vistaður í fangageymslu og verður rætt við hann þegar af honum rennur.

John Kerry fundaði með ESB-ráðherrum

John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom til Vilnius höfðuðborgar Litháen í morgun til að eiga fund með utanríkisráðherrum evrópusambandsríkjanna.

Sögulegar þingkosningar í Ástralíu

Allt stefnir í sögulegar þingkosningar í Ástralíu, þar sem útgönguspár benda til þess að Bandalag frjálslyndra og vinstrimanna vinni stórsigur og oddviti þess, Tony Abbott, velti Kevin Rudd forsætisráðherra og leiðtoga Verkamannaflokksins úr sessi.

Brjálað veður í dag

Veðurstofan varar við stormi á Vestanverðu landinu í dag. Á vef vegagerðarinnar kemur fram að á norðanverðu Snæfellsnesi megi reikna með vindhviðum frá því eftir klukkan níu til ellefu upp í 25-30 m/s, og allt að 35 m/s undir kvöldið, eða upp úr klukkan sex. Frá þeim tíma má einnig búast við miklum vindhviðum víðar á Vesturlandi s.s. undir Hafnarfjalli og á Vestfjörðum t.d. á neðanverðri Gemlufallsheiði og við Arnardal á Súðavíkurvegi. Veðrið gengur niður í nótt.

Fannst liggjandi á bílastæði

Maður á níræðisaldri fannst liggjandi á bílastæði við Hrafnistu í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt. Hann er talinn hafa dottið niður af steinvegg og legið í einhvern tíma. Fallið var um einn metri. Maðurinn hlaut sár á andliti, brjóstkassa og hendi og var fluttur á slysadeild. Maðurinn liggur nú á gjörgæsludeild en líðan hans er stöðug.

Samskiptabrestur tafði morðrannsókn á Egilsstöðum

Svo virðist sem samskiptabrestur á milli Neyðarlínunnar, fjarskiptamiðstöðvar Ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á Egilsstöðum hafi orðið til þess að morðrannsókn á Egilsstöðum seinkaði um nokkrar klukkustundir.

Ekkert nema bjartsýni í boði

Hagbarður Valsson, verktaki í Noregi, varð fyrir þeirri raun í sumar að missa eiginkonu sína, Guðrúnu G. Sigurðardóttur, sem var gengin sjö mánuði með þeirra fjórða barn. Telpunni Rósu Jónu var bjargað af miklu snarræði með keisaraskurði á stofugólfinu.

Læra að sauma nýjar flíkur úr gömlum

Hjálparstarf kirkjunnar og Hjálpræðisherinn í Reykjavík halda saumanámskeið á ný. Skjólstæðingar sem stóðu sig vel á námskeiðunum í fyrra verða aðalleiðbeinendur. Hundruð umsókna vegna skólagöngu barna. Uppgerðar tölvur útvegaðar.

Safna til stuðnings sýrlensku þjóðinni

Sjálfboðaliðar Rauða krossins komu saman á Lækjartorgi í gær til að vekja athygli á þeim hrikalegu aðstæðum sem Sýrlendingar búa við bæði innan og utan eigin landamæra.

Lögreglan kallar eftir hjálp

Lögreglan í Gautaborg vill hjálp annarra lögregluumdæma í Svíþjóð til þess að stöðva gengjamorðin í borginni.

Lög um almannatryggingar endurskoðuð

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið að skipa nefnd til að ljúka heildarendurskoðun almannatrygginga og gera drög að frumvarpi til nýrra laga um lífeyrisréttindi.

Ók ölvaður og drap mann

Matthew Cordle, 22 ára Bandaríkjamaður játar á myndbandi að hafa drepið mann þegar hann ók bifreið undir áhrifum áfengis að morgni dags, 22. júní síðastliðinn.

Komu hringnum loks í réttar hendur

Íslensk hjón fundu fyrir tilviljun demantsskreittan hvítagullshring á Spáni fyrir fimm árum. Með hjálp veraldarvefsins og fjölmiðla tókst þeim að hafa uppi á sænskum eigendum hringsins, sem í dag komu hingað til lands til að vitja hans.

Strætókort hækka um meira en 100% frá 2011

Nemakort Strætó hafa hækkað um meira en hundrað prósent frá árinu 2011. Kortin voru ókeypis árið 2008 en hafa hækkað ár frá ári síðan þá. Þrátt fyrir þessa hækkun hafa aldrei fleiri tekið strætó og var var ágúst metmánuður hjá Strætó bs

Flugvöllurinn: Ríkið getur tekið sér skipulagsvald

Formaður borgarráðs segir hugmynd um að færa skipulagsvald yfir Reykjavíkurflugvelli til ríkisins aðeins pólitískt útspil, en lektor í lögum segir ríkið geta tekið sér skipulagsvald einhliða. Þar reyni þó á pólitíska ábyrgð.

466 bíða afplánunar

Í árslok 2012 biðu 466 dómar þess að verða fullnustaðir. Það er um tvöfalt fleiri en í árslok 2009.

Landspítalinn kominn í þrot

Læknar á Landsspítalanum segja spítalann kominn í þrot og grípa þurfi til aðgerða nú þegar til að styrkja starfsemi hans. Skipulag spítalans bitni á sjúklingum og starfsfólki.

Kallar fram anda indjána á Íslandi

Friðarsinninn Blue setur upp heilsugarða víðsvegar um Ísland og biður anda um að styrkja jákvæðni, kærleika og frið í heiminum.

Fólksbíll flattist út

Vörubíll með 45 tonna farm af sandi endaði inni í íbúðarhúsi í bænum Bountiful í Utah eftir að bremsur hans biluðu.

Sjá næstu 50 fréttir