Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sagði íslensku krónurnar vera sænskar Lögreglan í Lancaster á Bretlandi leitar nú karlmanns sem gerði tilraun til að skipta íslenskum krónum í bresk pund fyrir tíu dögum síðan. 25.9.2012 13:17
Benedikt og Helgi metnir hæfastir í Hæstarétt Benedikt Bogason og Helgi I Jónsson, sem báðir eru starfandi hæstaréttardómarar, eru metnir hæfastir til að gegna embætti hæstaréttardómara samkvæmt mati dómnefndar. Sjö sóttu um tvö embætti sem losna um mánaðamótin þegar Jón Steinar Gunnlaugsson og Garðar Gíslason láta af embætti. 25.9.2012 12:47
Tengsl milli bólusetningar og drómasýki Marktækt samband er á milli bólusetningar við svínainflúensu og drómasýki hjá einstaklingum yngri 20 ára í Finnlandi og Svíþjóð. Þetta kemur fram í rannsóknarniðurstöðum Evrópsku Sóttvarnastofnuninnar. 25.9.2012 11:58
Djúpið framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna Djúpið mun keppa fyrir Íslands hönd um Óskarsverðlaunin fyrir bestu kvikmyndina á erlendu tungumáli á næsta ári, en val meðlimia Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar hefur verið kunngjört. 25.9.2012 11:30
Hótaði jafnaldra lífláti og hjó til hans með öxi Karlmaður um tvítugt hefur verið ákærður fyrir hótanir og sérstaklega hættulega líkamsárás á Selfossi í febrúar í fyrra. 25.9.2012 11:07
Stal beikoni og kardimommudropum Liðlega þrítugur karlmaður var dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi í tvö ár í Héraðsdómi Norðurlande eystra á föstudag fyrir þjófnað. Maðurinn stal þremur beikon áleggsbréfum, átta vanilludropaglösum og 18 kardimommuglösum úr Samkaup/Strax á Akureyri í júlí síðastliðnum. Þýfið er samtals að verðmæti um 9.500 krónur. 25.9.2012 10:57
Danir sátu hjá í refsiaðgerðum vegna makríldeilunnar Danir ákváðu að sitja hjá og greiða ekki atkvæði þegar kosið var um refsiaðgerðir gegn Íslendingum og Færeyingum innan Evrópusambandsins vegna makríldeilunnar. 25.9.2012 10:56
Tveggja mánaða fangelsi fyrir að selja félaga sínum stolinn farsíma Nítján ára karlmaður var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra á föstudaginn fyrir að stela farsíma og selja félaga sínum. 25.9.2012 10:45
Innflytjendur um 8% mannfjöldans - flestir frá Póllandi Innflytjendur voru 8% mannfjöldans, eða rúmlega 25 þúsund talsins, þann 1. janúar síðastliðinn, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Það er fækkun um 0,1% frá í fyrra þegar innflytjendur voru 8,1% landsmanna. Nokkuð fjölgaði í annarri kynslóð innflytjenda í fyrra eða úr 2.582 í 2.876. Samanlagt var fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 8,9% af mannfjöldanum 1. janúar síðastliðinn, sem er það sama og hún var 2011. 25.9.2012 09:29
Grunuðum fíkniefnaframleiðanda sleppt Karlmanni á fimmtugsaldri sem setið hefur í gæsluvarðhaldi vegna gruns um framleiðslu á fíkniefnum hefur verið sleppt. Maðurinn var handtekinn á heimili sínu í Efstasundi í síðustu viku. Yfirheyrslur yfir manninum hafa staðið yfir undanfarna daga. Rannsókn og aðgerðir lögreglu hafa verið umfangsmiklar og miðar þeim ágætlega. 25.9.2012 09:17
Frosti gefur kost á sér fyrir Framsóknarflokkinn Frosti Sigurjónsson rekstrarhagfræðingur hefur ákveðið að gefa kost á sér til að leiða lista Framsóknarflokksins í Reykjavík í komandi alþingiskosningum. Frosti er meðstofnandi og stjórnarformaður hjá hugbúnaðarfyrirtækjunum Dohop og DataMarket, og stjórnarmaður í Arctica Finance. Hann var í fimm ár forstjóri Nýherja og stjórnarformaður CCP, en þar áður fjármálastjóri hjá Marel. Frosti er stjórnarmaður í Heimssýn, samtaka gegn aðild að ESB, og einnig meðlimur í Advice hópnum sem kynnti mótrök gegn Icesave III. Hann er talsmaður átaksins Betra peningakerfi sem kynnir leiðir til úrbóta í peningamálum. 25.9.2012 09:01
