Fleiri fréttir

Sjö teknir fyrir of hraðan akstur

Sjö ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á leið til Ísafjarðar í gær. Sá sem hraðast ók var mældur á 128 kílómetra hraða og má búast við sekt upp á 70 þúsund krónur.

Leggja til gervieyjar gegn mávaplágunni í borginni

Danskir fuglafræðingar vilja búa í haginn fyrir máva og stinga upp á gervieyjum eða afgirtum varpsvæðum. Ekki útilokað hér á landi, segir Einar Ólafur Þorleifsson náttúrufræðingur, sem vill að mávar fái einhvers staðar að vera í friði til þess að þeir ver

"Eftir allt það sem ég hef gert fyrir land mitt...“

Silvio Berlusconi fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu er æfur vegna niðurstöðu hæstaréttar í gær þar sem fjögurra ára fangelsisdómur yfir honum, vegna skattalagabrota, var staðfestur. Finnst honum illa farið með sig eftir allt sem hann hafi gert fyrir land og þjóð.

Vonast eftir Þjóðhátíð án nauðgana

„Þetta er blettur á íslensku þjóðfélagi og á ekki að vera á neinni hátíð neins staðar,“ segir Birgir Guðjónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar.

Útséð að sumir munu ekki snúa aftur

Ljóst er að sumir þeirra ungu geislafræðinga sem starfa á Landspítalanum og hafa sagt upp störfum vegna óánægju með kjör sín munu ekki hefja störf þar að nýju.

Engin gengisfelling á hundraðkallinum

Ágúst Kvaran efnafræðiprófessor við HÍ var fyrsti Íslendingurinn til að hlaupa hundrað kílómetrana. Hann er nú sextíu og eins árs, ný risinn upp úr erfiðum meiðslum og löngu fjallahlaupi en stefnir á hundrað mílna hlaup í Grikklandi.

Enn einn í varðhald vegna grófra árása

Sjö manns hafa sætt gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á nokkrum hrottafengnum líkamsárásarmálum. Tveimur þeirra hefur verið sleppt. Ekki útilokað að fleiri verði handteknir. Eldfimum vökva var skvett á eitt fórnarlambið og eldur borinn að.

Segir framlag háskólans duga til að steypa upp húsið

Hægt væri að steypa upp Hús íslenskra fræða við Suðurgötu og ganga frá umhverfi þess fyrir eftirstöðvarnar af beinu framlagi Háskóla Íslands til verkefnisins, að sögn forstöðumanns Árnastofnunar.

Morsi á 6 mánaða stuðningsmann

Núverandi stjórnvöld í Egyptalandi, sem studd eru af hernum, hafa fyrirskipað lögreglu að stöðva sitjandi mótmæli stuðningsmannanna.

Skipuleggjendur kannabisræktunar óttast ekki lögreglu

Íslenski kannabis-markaðurinn er orðinn sjálfum sér nógur. Innflytjendur einbeita sér að harðari efnum. Skipuleggjendur kannabisræktar nota millimenn í skítverk og telja sig ósnertanlega. Eftirspurnin eftir kókaíni hrundi með bankakerfinu.

"Ég get fyrirgefið þér en ég mun aldrei gleyma“

Michelle Knight tók til máls við vitnaleiðslur í Cleveland í dag og beindi orðum sínum meðal annars að mannræningja sínum, Ariel Castro. Hann var dæmdur til ævilangrar fangelsisvistar án möguleika á náðun.

Hrafn sem talar og mjálmar

Krumminn Byko er einn magnaðasti fugl landsins og jafnvel heimsins því hann talar og mjálmar eins og köttur. Hann segir meðal annars halló á ensku og íslensku.

Maríjúana lögleitt í Úrúgvæ

Neðri deild úrúgvæska þingsins samþykkti í gær frumvarp um lögleiðingu maríjúana, en stefnt er á að ræktun og dreifing efnisins verði á vegum ríkisins.

"Geggjað að ná að sigrast á þessu“

Birkir Alfons Rúnarsson var aðeins fimmtán ára gamall þegar hann greindist með bráðahvítbæði árið 2011. Í dag er hann laus við krabbameinið.

Hald lagt á fíkniefni í Eyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á tæp 30 grömm af kannabisefnum í heimahúsi í Vestmannaeyjum í dag.

Bjarni boðar ný og öguð vinnubrögð

Ár eftir ár hefur Ríkisendurskoðun skilað skýrslu um framkvæmd fjárlaga þar sem bent er á agaleysi í rekstri ríkisins. Fjármálaráðherra segir að ríkisstjórnin taki nýrri skýrslu stofnunarinnar mjög alvarlega. Tekin verði upp ný og öguð vinnubrögð við fjármál ríkisins.

"Yngra fólkið er ekki mjög ánægt og maður skilur það"

Mikillar óánægju gætir meðal ungra geislafræðinga um samkomulag við Landspítalann sem undirritað var í gærkvöldi. Uppsagnir 40 geislafræðinga tóku gildi á miðnætti og enn er óljóst hversu margir snúa aftur til starfa. Einhverjir hafa þegar ráðið sig annað.

Telur veiðar á hnúfubökum brot á alþjóðasamþykktum

Veiðar á hnúfubökum væru brot á alþjóðasamþykktum sem Íslendingar eru aðilar að, að mati talsmanns Alþjóðadýraverndunarsjóðsins. Fjöldi hnúfubaka við landið hafði sjöfaldast á 20 árum þegar síðasta talning fór fram árið 2007.

Berlusconi líklega í stofufangelsi

Hæstiréttur á Ítalíu vísaði máli Silvio Berlusconis að hluta aftur til undirréttar. Hann má sitja áfram á þingi en fangelsisdómur staðfestur.

Bíða enn eftir frumvarpi um staðgöngumæðrun

„Okkur finnst þessi vinna ekki ganga neitt sérstaklega hratt fyrir sig,“ segir talskona stuðningsfélags staðgöngumæðrunar á Íslandi. Tæpt ár er síðan hópur var skipaður sem skila átti frumvarpi til laga sem heimilar staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni.

Castro dæmdur í ævilangt fangelsi

"Nú er þitt helvíti rétt að hefjast,” segir Michelle Knight, ein þriggja kvenna sem Ariel Castro rændi og hélt nauðugum á heimili sínu.

Íbúar Árnessýslu óttast um öryggi sitt

Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, segir að sífelldur niðurskurður til löggæslunnar í Árnessýslu á undanförnum árum sé farinn að bitna á þjónustunni. En nú stefni í að 21 lögreglumaður sinni víðfemu svæði með 15 þúsund íbúum sem verði allt að 25 þúsund yfir sumartímann.

Innanríkisráðherra undirbýr millidómstig

Í tilkynningu ráðherra segir að meðal markmiða í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sé að tekið verði upp millidómstig bæði í einkamálum og sakamálum og að Hæstiréttur starfi í einni deild.

Sjá næstu 50 fréttir