Norðmenn leyfa lyf sem inniheldur kannabis Norðmenn hafa ákveðið að leyfa notkun lyfs sem inniheldur kannabis. Um er að ræða úðann Sativex en notkun hans hefur þegar verið leyfð í Svíþjóð og Finnlandi. 25.9.2012 08:11
Börn eru stráfelld í stríðinu í Sýrlandi Börn eru stráfelld í borgarastríðinu í Sýrlandi, þau sæta pyntingum og verða vitni að miklum ódæðisverkum. 25.9.2012 06:40
Skemmdarvargar unnu mikil spjöll á þjóðleikhúsi Færeyja Mikil spjöll voru unnin á þjóðarleikhúsi Færeyinga í Þórshöfn eða Tjódpallur Føroyar um síðustu helgi. Langur tími mun líða þar til hægt verður að sýna leikrit þar að nýju. 25.9.2012 06:35
Rússar í hart vegna laxveiði í net Ríkisstjóri Múrmansk-héraðs í Rússlandi hefur ákveðið að vísa ágreiningi um laxveiðar Norðmanna í net á hafsvæði undan ströndum Finnmerkur til öryggisráðs Rússlands. Samningaviðræður Norðmanna og Rússa síðastliðin tvö ár hafa engan árangur borið, og því er þessi leið nú valin. 25.9.2012 08:30
Deila um hver vissi hvað um framboðið - fréttaskýring Óhætt er að segja að tíðindi af framboðsmálum Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi hafi komið á óvart. Varaformaðurinn, Birkir Jón Jónsson, tilkynnti fyrir helgi að hann hygðist ekki gefa kost á sér til setu á lista flokksins fyrir næstu kosningar. Flokkurinn á tvo þingmenn í kjördæminu, Birki og Höskuld Þórhallsson. 25.9.2012 08:00
Risastór borgarísjaki sprakk í loft upp Risastór borgarísjaki sprakk í loft upp í Baffin flóanum við Grænland í síðustu viku. 25.9.2012 07:43
Ný tækni eykur áhuga veiðimanna Tveir áhugamenn um bryggjuveiði hafa sent stjórn Faxaflóahafna tillögur um það hvernig bæta megi aðstöðu til slíkra veiða í gömlu höfninni í Reykjavík. 25.9.2012 07:30
Þrír stærstu barnahóparnir í hruninu Þrír af fimm fjölmennustu árgöngum Íslandssögunnar fæddust árin 2008, 2009 og 2010. Aðeins árið 2009 hafa fæðst fleiri en 5.000 börn á Íslandi, tæplega þúsund fleiri en árið 2001. 25.9.2012 07:30
Prófkjör hjá sjálfstæðismönnum í Kraganum Fjölmennur fundur í kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi samþykkti einróma í gærkvöldi tillögu kjörnefndar þess efnis að viðhafa prófkjör í kjördæminu laugardaginn 10. nóvember næstkomandi. 25.9.2012 07:18
Hulunni svipt af langlífi geldinga Ný rannsókn í Suður Kóreu hefur leitt í ljós afhverju geldingar lifa mun lengur en aðrir menn eða allt að 19 árum að meðaltali. Rannsóknin varpar einnig ljósi á afhverju konur lifa yfirleitt lengur en karlar. 25.9.2012 07:03
Brigsl gengu á víxl á hitafundi í Kópavogi „Að gefnu tilefni vill formaður bæjarráðs minna fundarmenn á að hafa í huga háttvísi í bókunum sínum og gæta að því að niðrandi ummæli sem geta talist beinast að persónum eru fulltrúum í bæjarráði ósæmandi," bókaði Rannveig Ásgeirsdóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, á fundi á fimmtudaginn var. 25.9.2012 07:00
Predikarinn Abu Hamza verður framseldur Undirbúningur er hafinn að því að framselja hinn róttæka predikara Abu Hamza frá Bretlandi til Bandaríkjanna eftir að Mannréttindadómstóll Evrópu hafnaði beiðni hans um áfrýjun á málinu. 25.9.2012 06:55
Kökusneið úr konunglegu brúðkaupi til sölu á uppboði Nú er hægt að bjóða í eina af þeim 650 kökusneiðum sem í boði voru í brúðkaupi ársins, á vefsíðunni PFC Actions. Að sjálfsögðu erum við að tala um konunglegt brúðkaup þeirra Vilhjálms og Katrínar hertogans og hertogaynjunnar af Cambridge en brúðkaupið fór fram í apríl síðastliðnum. 25.9.2012 06:52
Fundu líkamsleifar hermanns um 100 árum eftir að hann féll Búið er að bera kennsl á líkamsleifar sem fundust fyrr í ár í Belgíu. Um er að ræða nýsjálenskan hermann sem féll í fyrri heimstryjöldinni fyrir nærri 100 árum síðan. 25.9.2012 06:48
Fundu áður óþekktan vírus sem líkist SARS Áður óþekktur vírus, þó ekki ólíkur þeim sem kallaðist SARS og varð hundruð manna að bana árið 2003, hefur greinst í manni sem nú er verið að meðhöndla á bresku sjúkrahúsi. 25.9.2012 06:46
Lýður og Bjarnfreður ákærðir í Existamáli Lýður Guðmundsson, fyrrum aðaleigandi Existu, og Bjarnfreður Ólafsson, einn eigenda Logos, hafa verið ákærðir fyrir að hafa brotið gegn lögum um hlutafélögum. Mönnunum tveimur er gefið að sök að hafa vísvitandi brotið lög við tilkynningu um hlutafjáraukningu í Existu í desember 2008 og að það hafi verið gert til að tryggja yfirráð Lýðs, og bróður hans Ágústs Guðmundssonar, yfir félaginu. 25.9.2012 06:30
Svartri skýrslu um gífurleg fjárútlát ríkisins haldið leyndri Umfjöllun í Kastljósi í gærkvöldi um svarta skýrslu um gífurlega framúrkeyrslu við kaup ríkisins á nýju fjárhags- og bókhaldskerf hefur vakið mikla athygli. Svo virðist sem skýrslunni hafi verið haldið leyndri árum saman. 25.9.2012 06:29
Fatlaðir fá að velja aðstoðarfólk Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mælir í vikunni fyrir lagabreytingu sem gerir fötluðum kleift að velja sér aðstoðarfólk við kosningar. Hann segir að grundvallarreglan verði sú að kjörstjórnir aðstoði þá sem ekki geta kosið, en ef fatlaður einstaklingur vilji sjálfur velja sér aðstoðarmann sé honum það heimilt. 25.9.2012 06:00
Fólk í greiðsluaðlögun gæti hrakist úr námi Dæmi eru um að námsmenn í greiðsluaðlögun Umboðsmanns skuldara fái ekki fyrirgreiðslu hjá viðskiptabanka sínum til að brúa bil sem myndast fram að útgreiðslu námslána hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN). 25.9.2012 06:00
Brahimi heldur í veika von Mahmoud Ahmadinejad, forsætisráðherra Írans, notaði tækifærið til að skjóta á Bandaríkin og Ísrael þegar hann steig í ræðustól á fyrsta degi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í gær. 25.9.2012 00:00
Over 30 kg amfetamin konfiskeret i Danmark Nogle islændinge blev anholdt i Danmark i sidste uge i en kæmpestor smuglingssag. Over 30 kg amfetamin blev konfiskeret, og sagen strækker sig til mange lande i Europa. 25.9.2012 18:30
Framsókn stefnir á fjóra menn í Reykjavík Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að Framsóknarflokkurinn ætti að vera stærsti flokkurinn í Norðausturkjördæmi. Þá telur hann að flokkurinn ætti að ná tveimur mönnum inn í hvoru Reykjavíkurkjördæmanna. 24.9.2012 23:47
Zombí-býflugur valda heilabrotum Býflugnabóndinn Mark Hohn frá Seattle í Bandaríkjunum tók eftir því á dögunum, þegar hann snéri heim úr fríi, að býflugur sem hann átti voru ýmist dauðar eða flugu tilviljanakennt um, eins og þær væru einhverskonar uppvakningar. Og líkingin á rétt á sér, ekki síst þar sem umræddar býflugur voru sýktar af dularfullum sjúkdómi sem draga þær með kvalarfullum hætti til dauða að lokum. Þetta veldur því að lokum að allar fullorðnar býflugur í býflugnabúum drepast að lokum. 24.9.2012 23:00
Björguðu kynlífsdúkku úr Svartahafinu Strandgestir í Tyrklandi nutu sólarinnar á dögunum en þeim brá heldur betur í brún þegar þeim sýndist sjá drukknaða konu í Svartahafinu þar sem gestirnir sóluðu sig. 24.9.2012 22:30
Tveir ákærðir fyrir hlandhneyksli í Afganistan Tveir hermenn í bandaríska hernum hafa verið ákærðir fyrir að kasta þvagi á lík hermanna Talibana í Afganistan á síðasta ári en myndir birtust af atvikinu í kjölfarið og myndband á Youtube. Málið vakti gríðarlega reiði í Mið-Austurlöndum á sínum tíma enda virðingarleysið algjört. 24.9.2012 21:00
Vopnfirðingar moka upp makríl-milljörðum Makríl-, síldar- og loðnutekjur Vopnafjarðar stefna í yfir átta milljarða króna á þessu ári. Þetta er sú byggð sem er með einna hæstu gjaldeyristekjur á íbúa á Íslandi og þar hefur verið líf og fjör að undanförnu. Í gamla daga var talað um síldarævintýri, svo kom loðnuævintýri og nú er hægt að tala um makrílævintýri á Vopnafirði. 24.9.2012 20:30
107 ára gamalt timburhús var jafnað við jörðu í dag Íbúar og aðrir sem áttu leið um Skólavörðustíg í dag fylgdust með þegar hundrað og sjö ára gamalt timburhús var jafnað við jörðu. 24.9.2012 20:00
Eldur í potti og gríðarlega mikið um sjúkraflutninga Eldur kom upp í potti fyrir stundu á heimili á Miklubraut. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað til en reykræsta þurfti íbúðina. 24.9.2012 19:31
Dæmdur í Litháen en náðaður á Íslandi Íslendingur sem dæmdur var í ellefu ára fangelsi í Litháen á síðasta ári, gengur nú laus. Hann var náðaður af íslenskum stjórnvöldum. Embætti forseta Íslands hefur náðað 45 dæmda einstaklinga frá árinu 1996. 24.9.2012 19:30
Stefnir í hörð átök - Höskuldur segir formanninn fara með rangt mál Það stefnir í hörð átök á milli þeirra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, og Höskuldar Þórhallssonar þingmanns. Höskuldur segir framkvæmdastjóra flokksins fara með rangt mál og þvertekur fyrir að hafa vitað af fyrirætlunum Sigmundar um að skipta um kjördæmi. 24.9.2012 19:00
Grafarvogsbúar fá heitt vatn á ný Nú um klukkan 18:00 var byrjað að hleypa heitu vatni að nýju á þann hluta byggðarinnar í Grafarvogi, sem verið hefur vatnslaus frá í morgun vegna viðgerðar samkvæmt tilkynningu frá orkuveitunni. 24.9.2012 18:25
Lýður ákærður fyrir stórfellt brot gegn hlutafélagalögum Sérstakur saksóknari hefur ákært Lýð Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformann Exista, fyrir stórfellt brot gegn hlutafélagalögum samkvæmt útvarpsfréttum RÚV. Þar segir að lögmaður og fyrrverandi stjórnarmaður í Kaupþingi, Bjarnfreður H. Ólafsson, sé sömuleiðis ákærður og þess krafist að hann verði sviptur lögmannsréttindum. 24.9.2012 18:05
Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Akureyri styður Höskuld "Menn eru bara hissa. Ég held að Höskuldur njóti trausts hérna í bænum, þannig að hann á vísan stuðning margra komi til kosninga. Þessi staða er auðvitað ekki góð fyrir flokkinn, vonandi tekst að landa málinu þannig að allir verði sáttir,“ segir Guðmundur Baldvin Guðmundsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Akureyri í viðtali við Vikudag en þar kemur fram að Guðmundur styðji Höskuld Þórhallsson til þess að bjóða sig fram í fyrsta sætið í Norðausturkjördæmi en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins hefur ákveðið að gefa kost á sér í sætið í stað þess að bjóða sig fram í Reykjavík Norður eins og áður. 24.9.2012 17:23
Ökumaður með 4 ára gamalt barn undir stýri Á föstudagmorgun var ökumaður í Vestmannaeyjum sektaður fyrir að aka með fjögurra ára gamalt barn í fanginu. Sjálfur var ökumaðurinn með öryggisbeltið spennt. 24.9.2012 16:31